Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2004, Side 21
JXV Sport
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ2004 21
KR-ingar unnu sinn þriðja heimaleik í röð og komust í 2. sæti Landsbankadeildar karla með 3-0 sigri á
Fram í síðkvöldsleik á KR-vellinum. Hetja liðsins hafði ekki skorað deildarmark í þrjú ár.
Draumainnkoma Guðmundar
■
■
Er Wayne Roortey jafngóður og Pele?
lelða það I Ijos en Roonejfhetuí iþað minmtc síegið (gegh ð
. þessu Evrópwnót' rvo um rnunar. Se
KR-ingar báru sigurorð af Frömurum á KR-velli á mánudags-
kvöldið í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Lokatölur urðu
3-0 í frekar litlausum og leiðinlegum leik. KR-ingar eru að þétt-
ast með hverjum leik, vörnin er orðin gríðarsterk og miðjan skil-
ar sínu. Það sem vantar helst er beittari framlína en innkoma
Guðmundar Benediktssonar gefur KR-ingum í það minnsta ein-
hver fyrirheit.
Framarar voru ákaflega bidausir
mestallan leikinn og allan neista
vantaði í liðið sem er hrikalega hug-
myndasnautt - verði ekki gerð brag-
arbót fljótlega á leik liðsins, tja, þá
vita allir hvað bíður þess. Vissulega
voru aðstæður ekkert sérlega góðar
fyrir knattspymuiðkun, strekkings-
vindur og í seinni hálfleiknum trufl-
aði sólin nokkuð. Það afsakar þó
ekki daufan leik.
Heimamenn voru sterkari nán-
ast allan tímann en sóknarpressa var
h'til sem engin en þó leit ein og ein
ágæt sóknarlota dagsins ljós. Fram-
arar náðu ágætum kafla í upphafi
síðari hálfleiks sem varði í rétt rúmt
kortér - síðan ekki söguna meir. KR-
ingum gekk þó bölvanlega að tryggja
sigurinn endanlega. Það var ekki fyrr
en Guðmundur Benediktsson, sem
kom inná sem varamaður í stað Am-
ars Gunnlaugssonar á 67. mínútu,
tók til sinna ráða og skoraði tvö
mörk á fjögurra mínútna kafla, að
úrshtin vom ljós.
Tekur einn dag í einu
Guðmundur var hógværðin upp-
máluð þegar blaðamaður náði af
honum tah í leikslok og vildi hann
sem minnst gera úr sínum þætti í
sigrinum: „Þetta var auðvitað
draumainnkoma og alltaf mjög
gaman að skora. Stigin þrjú em þó
það sem gladdi mest og ég tel að við
séum á leið í rétta átt. Við emm bún-
ir að ná að þétta vörnina og það
fleytir okkur hálfa leið að sigri og
gerir miðjumönnunum og sóknar-
mönnunum lífið mikið léttara. Nú er
ætlunin einfaldlega að byggja ofan á
þetta sem komið er og vonandi
skerpa aðeins á sóknarleiknum." En
er Gummi að nálgast sitt gamla góða
form? „Ég tek einn dag í einu í þessu
- hef lært það af reynslunni að það
þýðir lítið að hugsa eitthvað fram í
tímann - ef ég verð heill á morgun
þá er ég sáttur,“ sagði Guðmundur
Benediktsson.
Ríkharður Daðason, hafði þetta
að segja eftir leik: „Það var ekki svo
mikið sem skildi liðin að fyrr en við
færðum þeim annað markið á silfur-
fati undir lokin og þá var leikurinn
búinn fyrir okkur. Við vorum inni
í leiknum og mér fannst við
meira ógnandi en þeir í seinni
hálfleik, aht fram að öðru mark-
inu. Rokið gerði mönnum erfitt
fyrir og það var ekki auðvelt að
setja upp góðar sóknir og leik-
urinn hefur líklega ekki verið
neitt sérstaklega skemmtilegur
á að horfa.
Við verðum núna að gjöra
svo vel og taka okkur saman
andlitinu ef ekki á iha að fara. Við
höfum fengið eitt stig í síðustu
þremur leikjum og finnst það held-
ur rýrt miðað við hvemig liðið
búið að spila. Þetta er nokkuð
misskipt hjá okkur, við virð-
umst ekki alveg hitta á góðan leik hjá
öllu liðinu, það eru yfirleitt nokkrir í
lagi og nokkrir ekki og við þurfum að
stilla okkur betur saman þannig að
við náum allir að spila góðan leik,"
sagði Ríkharður Daðason.
sms@dv.is
Tvö mörk Guðmundur
Benediktsson innsiglaði sigur KR-
inga á Fram með tveimur
mörkum i blálokin.
LÖNG BIÐ GUÐMUNDAR
Guðmundur Benediktsson hafði
ekki skorað deildarmarkfyrir KR í
þrjú ár þegar hann skoraði tvö
mörk gegn Fram (fyrrakvöld:
Bifi Guðmundar eftir marki:
Leikir: 25
Mínútur: 897
Bifi Guðmundar eftir marki utan
af velli (ekki úr víti):
Leikir: 36
Mínútur: 1.828
Ferill Gufimundar mefi KR:
2004 6 leiklr / 2 mörk
2003 lék ekki vegna meiðsla
2002 2001 14leikir/0mörk 11 leikir/ 1 mark
2000 16 leikír/5 mörk
1999 18leikir/9mörk
1998 18leikir/7mörk
1997 1996 11 leikir/3mörk 14lelklr/9mörk
1995 Samtals 14leikir/4mörk 122 leiklr/40mörk
Gufimundur lék áður með Þór frá
Akureyri áður en hann kom í
Vesturbæinn fyrir rétt tæpum tíu
árum.