Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2004, Síða 13
DV Fréttír
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ2004 13
Segir Lúðvík
bara tala
Lúðvík Berg-
vinsson „er sá þing-
maður, sem er laus
við það að láta
sannleikann eða
sanngimi í málflutningi
flækjast fyrir sér þegar hann
hefur hug á að koma höggi
á pólitíska andstæðinga.
Sem betur fer hef ég ekki
þurft að hafa mikd sam-
skipti við hann sem bæjar-
fulltrúa," segir Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra,
sem á heimasíðu sinni svar-
ar málflutningi bæjarfulltrú-
anna í Vestmannaeyjum,
Lúðvíks og Andrésar Sig-
mundssonar. Þeir hafa
gagnrýnt ráðherrann í
tengslum við könnun á
samgöngulausnum milli
meginlandsins og Eyja. „Ég
vil vinna með mönnum sem
vilja vinna, en ekki bara
taia,“ segir ráðherrann um
þá bæjarfúlltrúana.
Aldrei getað
hent neinu
Ái laugardag opnar í
Skagafirði nýtt samgöngu-
og vélaminjasafii. Gunnar
Þórðarson, bóndi á Stóra-
Gerði í Óslandshh'ð, á veg
og vanda af safninu sem
hann segir geyma allar
tegundir ökutækja. „Ég er
búinn að vera að safna
þessu lengi. Lærði bifvéla-
virkjun og hef aldrei getað
hent neinu," segir Gunnar
en safnið er einmitt í
nýjiim húsum sem hann
hefur byggt tmdir vélamar
og tækin.
Lúðvík Bergvinsson alþingismaður, sem hefur skrifað frumvarp um að Alþingi
kjósi hæstaréttardómara, segir brýnt að setja nýjar reglur áður en dómsmálaráð-
herra skipi eftirmann Péturs Kr. Hafstein. Hann segir ekki ganga að ákvarðanir
um dómara séu teknar í reykfylltum bakherbergjum í dómsmálaráðuneytinu.
Óttast að einkavinir
taki ytir Hæstarett
„Við verðum að koma í veg fyrir það að Hæstiréttur verði einka-
vinavæddur," segir Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylking-
arinnar. „Þess vegna verður að setja nýjar reglur við skipan dóm-
ara,“ segir hann.
Lúðvfk lagði fram frumvarp ásamt
fleiri þingmönnum á þinginu 2000-
2001 þar sem lagt var til að ráðning
Hæstaréttardómara yrði rædd og
ákveðin af Alþingi. Þar var lagt til að
forsætisráðherra tilnefndi dómarann
en sú tilnefning þyrfti að fá samþykki
tveggja þriðju hluta atkvæða á þingi.
Þegar hann er spurður hvort eðli-
legt sé að pólitíkusar karpi um þá sem
sækja um dómarastöðu í Hæstarétti
segir hann að honum þyki ekkert að
því að fram fari umræða um þá sem
sækjast efdr slíku embætti. „Mér
finnst það heilbrigðara en afgreiðslur
í reykfylltum bakherbergjum í dóms-
málaráðuneytinu, þar sem ákvarðan-
ir eru teknar sem kærunefiid jafnrétt-
ismála og umboðsmaður Alþingis
telja ekki löglegar,“ segir Lúðvík.
„Núverandi fyrirkomulag er frá-
leitt þar sem gengið hefur verið lengra
en áður við að ganga gegn viðteknum
sjónarmiðum við skipan dómara. Við
viljum ekki að menn komist upp með
að skipa í réttinn frændur og kunn-
ingja,“ segir Lúðvík. „Það er ekki gott
ef hæfir lögmenn þurfa að hugsa sig
vandlega um hvort það sé þess virði
að þeir sæki um stöðu í Hæstarétti."
Lúðvík vill að sátt riki um skipan
hæstaréttardómara til að aukin virð-
ing verði borin fyrir réttinum. Leið til
þess sé að pólitísk samstaða skapist
um þá sem sinna þessum mikilvægu
embættum. Umræðan vaknar að
nýju eftir að Pétur Kr. Hafstein lýsti
yfir að hann ætlaði að hætta sem
hæstaréttardómari £ haust og fara í
sagnfræðinám.
Sigurður Lindal prófessor, emerit-
us í lögfræði, sagði í DV í gær að nauð-
synlegt væri að breyta lögum um
skipan hæstaréttardómara til að sátt
skapist um dómara sem ráðnir eru til
réttarins. „Ég tel að í ljósi umdeildrar
ráðningar Ólafs Barkar Þorvaldssonar
og annarra henni eldri, að reglum um
skipan hæstaréttardómara verði
breytt," segir Sigurður. Sigurður segir
einkum tvær leiðir færar við skipan
dómaranna. Annað hvort sú að sér-
stök dómnefnd taki fyrir þær um-
sagnir sem berast eða að Alþingi verði
hreinlega látið skera úr um úrskurð-
inn á sama hátt
og tíðkast
víða er-
lendis -
og þá
hugsan-
lega með
auknum
meirihluta.
kgb@dv.is
Lúövík Bergvinsson Við
viljum ekki að menn kom-
ist upp með að skipa í rétt-
inn frændur og kunningja.
Utsalaaa á 10O notuðum bílum hjá Brimborg. Komdu núna.
Skoðaðu bílana í smáauglýsingum DV og Fréttablaðsins.
Skoðaðu bílana á www.brimborg.is. Komdu í Brimborg Reykjavík, Akureyri.
• ,
brimborg
Öruggur stadur til ad vera á
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | Brimborg Reykjanesbæ: Njarðarbraut 3, sími 422 7500 | www.brimborg.is