Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2004, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAOUR 23. JÚNl2004
Fréttlr 0V
Deilt um
hrossabeit
Óskað var eftir aðstoð
lögreglunnar í Keflavík í
Höfnum í fyrrakvöld
en þar hafði átta
hrossum verið beitt
á landskika án þess
að eigandi landsins
hafði gefið leyfi fyrir
því. Eigandi hross-
anna kvaðst hins-
vegar hafa fengið
leyfi til beitarinnar hjá öðr-
um eiganda landsins en þeir
eru nokkrir. Unnið er að
finna lausn á þessu máli.
Göngin
lengjast
Dagvinnulaun kennara í Reykjavík hækkuðu um 81 þúsund krónur á þriggja ára
tímabili. Á sama tíma hækkuðu laun verkamanna innan Alþýðusambands íslands
um 32 þúsund krónur.
Kennarar lá margfalda
hækkun verkamanna
Vel gengur við spreng-
ingar í göngum milli Fá-
skrúðsfjarðar og Reyðar-
flarðar. Vegagerðin segir
sprengimenn
ístaks nú hafa
lagt að baki rúma
4,8 kílómetra af
þeim 5,7 kíló-
metrum sem
göngin verða í heild.
Sprengt er beggja vegna
fjaröanna. Göngin og veg-
skálar verða fullbúin seinni
part næsta árs.
r--------------------------
Sólstöðuþjófur
stelur bfl
Tveimur ferðamönnum
er voru að skoða Sólfarið á
Sæbraut í Reykjavík og
sumarsólstöðurnar seint í
fyrrakvöld brá í brún er
bflaleigubíl þeirra var
skyndilega ekið á brott.
Lögreglan var kölluð til og
einni klukkustund seinna
fannst bflinn og þjófurinn,
sem reyndist ölvaður borg-
arbúi, í Þingholtunum.
Ferðamennimir voru fegnir
að fá bílinn á ný því þeir
áttu bókað flug klukkan sjö
í gærmorgun.
Guöný Björg Hauksdóttir
kyrmingarfulltrúi hjá Hönnun hf.
og bæjarfulltrúi I Fjaröabyggö
Dagvinnulaun grunnskólakennara hjá Reykjavíkurborg hækk-
uðu um 81 þúsund krónur á þremur árum frá því í janúar 2000.
Þrátt fyrir að kennarar hóti verkfalli frá 20. september eru engar
viðræður í gangi vegna sumarleyfa samninganefndarmanna.
Dagvinnulaun kennara í
Reykjavík hækkuðu úr 132 þúsund
krónum í 213 þúsund á aðeins
þremur árum, frá því í janúar 2000
þar til í janúar 2003. Hækkunin
nemur 81 þúsund krónum.
Á sama tíma hækkuðu dag-
vinnulaun verkamanna innan ASÍ
úr 112 þúsundum króna í 144 þús-
und krónur, eða um 32 þúsund
krónur. Dagvinnulaun BHM-fé-
laga hjá rflcinu hækkuðu um tæp
sextíu þúsund krónur á þessu
tímabili.
Hækkun heildarlauna önnur
Myndin af hækkuninni er nokk-
uð önnur ef litið er á heildarlaun
kennara en ekki dagvinnulaun
enda hefur talsvert af yfirvirmu-
greiðslum verið færðar undir dag-
vinnuna. Þannig hækkuð heildar-
launin frá því í janúar 2000 til sama
mánaðar 2003 um 39 þúsund
krónur; úr 209 þúsundum í 248
þúsund krónur. Á sama tíma
hækkuðu heildarlaun BHM félaga
hjá rfldnu um sjötíu þúsund krón-
ur. Heildarlaun verkamanna innan
ASÍ hækkuðu um fimmtíu og fimm
þúsund krónur að meðaltali.
Ekki er gengið að þvf að bera
saman laun ýmissra starfsstétta.
Til að mynda birtir Kjararann-
sóknarnefnd opinberra starfs-
manna í fréttariti sínu dag- og
heildarlaun hvers mánaðar en
meðal dag- og heildarlaun verka-
manna eru reiknuð út ársfjórð-
ungslega.
Launaþróun kennara og verkamanna
250.000
200.000
150.000
100.000
Sumarhlé þrátt fyrir verk-
fallshótun
Launanefnd gmnnskólakenn-
ara og launanefnd sveitarfélaga
funduðu í síðustu viku í fyrsta sinn
eftir að félagar í Félagi gmnnskóla-
kennara og Skólastjórafélagi ís-
lands greiddu atkvæði með því að
fara í verkfall 20. september í haust
hafi samningar ekki tekist fyrir
þann tíma. A fundinum, sem var
stuttur, lagði samninganefnd
grunnskólakennara fram tillögu
um að samningaviðræðum yrði
frestað þar til í ágúst og samþykkti
launanefnd sveitarfélaganna til-
löguna.
Næsti fundur deiluaðila hefúr
verið boðaður hjá rfldssáttasemj-
ara 11. ágúst:
„Við í launanefnd grunnskóla-
kennara ædum að nota tímann til
að skoða okkar mál í rólegheitum,"
segir Finnbogi Sigurðsson, for-
maður félagsins; „Það gerist lítið
yfir sumartímann, það er erfitt að
finna fundartíma
sem hentar öll-
um. Menn nota
því tímann til
að hugsa sín
mál.“
Dagv.laun
Heildarlaun
jan jun jan jun jan jún jan jún
2000 2000 2001 2001 2002 2002 2003 2003
Tölur um launaþróun kennarahóps og BHM félaga eru teknar úr fréttariti Kjararannsóknarnefndar opinberra starfs-
manna. Tölur um launaþróun verkamanna innan ASl eru frá Kjararannsóknarnefnd. KOS gefur upplýsingar um taun
fyrir hvern mánuö en Kjararannsóknarnefnd gefur upplýsingar um meöallaun ársfjóröungslega.
