Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2004, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNl2004
Fréttir XXV
Jón Þorri Jónsson lör-
ast þess aö hafa otað
hnlfi oö bankastarfs-
I rnannl en sér ekkl eftir aö
hafa rænt bankarm.
Rúslana fær
súkkulaðisvín
Veitingahús í Kænugarði
í Úkraínu hefur þróað nýj-
an rétt sem telst víst seint
hollustufæði. Rétturinn er
svínafita sem dýft er í
súkkulaði. Svínafita er vin-
sæll matur í Úkraínu en er
oftast borðuð með rúg-
brauði og skolað niður með
vodka. Veitingahúsið
hefur ekki lagt í að
setja súkkulaði-
svínafitima á mat-
seðilinn en nokkrir
útvaldir gestir hafa
fengið að smakka.
Meðal þeirra er
söngkonan og ís-
landsvinurinn, Rúsl-
ana. Litlum sögum fer
af hrifningu hennar. Lækn-
ar andmæla réttinum og
benda á að hvergi í Evrópu
deyi fleiri úr hjartasjúk-
dómum en einmitt í Úkra-
ínu.
Bandaríkin
rústa mann-
réttindum
Stríð Bandaríkjamanna
gegn hryðjuverkum við
Persaflóa hefur
djúpstæð og víðtæk
áhrif á mannréttindi
á svæðinu, að því er
Amnesty
International segir.
Að því er samtökin
segja skeyta Banda-
ríkin og Persaflóa-
ríkin nú lítið um lög og
reglur og grundvallarmann-
réttindi. Aður fóru mann-
réttindi á svæðunum batn-
andi en nú er stríð Banda-
ríkjamanna notað sem yfir-
skin fýrir kúgun.
Deep Purple
Ian Gillan og félagar
hans í gömlu rokksveitinni
Deep Purple komu til
landsins I gær eftir rúmlega
þriggja áratuga fjarveru,
Hljómsveitin heldur tón-
leika I kvöld I Laugardals-
höll og endurtekur svo leik-
inn annað kvöld.
Ekkert lág-
mark?
Talið er að
niðurstaða starfs-
nefhdar forsætis-
ráðherra verði að
engrar lágmarks-
þátttöku verði
krafist til þess að þjóðarat-
kvæðagreiðsla um fjöl-
miðlalögin teljist gild.
Heimildir DV herma að
niðurstaða neftidarinnar
mimi koma á óvart. Er það
túlkað sem svo að nefndin
krefjist ekki lágmarksþátt-
töku. Yrði það gegn ætíun
ríkisstjórnarinnar. Reiknað
er með að niðurstaðan
verði kynnt á morgun.
Bankaræninginn Jón Þorri Jónsson. sem rændi útibú Búnaðarbankans við Vestur-
götu í nóvember kom fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar sem ákæra gegn hon-
um og félaga hans var þingfest. Jón Þorri segir félaga sinn saklausan og ekki hafa
vitað af því að hann hygðist ræna bankann en félagi hans Helgi Sævar Helgason
ók undankomubíl bankaræningjans.
Ekki nevddur til Imnkrás
Jðn Þorri Jónsson, 22ja ára, sem rændi útibú Búnaðarbankans
við Vesturgötu í nóvember segist ekki hafa verið neyddur til
verksins af handrukkara eins og hann hélt í fyrstu fram við lög-
reglu. Jón Þorri segist ekki iðrast þess að stela peningum frá
bankanum en sér eftir að hafa hrætt starfsfólkið.Hann keypti sér
gras, Playstation tölvu og borgaði húsaleiguskuld fyrir þýfið áður
en lögreglan handtók hann. Mál hans var þingfest fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
„Ég er bara hasshaus þó ég hafi
verið edrú núna í nokkra mánuði og
eftir ránið var það mitt fyrsta verk að
kaupa mér gras og playstation, sem
er mjög dæmigert fyrir hasshausa,
eiginlega hlægilega dæmigert,“ segir
Jón Þorri Jónsson sem síðdegis þann
17. nóvember síðastíiðinn réðst
vopnaður hnffi inn í útibú Búnaðar-
bankans við Vesturgötu og ógnaði
gjaldkerum og fékk þá til að afhenda
sér peninga.
