Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2004, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 1. JÚU 2004
Fréttir DV
Álft bítur kind
Það eru fleiri fuglar en
skógarþrestir sem ráðst að
þeim sem nálg-
ast hreiður
þeirra. Álft sem
gert hefur sér
hreiður við
Straumflarðará í Eyja- og
Miklaholtshreppi lætur ekki
sitt eftir liggja. Þegar Róbert
Arnar Stefánsson, forstöðu-
maður Náttúrustofu Vestur-
lands var á ferð þarna um
daginn varð hann vitni að
því þegar álftin var að reka
kind með tvö lömb ffá
hreiðrinu. Hún fór sér að
engu óðslega við reksturinn
og beit margsinnis í aftur-
enda kindarinnar og Unntí
ekki látunum fyrr en féð var
komið í nokkur hundruð
metra íjarlægð frá makan-
um og unga.
Trésmiðju-
stjori i
skattsvikamáli
Mál Rfldslögreglustjóra á
hendur fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Trésmiðjanna
Birkis, og fyrirtækisins Byrgis
ehf, var tekið fyrir í héraðs-
dómi í gær. Maðurinn,
Þórður Guðjón Jóns-
son er krafinn um 25
mifljónir sem hann er
ákærður um að hafa
ekki staðið skil á virð-
isaukaskattí og opin-
berum gjöldum. Þegar hann
rak Trésmiðjuna Birki ehf er
hann sakaður um að hafa
haldið frá skattinum 3,4
milljónum króna í virðis-
aukaskatt og 3,6 milljónir í
opinber gjöld. Trésmiðjan
varð gjaldþrota árið 2001.
Honum er gefið að sök að
hafa brotíð lög um virðis-
aukaskatt með því að greiða
ekki 13 milljónir f virðis-
aukaskatt sem hann hafði
innheimt á vegum fyrirtæk-
isins og fyrir að greiða ekki
um 6 milljónir í opinber
gjöld.
Eru utanlands-
erðir rdðherra
ílagi?
Sveinn Ólafsson
verkfræðingur
„Nei, ég hefekki spáð i því.
Geri ráð fyrir því að þær séu í
lagi. Þetta er allt upp og niður
eins og annað. Ráðherrar
þurfa nú að ferðast eins og
aðrir. Ég hefllka engar upplýs-
ingar um að þessar feröir sé
ekki í tagi.
Hann segir / Hún segir
„Ráðherraembættin eru mjög
mismunandi. Sum krefjast
þess að menn séu mikið i út-
löndum en önnurekki. Þetta
er bara partur afstarfinu. Viö
erum ekki innilokuð I okkar
heimi. Þannig að þetta er
mjög einstaklingsbundiö en
sumir fara kannski aðeins
meira en þeir þurfa. “
Katrfn Jakobsdóttir
varaformaður Vinstri Grænn
Gunnar Björgvinsson, flugvélasali í Lichtenstein, leitar nú aö flugvelli við Jökuls-
árlón fyrir gesti sem mæta munu í brúðkaup ársins þegar Gunnar giftir þar son
sinn. Gunnar er einn af ríkustu íslendingum sem uppi hafa verið; milljarðamær-
ingur sem ólst upp hjá afa sínum og ömmu og missti þau ungur.
Milljarfiamæringur pittir
son sinn við Jökulsárlón
Jökulsárlón verður vettvangur brúðkaups ársins þegar Gunnar
Björgvinsson flugvélasali í Lichtenstein giftir þar son sinn 25.
júlí næstkomandi. Hefur Gunnar verið að spyrjast fyrir um
flugvefli nálægt lóninu þannig að fljúga megi með brúðkaups-
gesti beint á staðinn. Má ætla að þeir komi víða að því Gunnar
býr bæði í Lichtenstein og Bandaríkjunum og er kvæntur
fransk-þýskri konu. Saman eiga þau tvo syni.
Gunnar Björgvinsson hefur
auðgast óheyrilega í flugvélavið-
skiptum enda haft nef fyrir slfltu
eftir að hafa byggt upp starfsemi
Cargolux í Lúxemborg á sínum
tíma. Þar stýrði Gunnar viðhalds-
þjónustu fýrirtækisins og þegar
hann hafði lært öll brögðin í flug-
vélaviðskiptunum sagði hann upp
störfum og fór eigin leiðir. Hafa fáir
íslendingar efnast jafnmikið á jafn-
skömmum tíma og Gunnar en
hann er enn á besta aldri; rúmlega
sextugur.
Það er langt í frá að Gunnar hafi
fæðst með silfurskeið í munni þótt
flest glói nú sem gull í höndum
hans. Alinn upp hjá afa sínum og
ömmu í Reykjavík sem hann misstí
ungur. Fyrir tilstilli
og hjálpsemi for-
ráðamanna flugfé-
lagsins Loftleiða
komst Gunnar í
flugvirkjanám er-
lendis og starfaði
við það fag með
þeim árangri sem
nú blasir við.
