Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2004, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNf2004
Sport DV
%
• Sven-Göran Eriksson,
landsiiðsþjálfari Englendinga, hefur
trú á því að lið hans geti unnið
Evrópumótið í Portúgal ef það
spilar áfram líkt og það gerði gegn
Króatíu. „Ef við spilum jafnvel í
næstu leikjum og við gerðum í fyrri
hálfleik gegn Króötum þá verður
erfitt að sigra okkur. Við spiluðum
mjög vel í fyrri hálfleik og réðum
algjörlega ferðinni. Það var mjög
ósanngjarnt að þeir skyldu ná að
skora en í síðari hálfleik gerðum við
það sem þurfti. Ég er mjög stoltur af
mínum mönnum en við þurfum að
ná okkur niður á jörðina fljótt og
örugglega," sagði Eriksson en hans
menn mæta Portúgal í átta liða
úrslitum á morgun.
• Inaki Saez, þjálfari Spánverja,
sem ruku beint út úr Evrópumótinu
í Portúgal eftir aðeins einn sigur í
riðlakeppninni er ekki maður sem
bugast við smá mótlæti. Hann
hefur verið harkalega gagnrýndur
fyrir slælega frammistöðu liðsins en
þessi 61 árs gamli herramaður ætlar
ekki að láta deigan síga þrátt fyrir
þetta og segist ætla að leiða liðið í
undankeppni HM 2006. „Ég geri
mér grein fyrir því að við spiluðum
illa á mótinu og finnst það mjög
leiðinlegt fyrir hönd leikmannanna
og allra þeirra sem fylgdu liðinu
eftir. Það er hins vegar mikil
áskorun fyrir mig að leiða liðið í
næstu undankeppni og komast yfir
vonbrigði þessarar keppni," sagði
Saez sem hefur þrátt fyrir allt
aðeins tapað tveimur af 23 leikjum
sem hann hefur stýrt liðinu.
Tekup Rooney viö
krúnunni ai Pele?
Enska ungstirnið Wayne Rooney hefur heldur betur slegið í gegn
á Evrópumótinu í Portúgal. Rooney, sem er aðeins átján ára
gamalJ, hefur skorað fjögur mörk í þremur fyrstu leikjum
Englendinga og menn eru þegar farnir að líkja honum við sjálfan
Pele sem var sautján ára þegar hann sló í gegn með
Brasilíumönnum á HM í Svíþjóð 1958.
Sven-Göran Eriksson, þjálfari
enska landsfiðsins, reyndi að halda
aftur af hrósyrðunum í garð
Rooneys eftir
leikinn
gegn
Króötum á mánudaginn en átti erfitt
með það.
„Hvað er hægt að segja um
Rooney sem hefur ekki verið sagt
áður. Hann er frábær, tvö mörk og
gríðarlegur dugnaður, hann er
frábær. Ég man ekki eftir því að
nokkur ungur leikmaður hafi haft
slík áhrif á stórmóti síðan hinn
sautján ára Pele lagði heiminn að
fótum sér á HM í Svíþjóð," sagði
Eriksson.
Það er kannski ótrúiegt að
Eriksson beri Rooney saman við
Pele, besta knattspymumann
allra tíma en það er þó margt
líkt með þessum tveimur
snjöllum köppum þegar grannt
er skoðað.
Líkt og Pele, sem aldist upp í
fátækrahverfi í Rio de Janeiro,
aldist Rooney upp í miður fínu
verkamannahverfi í Croxeth í
Liverpool. Rooney, likt
og Pele, byrjaði
ungur að
spila með
aðalliði síns
félags og
hann er bæði yngsti leikmaðurinn
sem hefur spilað fyrir enska
landsliðið og sá yngsti sem hefur
skorað fyrir fiðið. Samanburðurinn
við Pele nær ekki bara til sögulegra
staðreyndra því leikstfll og
líkamsbygging þeirra félaga er mjög
svipuð.
Pele var ekki hár í loftinu en hann
var fikamlega sterkur, harður af sér,
fljótur og vel gefinn leikmaður. Pele
skoraði ekki bara mörk heldur lagði
þau líka upp og var harður í
tæklingum. Þrátt fyrir að hann væri
tafinn vera ímynd hins háttvfsa
leikmanns þá var hann duglegur við
að passa sjálfan sig.