„Mér vantaði pening til að borga
leigu og smávægilegar fíkniefna-
skuldir og félagi minn hafði bent mér
á að þessi banki væri auðveldur, og
auðvelt að komast undan. Það var þó
öðru nær,“ segir Jón Þorri hálfu ári
eftir atburðina á Vesturgötunni.
Hann segir þá skýringu sem hann
gaf lögreglunni við handtöku að
fíkniefnasalar hefðu hvatt hann til
verksins vegna gríðarlegra skulda við
þá vera rugl og uppspuna.
„Ég sagði það bara af því að ég
vissi að sú skýring yrði auðveld, auð-
vitað var það ekki rétt".
Jón Þorri segir félaga sinn, Helga
Sævar Helgason, sem einnig er
ákærður fyrir aðild að málinu, ekkert
hafa vitað af því hvað til stóð.
„Ég Iabbaði í nokkra hringi fyrir
utan bankann eins og alger bjáni
þangað til að ég hljóp inn, otaði
hnífnum að gjaldkeranum og rétti
henni pokann sem hún fyllti. Ég var
búinn að ákveða að vera rólegur en
það er ekkert hægt við svona aðstæð-
ur, brjálað stress og svona. Helgi vissi
ekki neitt hvað var að gerast og hann
varð eðlilega hræddur þegar ég kom
inn í bílinn með peningana og því á
hann ekki að fá sömu refsingu og ég,"
segir bankaræninginn ungi.
Við þingfestingu málsins í gær
lýsti Helgi Sævar sig saklausan af
ákærunni og sagðist hvorki hafa vitað
af því að Jón Þorri ætíaði að ræna
bankann né heldur að hann hefði
stolið hníf úr bíl hans.
Auk þess að kaupa sér maríjúana
festi Jón Þorri kaup á Playstation
»
Ég labbaði í nokkra
hríngi fyrír utan bank-
ann eins og aiger
bjáni þangað til að ég
hljóp inn, otaði hnífn-
um að gjaldkeran-
um/'
tölvu og leikjum fyrir ránsfenginn.
Einn þeirra leikja sem Jón keypti
heitir True crime eða Sannur glæpur,
eins og það gæti útíagst í beinni þýð-
ingu. Jón viðurkennir að nafnið á
leiknum sé ansi kaldhæðið í ljósi þess
sem á undan hafði gengið.
.Auðvitað var þetta heimskulegt -
allt saman - og engan veginn þess
virði. Ég þarf að lifa við það, taka
ábyrgð á gerðum mínum eins og aðr-
ir,“ segir JónÞorri.
Hann byrjaði að neyta fíkniefna
þegar hann var 16 ára gamall -og
fljótíega fór að halla undan fæti.
Hann er að sögn þurr þessa dagana
og búinn að vera í nokkra mánuði.
Hann segist hafa farið í mikla neyslu
nokkrum dögum eftir að honum var
sleppt en tæpum sólarhring eftir að
Jón Þorri var handtekinn var annar
bankaræningi handtekinn fyrir
vopnað rán í Sparisjóði Haftiarfjarð-
ar. Jón segir að þar sem hann hafi
kannast við þann sem þar átti í hlut
hafi grunur vaknað hjá Sparisjóðs-
ræningjanum um að jón eða Helgi
Sævar hefðu sagt til hans.
„Ég var á stanslausri keyrslu á
kókaíni og öðrum örvandi efnum í
fimm daga eftir að mér var sleppt
hálfum öðrum sólarhring eftir ránið.
Undir lok þeirrar keyrslu var ég að
reyna að sofna heima þegar ég varð
var við að einhver grunsamleg um-
ferð væri fyrir utan. Þegar ég leit út sé
ég þennan strák sem þá var nýbúið
að sleppa vegna ránsins í Hafnarfirði,
standa fyrir utan ásamt tveimur fé-
lögum sínum vopnuðum haglabyss-
um. Mér dauðbrá og ég hringdi bara
beint í lögguna. Ég veit ekki hvað
hann var að spá en hitt er eins víst að
hvorki ég né Helgi kjöftuðum til
hans,“ segir Jón Þorri sem viður-
kennir fúslega að líf hans undanfarið
árið hafi verið líkara reyfara en því
sem aðrir kalla hefðbundið líf.'
