Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2004, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNl2004
Danir og Svíar eru komnir áfram í átta liða úrslit Evrópumótsins eftir
jafntefli í leik liðanna í C-riðli í gærkvöld. ítalir sitja hins vegar eftir
með sárt ennið þrátt fyrir sigur gegn Búlgörum.
Fréttir DV
• Portúgalski miðvörðurinn
Ricardo Carvalho segist kunna ráð
til að stöðva hinn sjóðheita Wayne
Rooney. Þjóðirnar mætast í fyrsta
leik 8-liða úrslitanna á morgun og
segir Carvalho að hann geti vel
ráðið við Rooney fyrst hann réð við
sóknarmenn Spánverja. „Rooney
hefur sýnt að hann er frábær
knattspyrnumaður og er mjög
mikilvægur fyrir enska liðið. Eg held
að allir geta verið sammála um það.
En leiðin til að stöðva hann er sú að
gefa honum ekkert pláss og hafa
stjórn á hreyfingum hans. Ég hef
spilað gegn mörgum topp-
framherjum og lykilatriðið er að
halda einbeitingu allan leikinn,"
segir Carvalho, sem hefur vakið
mikla athygli í keppninni fyrir góða
frammistöðu og er sagður undir
smásjánni hjá mörgum af stærstu
félögsliðum Evrópu. Hvernig
honum reiðir af á síðan eftir að
koma í ljós á morgun.
• Frönsku varnarmennirnir Willy
Sagnol og WUliam Gailas eru mjög
tæpir fyrir leik liðsins gegn
Grikkjum á föstudag í 8-liða
úrslitum eftir að hafa meiðst í
leiknum gegn Sviss í fyrradag.
Sagnol meiddist á hendi og Gallas
snéri nokkuð illa á sér ökklann.
Jacques Santini, þjálfari Frakka,
segir að það séu sérstaklega meiðsli
Sagnol sem h'ti illa út. „Ég fékk
þungt högg á sömu hendi og ég
braut í leik með Bayern Munchen
fyrir fjórum mánuðum. Ég er að
vona að hún sé ekki brotin aftur,"
sagði Sagnol. Báðir leikmennirnir
munu gangast undir læknisskoðun
hið fyrsta.
• Gary Lineker, fyrrum
sóknarmaður enska landsliðsins,
segir að Wayne Rooney hafi alla
burði til að verða einn af bestu
leikmönnum allra tíma. Liniker
segir enginn vafa á því að Rooney
hafí verið besti leikmaður EM það
sem af er og það sé einstakt afrek
þegar horft er til ungs aldurs hans.
„Ég held að hann geti orðið besti
leikmaður sem Englendingar hafa
átt,“ segir Lineker og bætir við að
ómögulegt sé að líkja honum við
sjálfan sig sem leikmanni. „Ég var
potari og markaskorari, en hann er
einn af þessum skapandi
leikmönnum sem koma sér sjálfír í
færin. Hann þarf ekki hð til að
skapa færin fyrir sig. Hann er miklu
betri en ég,“ segir Lineker, sem nú
starfar sem sérfræðingur á BBC-
sjónvarpsstöðinni í Bretlandi.
Allt í tímu tjfini
hjfi Trapattoni
ítalir eru á leiðinni frá Portúgal eftir aðeins þrjá leiki og
sneypuför á Evrópumótið í knattspyrnu. Sigur gegn Búlgörum í
gær nægði ftölum ekki því Danir og Svíar gerðu jafntefli, 2-2, og
það nægðu Norðurlandaþjóðunum til að komast áfram í átta
liða úrslitin og skilja ítala eftir með sárt enni og sviknar vonir.
Það er líka morgunljóst að Giovanni Trapattoni, þjálfari ítala,
verður á morgunverðarborði Itala, matreiddur að hætti hússins
af ítölskum fjölmiðlum sem kunna þá list, að taka menn af lífi án
dóms og laga, best allra.
Dramatíkin í leikjum gær-
kvöldsins var gífurleg, Fyrir leikina
var ljóst að ef Danir og Svíar myndu
gera jafntefli, 2-2, þá skiptu úrslit
leiks ftala og Búlgara engu máli því
Danir og Svíar voru þá með betri
árangur í innbyrðisviðureignum
liðarxna þriggja. Einhverjir höfðu
orð á því að grannaþjóðirnar
myndu gera með sér samkomulag
og þeir hinir sömu geta hafíst
handa við að smíða
samsæriskenningar því úrslitin í
leik Dana og Svía urðu nákvæmlega
þau sem liðin þurftu.