Rooney hefur á sama hátt gríðar-
legan hraða og kraft miðað við
ungan aldur. Rooney hefur einnig
mikið skap og segir það hjálpa sér
inni á vellinum þar sem hann fer af
110% krafti í allar tæklingar. Þegar
Rooney hefur náð að hemja skap sitt
betur á það væntanlega eftir að gera
hann að enn betri leikmanni en
hann er í dag.
Mörkin sem Rooney skoraði gegn
Króatíu voru glæsileg. Fyrra markið
var fafibyssuskot fyrir utan vítateig
og 1 því síðara sýndi hann rólyndi og
drápseðli hins sanna markaskorara.
Hann sýndi líka yfirsýn sína og
leikskilning þegar hann lagði upp
fyrsta markið fyrir Paul Scholes. Það,
hvernig hann fann Scholes ffían í
troðnum teignum og skallaði bolt-
Samanburðurinn við
Pele nær ekki bara til
sögulegra staðreynda
því leikstíll og
líkamsbygging þeirra
félaga er mjög svipuð.
ann til hans. Hugsun Pele var á sama
hátt hröð og snilldarleg.
Það muna allir þegar Pele reyndi
að senda boltann yfir markvörð
Tékka frá miðju í heimsmeistara-
keppninni árið 1970 í Mexíkó og hið
fræga atvik þegar hann plataði
markvörð Úrúgvæa upp úr skónum
á eftirminnilegan hátt. Hvorugt
þessara atvika endaði með marki en
þau lifa vegna fegurðarinnar og
hugmyndaflugsins við framkvæmd
þeirra.
Þrátt fyrir að Rooney og Pele séu
eins lfldr og raun ber vitni þá er
ómögulegt að halda því fram að
Rooney eigi eftir að verða jafngóður
og Pele var. Það eru hins vegar ýmis
tákn á lofti um að hann geti orðið
það en Rooney mun væntanlega
þurfa að bera viðumefnið „hinn nýi
Pele, eitthvað áfram. Það hafa margir
verið tilkallaðir en enginn útvafinn
sem arftaki Pele en kannski að átján
ára gamall strákur frá Liverpool nái
því - annað eins hefur nú gerst.
Ivica Olic féll á lyfjaprófi en slapp við refsingu
KR-FRAM
3-0
Ferdinand er æfur
Rio Ferdinand, vamarmaður
Manchester United, er brjálaður
eftir að Ivica Olic, leiiónaður
Króata, var sleppt með enga
refsingu á bakinu eftir að hafa
fallið á lyfjaprófi eftir leik liðsins
gegn Frökkum á EM í síðustu viku.
Olic slapp vegna þess að um
læknamistök hafði verið að ræða,
en Olic var gefið ólöglegt lyf þegar
hann rifbeinsbrotnaði fyrir
nokkrum vikum. Læknamir hefðu
átt að fylla út tilskifin leyfi til að
gefa Olic lyfið Methylpres-
nisolone, en sannað þótti að Olic
hefði ekki haft minnstu vitund um
að það þyrfti að fá þetta sérstaka
leyfi. Ástæðan sem læknarnir gáfu
var einfaldlega gleymska, og vom
þeir aðvaraðir fyrir athæfið ásamt
því að fá smávægilega sekt.
Eins og flestum ætti að vera
kunnugt var Ferdinand dæmdur í
átta mánaða leikbann eftir að hafa
gleymt að mæta í lyfjapróf á
sínum tíma, og missti í kjölfarið af
stómm hluta tímabilsins í ensku
úrvalsdeildinni sem og Evrópu-
keppninni sem nú stendur yfir.
Þótt málin séu ekki alveg eins er
vissulega mikill svipur með þeim,
og er þar „gleymska" lykilorðið að
mati Ferdinand.
„Þetta er ótrúlegt. UEFA sam-
þykkti útskýringar Olic á
stundinni en hafði engan áhuga á
að hlusta á mínar á sínum tíma,"
segir Ferdinand furðu lostinn. „Ég
féll aldrei á lyfjaprófi, en svo
virðist sem að sömu reglur gildi
ekki um alla leikmenn. Ég er ekki
að segja að Olic eigi að vera settur
í leikbann. Ég er aðeins að segja að
ég hafði góða og gilda ástæðu en
enginn var tilbúinn að hlusta á
hana. Ég botna bara ekkert 1
þessari mismunun," segir
Ferdinand.