Jón Þorri sækir sjó þessa dagana
norður á Akureyri og segist ekki
kvíða því að sitja í fangelsi en refsing
fyrir brot hans er að lágmarki sex
mánaða fangelsi. Hann segist ekki
sjá eftir ráninu en hins vegar sjá mik-
ið eftir að hafa hrætt starfsfólk og
viðskiptavini bankans sem hlutu
margir áfallahjálp í kjölfar ránsins.
„Ég gerði mér ekki grein fyrir því
fyrr en seinna hversu hræddar kon-
urnar voru og ég vona að þær hafi
jafnað sig. Hins vegar sé ég ekkert eft-
ir að hafa tekið peningana frá bank-
anum enda hann búinn að hafa ann-
að eins af mér,“ segir Jón sem segist
þó ekki vera neinn Hrói Höttur. Og
hann segist ekld ætía að ræna banka
aftur -það sé á hreinu.
„Þó ég hafi kannski gefið einhverj-
um að reykja eftir ránið eða leyft
þeim að fara í tölvuna þá telst ég nú
ekki neinn Hrói Höttur. Ég geri þetta
ekki aftur enda er það ekld þess virði,"
segir Jón Þorri I samtali við DV.
helgi@dv.is
Að vera elskur að skepnum
Það er alveg merkilegt hvernig
alltaf leynast dýravinir í ólíklegasta
fólki. Þetta á ekki síst við ráð-
herrana sem skipa rfldsstjómina
okkar. Og það fer ekki framhjá
Svarthöfða sem jafnan hefur sjálf-
um verið hlýtt til allra skepna, hvort
sem er á láði eða legi, jaftit á nóttu
sem degi.
Það má eiginlega segja að það
hafi verið yfirmaður allra dýra
landsins, sjálfur landbúnaðarráð-
herra sem hafi riðið á vaðið með at-
lotum sínum við kú eina á Suður-
Í
Svarthöfði
landi. Ráðherrann kyssti þá og
kjassaði kúna svo innilega að lands-
menn komust við. Líka Svarthöfði.
Bóndanum á staðnum varð ekki um
sel þó ekki hafi hann beinlínis
gmnað Guðna Ágústsson um
græsku í þetta skipti þó hann sé
mjólkurfræðingur að upplagi.
Þó þessar dýragælur landbúnað-
arráðherra hafi verið einna eftir-
tektarverðastar hefur Ágústsson þó
Hvernig hefur þú það
Krlstján Gunnarsson, formaöur Verkalýös- og sjómannafélags Keflavikur. „Ég hef
það frekar skltt út afþessum upþsögnum,"segir Kristjdn Gunnarsson, formaöur Verka-
lýös- og sjómannafélags Keflavfkur. „Þvl miðurhefurþetta komið alltofreglulega, við
fáum þessi ótíðindi. Herinn hann heldur Suöurnesjamönnum Iglslingu, það er rétt hjá
mönnum. Flest allir starfsmenn varnarliðsins eru I atvinnuleit. Óvissan fer verst með
menn. Stálpípuverksmiðjan er alltafíplpunum en nær ekki lengra en það. En maður
hefurþað ndttúrulega gott I sólinni."
einnig komið víðar við. Minna má á
fræga ljósmyndatöku í Húsdýra-
garðinum í Reykjavík af ráðherran-
um og Guttormi hinum gífurlega og
makindalega; þyngsta og mesta
nauti íslandssögunnar.
Allir vita hversu Siv
umhverfisráðherra
umhugað um ástir og
örlög Styrmis storks,
þess ágæta fugls sem
handsamaður var
austur á landi en
sendur suður í vist í
áðurnefndum dýra-
garði í höfuðstaðn-
um. Ráðherra linnti
ekki látum fyrr en
Styrmi hafði verið fylgt
úr landi til móts við
væntan-
lega ástkonu I Svíþjóð. Þetta fannst
Svarthöfða drengÚegt.
Allt er þegar þrennt er. Nú hefur
Björn, keisari yfir Hæstarétti, stigið
út úr skápnum sem unnandi góðra
skepna. Fréttír hafa borist af því
að kirkjumálaráðherrann
hafi austur á Þingvöllum,
í góðra vina hópi, stigið í
vænginn við hross eitt
sem hann hitti á barn-
um á Valhöll. Bjarna-
son hreinlega kyssti
dýrið áður en yfir lauk.
Nú hlýtur að vera
komið að Davíð. Á
hvern skyldi forsætis-
ráðherra smella sín-
um kossi?
Svarthöfði