Réttinda-
fólkið fyrir
sunnan
Á höfuð- _____
borgarsvæð-
inu hafa tæplega
níutíu prósent
þeirra grunn-
skólakennara
sem starfa f skól-
unum kennslu-
réttindi en sjötíu
og eitt prósent
utan höfuðborg-
arsvæðisins.
Meðal þess
sem nefnt er í
sameiginlegum
sjónarmiðum fé-
laga í Kennara-
sambandi fslands
í kjarasamningum
2004 er að þróun
kjarasamninga
Finnbogi Sigurðsson „Þaö gerist
lítiö yfir sumartlmann, þaö er erfitt
aö finna fundartíma sem hentar
öllum,' segir formaöur Félags
grunnskólakennara. Næsti fundur
launanefnda veröur 1 l.ágúst.
Verkfalli er hótaö sex vikum síðar.
kennara, námsráðgjafa og skóla-
stjómenda verði f takt við það sem
gerist hjá öðmm hópum háskóla-
menntaðra starfsmanna og að
störf þeirra séu metin til laima í
samræmi við aðra hópa með sam-
bærilega menntun og ábyrgð í
starfi.
Þá er markmið kjarasamning-
anna að umsamin laimakjör og
starfsaðstæður kennara og skóla-
stjórnenda á öllum skólastigum
verki hvetjandi á ungt fólk til að
mennta sig til kennslustarfa.
Einnig að Kennarasambandið beiti
sér fyrir því að grunnskólamennt-
un aílra kennara verði að minnsta
kosti fjögurra ára nám á háskóla-
sviði.
„Það er náttúrulega helst að
frétta þessa dagana að fyrsta
skóflustungan af nýrri verslun-
armiðstöð verður tekin i dag,“
segir Guðný Björg Hauksdóttir,
kynningarfulltrúi hjá Hönnun
hf.á Austurlandi og bæjarfull-
trúi I Fjarðabyggð.„Það varþó
aldrei að við fengjum ekki
hingað verslunarmiðstöð. Svo
tökum við fyrstu skóflustung-
una afálverinu í lok júll en nú
erhafin vinna við vegagerð I
tengslum við álvershöfnina
sem er nýbúið að bjóða út.
Annars
höfum
Landsíminn
við þaö bara voða flnt hérna
fyrir austan og erum nýbúin
aö halda hér stóra sýningu,
Austurland 2004, sem rúmlega
6000 manns sáu. Svo er það
náttúrulega sumarið og EM
sem ekki er þverfótaö fyrir
núna. Ég held að sjálfsögðu
með Englandi. Svo er það
sumarfrí Ijúll þar sem ég
reikna með að elta strákana
mlna á fótboltamót."
Sigvaldi Gunnlaugsson hættur í gellubransanum
Yngri kynslóðin vill síður gellur
„Það er erfitt að koma gellum
ofan í yngri kynslóðina en eldra fólk-
ið þekkir þetta betur. Við sem þekkj-
um þann tíma þegar fólk var að nýta
afurðimar af fisknum betur finnst
þetta vera fínasti matur," segir Sig-
valdi Gunnlaugsson hjá Sæfiski sem
nýlega seldi gelluframleiðslu sína.
Sigvaldi, sem er Dalvíkingur, reyndi
fýrir sér með gellurnar utanlands.
„Ég var í fjóra mánuði í gellubrans-
anum en þá fluttum við batteríið til
Noregs þar sem það var selt. Það er
svo aldrei að vita nema maður fari
aftur í þennan bransa í haust." Sig-
valdi segist nær eingöngu hafa unn-
ið með frosnar afurðir vegna þess að
það hafi verið svo mikil rýrnun
vegna blóðs þar sem sjómenn væm
alveg hættir að blóðga. „Ég er
menntaður vélvirki og er að vinna
hjá fyrirtækinu Frost í sumar aðeins
til þess að kæla mig niður," segir Sig-
valdi og hlær.
Hann segist lítið hafa selt gellur
hér á landi en aðalmarkaðurinn hafi
verið í Portúgal og á Spáni. „Kfló-
verðið á Spáni er svona 700 krónur
en ég hef séð þetta í Nóatúni allt upp
í llOOkrónur."
Sigvaldi segir framleiðsluna hafa
gengið nokkuð vel og þau hafi verið
fjögur sem störfuðu í kringum þetta
á tímabih. „Mér finnst þetta sjálfum
vera alveg herramannsmatur og tók
mér nokkrar
birgðir til þess
að eiga í sum-
ar rétt áður en
égseldi," segir
Sigvaldi að
lokum.
Gellukóngurinn Dalvlkingurinn
Sigvaldi Gunnlaugsson hefur
reysnslu afþvl aö verka gellur fyrir
landsmenn. Unga fólkið er minna
fyrir góömetið en hinir eldri.
Clinton, nei takk
Monica Lewinsky, fyrrum lær-
lingur Hvíta hússins og hjákona
Clintons, var stödd í Littíe Rock í
Arkansas um
helgina til þess
að veravið-
stödd brúð-
kaup vinar.
Littíe Rock er
fæðingarbær
Clintons og þar
er rekið mynd-
arlegt safn í
nafni forsetans fýrrverandi. Brúð-
kaupsgestum var boðið í sýnis-
ferð í safnið en þá spyrnti Monica
við fæti og sagði „Nei, takk".
Monicu mun hafa verið skemmt
yfir því að nokkmm manni dytti í
hug að hún vildi ganga um
„æviminningasafn" Clintons eftir
allt sem á undan er gengið. Mon-
ica hefur haldið sig til hlés síð-
ustu misseri.