Talsmaður frá UEFA sagði að í
tilviki Olic hefði um misskilning
veriö að ræða sem leikmaðurinn
ætti ekki að gjalda fyrir. „Það var
skylda læknisins að láta lækni
króatíska landsliðsins vita af
lyfinu en hann gerði það ekki. Það
er þess vegna sem það voru þeir
sem fengu sekt og aðvörun."
Rio Ferdlnand Telur sér vera mismunaö vegna þess að Olic fær enga refsingu fyrir
svipaö brot og Ferdinand var dæmdur látta mánaða bann fyrir.
7. umferö - KR-völlur-21. Júnf
Dómari: Egill Már Markússon (4).
Áhorfendur: 1546. Gaefii leiks: 2.
Gul spjöld: KR: Kjartan Henry (47.), -
Fram: Andrés (32.), Eggert (70.).
Raufi spjöld: Engin.
Mörk
1 -0 Amar Gunnlaugsson 41.
vítaspyrna Kristinn H. fiskaði
2- 0 Guðmundur Benediktsson 87.
skot úr teig náði boltanum
3- 0 Guðmundur Benediktsson 90.
skalli úr teig Sigurður Ragnar
Leikmenn KR:
Kristján Finnbogason 3
Jökull Elísarbetarson 3
Gunnar Einarsson 4
Kristján Örn Sigurðsson 4
Bjarni Þorsteinsson 3
(37., Kristinn Magnússon 3)
Ágúst Þór Gylfason 3
Petr Podzemsky 3
Arnar Jón Sigurgeirsson 4
Kristinn Hafliðason 4
ArnarGunnlaugsson 2
(67., Guðmundur Benediktsson 5)
Kjartan Henry Finnbogason 2
(75., Sigurður Ragnar Eyjólfsson 3)
Leikmenn Fram:
Gunnar Sigurðsson 4
Andrés Jónsson 2
(63., Gunnar Þór Gunnarsson 3)
Hans Fróði Hansen 3
Eggert Stefánsson 2
Ragnar Árnason 3
Fróði Benjamínsen 1
(46., Andri Steinn Birgisson 2)
Ingv ar Ólafsson 3
Baldur Bjarnason 2
Heiðar Geir Júlíusson 4
Andri Fannar Ottósson 2
(79., Kristján Brooks -)
Ríkharður Daðason 3
Tölfræðin:
Skot (i mark): 16-6 (9-3)
Varin skot: Kristján 3 - Gunnar 6.
Horn: 7-1 Rangstööur: 0-7
Aukaspyrnur fengnar: 21-15.
BESTUR Á VELLINUM:
Guðmundur Benediktsson, KR
K A R L A R ,
LANDSBANKADEILD jj(
Staðan:
Fylkir 6 4 2 0 9-3 14
KR 7 3 2 2 9-7 11
Keflavík 6 3 1 2 7-9 10
(BV 6 2 3 1 10-6 9
(A 6 2 3 1 7-5 9
FH 6 2 3 1 7-6 9
KA 6 2 1 3 5-6 7
Grindavík 6 1 4 1 5-6 7
Fram 7 1 2 4 7-11 5
Víkingur 6 0 1 5 3-10 1
Markahæstir:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV 5
Grétar Hjartarson, Grindavík 4
Arnar Gunnlaugsson, KR 4
Atli Sveinn Þórarinsson, KA 4
Magnús Már Lúðvíksson, (BV 3
Sævar Þór Gíslason, Fylki 3
Andri Fannar Ottósson, Fram 2
BjörgólfurTakefusa, Fylki 2
Gunnlaugur Jónsson, (A 2
Haraldur Ingólfsson, (A 2
Ríkharöur Daðason, Fram 2
Tommy Nielsen, FH 2
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fylki 2
Þorvaldur Makan, Fram 2
Næstu leikir:
V(kingur-(BV Mið. 23. júnl 19.15
FH-Grindavík Mið. 23. júni 19.15
Keflavík-(A Mið. 23. júní 19.15
KA-Fylkir Mið. 23. júni 19.15
1