Það stefndi allt í sigur Dana, aht
þar til ein mínúta var til leiksloka.
Þá jafnaði varamaðurinn Mathias
Jonsson metin fyrir Svía og
þrumaði þar með ítölunum
Criðttix*
EMífótbolta C-riðitt
É
i
Danmörk 2-2 Svfþjóö
CMifótbolta
é>—-------------
2-1
(0-1)
ftalía 2-1 Búlgaría
1-0 Tomasson, skot (28.) 0-1 Martin Petrov, víti (44.)
1-1 Larsson, víti (47.) 1-1 Perrotta, skot (47.)
2-1 Tomasson, skot (66.) 2-1 Cassano, skot (90.)
2-2 Jonsson skot (89.)
Tölfræðin: Tölfræðín:
16 Skot 15 25 Skot 10
6 Skot á mark 7 13 Skot á mark 5
4 Varin skot markvaröa 2 4 Varin skot markvarða 7
10 Skot innan teigs 13 18 Skot innan teigs 3
7 Horn 9 6 Hom 3
18 Aukaspyrnur fengnar 16 22 Aukaspyrnur fengnar 25
0 Rangstööur 3 11 Rangstöður 2
0 Gul spjöld 2 1 Gul spjöld 4
0 Rauð spjöld 0 0 Rauð spjöld 0
52% Bolti innan liðs 48% 52% Bolti innan liðs 48%
MAÐUR LEIKSINS:
Jon Dahl Tomasson, Danmörku
MAÐUR LEIKSINS:
Antonio Cassano, ftalíu
LOKASTAÐAN I C-RIÐLINUM
€uro2oof
PORTUGAL
22. júní
Úrslit og markaskorarar:
14. júni
Danmörk-ftalla 0-0
Svlþjóð-Búlgaría 5-0
1-0 Ljungberg (32.), 2-0 Larsson
(57.), 3-0 Larsson (58.), 4-0 Ibra-
himovic, víti (78.), 5-0 Allbáck (90.)
18. júní
Búlgaría-Danmörk 0-2
0-1 Tomasson (44.), 0-2 Grönkjaer
(90.).
(talía-Svíþjóð 1-1
1-0Cassano (37.), 1-1 Ibrahomivic
(85.)
(talía—Búlgaría 1-2
0-1 M. Petrov, víti (28.), 1 (47.), 1-2 Cassano (90.). -1 Perotta
Danmörk-Svíþjóð 2-2
1-0Tomasson (28.), 1-1 Larsson, vfti (47.), 2-1 Tomasson (65.), 2-2
Jonsson (89.).
Lokastaðan:
Svlþjóð 3 12 0 8-3 5
Danmörk 3 12 0 4-2 5
Italla 3 12 0 3-2 5
Búlgaría 3 0 0 3 1-9 0
8 liða úrslitin:
Lau. 26.júní 18.45
Svlþjóð- Liðið 12. sæti I D-riðli
Sun. 27. júní 18.45
Tékkland- Danmörk
„Við förum heim með höfuðið
hátt, sérstakiega þar sem við
áttum skilið að vinna leikinn gegn Svíum í
síðustu umferð."
endanlega út úr keppninni og heim
til Rómar með frímerki af ódýrustu
gerð á rassinum.
Mark Cassano skipti ekki
máli
Það skipti litlu máli þótt Antonio
Cassano kæmi ítölum yfir í
uppbótartíma gegn Búlgörum og
það var reyndar óborganlegt að
fylgjast með blessuðum drengnum
eftir markið. Fyrst hélt hann að
hann hefði tryggt ítölum áfram og
fagnaði eins og óður maður en
síðan rann upp fyrir honum að
staðan var jöfn, 2-2, hjá Svíum og
Dönum og þá datt mesti botninn úr
fagnaðarlátum hans og félaga hans.
Heim með höfuðið hátt
Giovanni Trapattoni, þjálfari
ftala, sem á ekki von á góðu frá
ítölskum fjölmiðlum í dag, var þó
býsna brattur eftir leikinn og sagði
sína menn hafa átt skilið að
komast áfram.
„Við förum heim með höfuðið
hátt, sérstaklega þar sem við áttum
skilið að vinna leikinn gegn Svíum
í síðustu umferð," sagði
Trapattoni en það má með
ólíkindum teljast ef hann
verður mikið lengur í
starfi hjá ítalska
knattspyrnusambandinu.
Frábær bardagi
Lars Lagerback, annar
þjálfara Svía, var í sjöunda
2-2,