Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2004, Page 18
:t m áváívs i flUDA.- uv.Qiflí
78 ÞRIÐJUDACUR 29. JÚNÍ2004
toqi
Sport DV
*
f.
*
*
Milan Baros er markahæsti leikmaður Evrópumótsins í Portúgal með fimm mörk í
fjórum leikjum. Hann hefur skorað í öllum leikjum Tékka og er aðeins einum leik
frá því að jafna met Michel Platini, sem skoraði í fimm leikjum í röð á EM 1984.
Bansnn Bnrns
• Hinn geðþekki þýski tannlæknir
Markus Merk hefur verið valinn til
þess að dæma úrslitaleik EM sem
fram fer á sunnudag. Merk hefur
þótt dæma vel á EM og á það fylli-
lega skilið að fá að dæma úrslita-
leikinn. Pierluigi Collina mun
dæma undanúrslitaleik Hollend-
inga og Portúgala en Svíinn Anders
Frisk dæmir hinn undanúrslita-
leikinn sem er á milli Tékka og
Grikkja. Ekkert pláss er fyrir
Svisslendinginn Urs Maier sem
lengi vel var talinn líklegur til þess
að dæma úrslitaleikinn en öll lætin
í kringum leik Englendinga og
Portúgala hafa gert það að verkum
að hann hefur pakkað saman og er
farinn heim.
Milan Baros mætti til leiks í Portúgal sem leikmaður sem hafði átt
einkar erfitt uppdráttar hjá Liverpool, og engu líkara en að Gerard
Houllier hafi gleymt honum. Þegar hann heldur aftur til Anfield
gæti farið svo að hann haldi á gullskónum, nýbúinn að sanna sig
sem mesti markaskorari lokakeppni Evrópumóts í 20 ár.
• Franska knattspyrnusambandið
er farið að huga að eftirmanni
Jacques Santini sem þjálfara '
franska landsliðsins og tveir menn
eru líklegastir til að hreppa
hnossið. Fyrst skal nefna Jean
Tigana, fyrrum þjálfara Fulham og
Monaco, en hann er í miklum
metum í Frakklandi enda var hann
í frægu liði Frakka sem vann EM
1984. Hann er talinn vera fyrsti
valkostur en það kemur frekar á
óvart að sá sem næst er nefndur er
gamla varnarbuffið Laurent Blanc.
Hann hefur aldrei þjálfað og er
nýlega búinn að leggja skóna á
hilluna. Tveir aðrir menn hafa
líka verið orðaðir við stöðuna
en þeir eru ekki taldir vera
jafn heitir og Tigana og Blanc.
Það eru Didier Deschamps,
fyrrum fyrirliði landsliðsins og
þjálfari Monaco, og Bruno
Metsu sem gerði góða hluti með
landsliði Senegal á HM 2002.
Hann þjálfar landslið
Sameinuðu arabísku
furstadæmanna í dag og tekur
feitan pening fyrir.
m
. c \
Ift:
• Danski framherjinn Ebbe Sand
tilkynnti eftir leik Dana og Tékka að
hann væri hættur að leika með
danska landsliðinu. Sand gat
reyndar ekki leikið með liðinu í
leiknum vegna meiðsla. Ástæða
þess að hann hættir með lands-
liðinu er svipuð og hjá Alan Shearer
á sínum tíma - hann vill nota alla
sína krafta með félagsliði sínu,
Schalke. „Mér finnst að ég hafi ekki
lengur orku til þess að spila bæði
fyrir félagshð og landslið," sagði
Sand sem er orðinn 31 árs. „Þetta
er mjög erfitt líkamlega og ég
einfaldega sé ekki fram á að geta
þetta mikið lengur. Sand lék 66
landsleiki fyrir Dani og skoraði í
þeim 22 mörk. Hann fékk krabba-
mein í eistun 1998 en vann sig úr
þeim veikindum og komst aftur í
landsliðið.
„Ef einhver hefði sagt við mig
fyrir keppnina að ég myndi skora
fimm mörk til að hjálpa Tékkum að
komast í undanúrslit, þá hefði ég
hlegið," sagði hinn 22 ára gamli
framherji þegar hann hafði nýlokið
við að skora tvö mörk fyrir Tékka
gegn Dönum í 8-liða úrslitunum.
„Það voru erfiðar tímar hjá mér á
síðasta tímabili, fyrst með meiðslin
og síðan að fá ekki tækifæri með
Liverpool, en ég vissi alltaf að ég
yrði tilbúinn fyrir EM,“ segir Baros.
Og tilbúinn var hann. Mörkin
hans fimm hafa verið hvert öðru
glæsilegra og er það aðeins Michael
Platini sem hefur skorað fleiri mörk
á einu og sama Evrópumótinu - alls
níu talsins árið 1984, þegar
hann leiddi lið Frakka til
sigurs. Og ef Baros
skorar í næsta leik
mun hann jafna
annað met í eigu
Platini - að skora í
fimm leikjum á
Evrópumótinu
í röð.
Þessi
glæsta
frammistaða Baros kemur auk þess
á hárréttu augnabliki og má telja
líklegt að hann hafi sannfært Rafael
Benitez, nýjan stjóra Liverpool, um
að hann sé rétti maðurinn til að
leiða sóknina á næstu leiktíð.
Michael Owen hvað?
Óánægður hjá Liverpool
„Gerard Houllier tók úr mér allt
sjálfstraust. Hann valdi mig aldrei í
liðið og ég hafði íhugað alvarlega að
fara frá félaginu í sumar. Það var
mjög sárt að fá ekki að spila. Ég var
í fínu formi og mér fannst þetta
ósanngjarnt," sagði Baros við fjöl-
miðla í Portúgal í vikunni.