Á síðari árum
hefur Gunnar Björgvinsson verið
að dreifa áhættunni af viðskiptum
sínum og í auknum mæli snúið sér
að fasteignaviðskiptum. Hefur
hann nýverið fjárfest í töluverðum
landi í Lúxemborg þar sem hann er
að hanna hátækniiðngarða þar
sem helstu bankaleyndarmál Evr-
ópu verða tryggileg geymd á vörðu
landi. Er hátæknigarður þessi hug-
mynd Gunnars og mun hann þeg-
ar hafa samið við þýsku kauphöll-
ina um varðveislu gagna.
Annars hef-
ur Gunnar nú
mestyndi afþví
að leika golf og
veiða lax. í
tengslum við
brúðkaup sonar
síns við Jökuls-
árlóníjúlíhefur
Gunnar
tekið fSá
Það erlangtifrá
að Gunnar hafi
fæðst með silfur-
skeið i munniþótt
flestglói nú sem
guli í höndum
hans. Alinn upp
hjá afa sínum og
ömmu i Reykjavík
fM
frá Haffjarðará fyrir sig og vini
sína en þangað sækir hann árlega
sjálfum sér til yndis. Tekur hann
oft konu sína með en hún átti sér
þann draum í æsku að kynnast og
giftast norrænum manni. Sá
draumur rættist í Gunnari og nú
gifta þau son sinn í fegurð þeirrar
fósturjarðar Gunnars sem hann
yfirgaf svo ungur. Brúðurin er
bandarísk.
Eins og títt er um ríka íslend-
inga hefur Gunnar orðið fyrir mik-
illi ásókn landa sinna sem vilja
selja honum allt milli himins og
jarðar. Sem snillingur í viðskiptum
hefur Gunnar varist vel í þeim efn-
um og aðeins fallið fyrir einu til-
boði af þeirri gerð. Myndlistar-
manninum Tolla tókst að selja
Gunnari mynd eftír sig og er nú
svo komið að Gunnar er farinn að
safna Tolla. Una þeir því
báðir vel.
Gunnar BjörgVins-
. s°n flugvélasali
I Stendur fyrir brúð-
kaupi ársins 25júll
I þegar hann giftir son
I Slnn við Jökulsárlón.
I .T C' r.
f & Smíl
Tolli Tókstað selja
Gunnari mynd og
eftir það fór Gunnar
að safna Tolla.
Deilt var um ákvörðun menntamálaráðherra fram á nótt í bæjarstjórn
Hafnfirðingar æfir út í Þorgerði Katrínu
Megn óánægja er með Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra í heimabæ hennar, Hafiiar-
firði, vegna ákvörðunar hennar að
verja aðeins 5 milljónum króna til
uppbyggingar Flensborgarskóla. 195
nýnemum var í sumar hafiiað um
inngöngu í skólann vegna plássleys-
is. Bærinn hafði eyrnamerkt 50 miílj-
ónir í íyrsta áfangann, klárað undir-
búningsvinnuna og bjóst við svip-
aðri upphæð frá ríkinu.
„Hafnfirðingar hafa beðið í ára-
tugi eftir þessu. Það er löngu búið að
klára alla heimavinnu,“ segir Lúðvík
Geirsson bæjarstjóri. „Miðað við að-
eins 5 milljóna framlag rfldsins á
þessu ári sé ég ekki hvernig við mun-
um geta lokið þessu í tíma. Sem
heimamaður þekkir Þorgerður
Katrín þær aðstæður sem hér er um
að ræða," segir Lúðvík. „Þetta er al-
gjört forgangsverkefni."
Það skipti litlu máli hvort talað
var við
hægrimenn,
vinstrimenn
eða nemendur
Flensborgar-
skóla. Alls
staðar var
hægt að
greina von-
brigði með
Hafnarfjarð-
arráðherr-
Lúðv/k Geirsson,
bæjarstjóri/Hafn-
ar.f,rði „Þetta er al-
gjört forgangsverk-
efni.“
Flensborgarskólinn Ut
lit er fyrir að bið verði á
stækkun skólans.
ann. Einn nemandi sagði reið-
ur: „Þetta er ekkert annað en blaut
tuska framan í Flensborgarskólann
og nemendur hans.“ Annar sagði að
þetta væru geysileg vonbrigði; Hafn-
firðingar hefðu búist við miklu af
Þorgerði Katrínu. „Já, hún þarf að-
eins að bretta upp ermarnar," segir
Haraldur Þór Ólason, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Þorgerður Katrín segir í samtali
við DV að það sé
forgangsverk-
efni að klára
þessi mál.
Spurð um
það hvort
henni fynd-
ist 5 millj-
ónir of lág
eða of há upp-
hæð segir hún:
„Ég vil ekki fara út
í það karp.
Menn verða
að líta á þetta
jákvæðum
augum og
einbeita sér
að því að
koma upp
húsnæði sem er öllum
Hafnfirðingum til
sóma."