Það var ekki nema rúmur
mánuður liðinn af síðasta keppnis-
tímabili þegar Baros ökklabrotnaði
í leik gegn Blackburn. Hann var
fimm mánuði að jafna sig og var
ekki kominn í almennilegt leikform
fyrr en í mars. Baros virkaði frfskur
og endurnærður þegar hann snéri
aftur, skoraði mark f deildinni og
annað í bikarnum og var að standa
sig mun betur en Michael Owen.
Það var síðan í leik gegn
Manchester United sem Houllier
ákvað, án nokkurra útskýringa, að
taka Baros úr leikmannahópnum
og setja Harry Kewell fyrir aftan
Owen einan í framlínunni.
Liverpool vann leikinn
sannfærandi 1-0 og Baros eyddi
restinni af tímabilinu ýmist á
tréverkinu eða uppi í áhorf-
endastúku.
„Það kom mér á óvart að vera
hunsaður, enda fannst mér ég vera
að standa mig vel,“ segir Baros, sem
hefur skorað 21 mark í 29 lands-
leikjum fyrir Tékka, þar af 11 mörk í
síðustu 10 landsleikjum. „Ég
sparaði krafta mína fyrir EM. En ég
er viss um að ég geti spilað á sama
hátt ef ég bara fengi tækifæri til
þess hjá Liverpool," bætir Baros
við.
Gullskórinn í vændum?
Með tilkomu Benitez í
stjórastólinn sér Baros fram á
breytta tíma. „Allir í leikmanna-
hópnum byrja á sama stað þegar
nýr þjálfari kemur til sögunnar.
Allir þurfa að sanna sig. Nú langar
mig að vera um kyrrt og verða hluti
af liði Benitez," segir Baros.
Samherji hans hjá Liverpool og
Tékklandi, Vladimir Smicer, lítur
stórt á Baros. „Ef hann er með
sjálfstraustið í lagi þá er Milan
stórkostlegur. Og hann er ekki
nema 22 ára, gleymið því ekki,"
segir Smicer.
Því hefur stundum verið fleygt að
Baros leiki öðruvísi með landsliðinu
en Liverpool. Hann sjálfur segir það
vera tómt kjaftæði. „Ég hef minn
leikstíl og spila alltaf eins, hvort sem
það er með Liverpool eða
Tékklandi. Nú vona ég bara að ég
nái að halda þessu formi fram á
næsta tímabil. Og ég er viss um að
ég get það,“ segir Baros.
Á þessari stundu getur enginn
hruflað við Baros. Wayne Rooney er
úr leik, og Ruud Van Nistelrooy er
með einu marki
„Efhann er með
sjálfstraustið í lagi þá
erMilan stórkost-
legur. Og hann er ekki
nema 22 ára, gleymið
því ekki."
minna í keppninni. Hann er á góðri
leið með að verða maður mótsins
og með hliðsjón af sóknartilburðum
Tékka, má telja líklegt að hann eigi
eftir að bæta við. Liðið hefur sigrað í
síðustu níu landsleikjum og skorað
tvö mörk eða meira í þeim öllum.
vignir@dvJs
BAROS MEÐTÉKKLANDI
Milan Baros hefur skorað í sex
síðustu landsleikjum með tékk-
neska landsliðinu og 17 mörk í
síðustu 18 landsleikjum frá árinu
2002.
Leikir og mörk eftir árum:
2001 8 leikir/4 mörk
2002 6/4
2003 7/4
2004 8/9
Samtals 29 leikir/21 mark
,Efeinhver hefði sagt við mig
fyrir keppnina að ég hefði
skorað fimm mörk til að ,
I hjálpa Tékkum f
BL komast í undan- /1
■L úrslit, þá hefði ég M
hlegið." M
Landsleikir eftir spilatíma:
Spilar 0—45 mínútur 13sinnum
Spilar 46-90 mínútur 8sinnum
Milan Baros hefur aðeins fimm
sinnum klárað heilar 90 mínútur
meðTékklandi.
Alls hefur Milan Baros skorað 21
marká þeim 1.717 mínútum
sem hann hefur spilað fyrir
tékkneska landsliðið. Það
gerir mark á tæplega 82.
mínútu fresti.
Milan Baros hefur
aðeins tvisvar leikið 90
mínútur með Tékkum
án þess að skora,
annað skiptið var
gegn (slendingum á
Laugardalsvellinum 1.
september 2001. Það var
fjórði landsleikur hans og
(sland vann leikinn 3-1.
Þegar tölfræði Baros í gegnum árin
er skoðuð sést að þarna er á ferð
markaskorari eins og þeir gerast
bestir. Það vekur því furðu að hann
skuli ekki fá fleiri tækifæri en raun
ber vitni hjá Liverpool
Liverpool:
Leikir: 61
Byrjað inn á: 30
Skipt inn á/Skipt út af 31/18
Mörk: 14
Banik Ostrava:
Leikir: 12
Byrjað inn á: 12
Skipt inn á/Skipt út af 0/0
Mörk: 15
Tékkland:
Leikir: 29
Byrjað inn á: 23
Skipt inn á/Skipt út af 6/6
Mörk: 21
Tékkland u-21:
Leikir: 14
Byrjað inn á: 8
Skipt inn á/Skipt út af 6/6
Mörk: 9
Einu af fimm
mörkunum fagnað
Milan Baros hefur skoraö
fimm mörk á þeim 279
mínútum sem hann hefur
spilað með Tékkum á
mótinu. Þetta gerir mark á
aðeins 55,8 mfnútna fresti.
Milan hefur skorað i
markanna með vinstri fæti
en hin fjögur meö þeim
hægri. Öll mörkin hans hafa
komið inn í vítateig en fyrir
utan markteig.
w