Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1882, Síða 43
dómara í Elliðaár-málunum, að fyrirlagi stjórnarherrans í
umboði konungs.
Október 9. Drukkna 2 menn á bát í fiskiróðri frá Skálavík í
Isafjarðarsýslu.
— 13. Síra Hjörleifur Einarsson á Undirfelli settur til að þjóna
þingeyraklaustursbrauði með frá fardögum 1881.
— 19. Andast húsfrú Guðrún Jónsdóttir á Mógilsá, ekkja síra
Magnúsar Grímssonar.
— 25. Fjallaþing veitt síra Markúsi Gíslasyni í Blöndudalshólnm
frá fard. 1881.
— 27. Andast skólapiltur Ólafur Einarsson frá Hvítanesi.
— 27. Drukkna 3 menn af Tjörnesi í fiskiróðri.
Nóvbr 3. Drukknaði síra Árni Jóhannsson í Glæsibæ, á heimleið
frá Akureyri, við 3. mann á bát.
— 19. Andast skólapiltur Jakob Sigurðsson frá Botnastöðum í
Húnavatnssýslu.
22. Drukknuðu 7 menn á áttæring af Akranesi á heiinferð
þangað úr Reykjavík.
— 30. Var sent frá Reykjavík til útlanda með péstskipinu
7UOOO rjúpna.
Desbr 9. Týndist skip með 7 mönnum af Vatusleysuströnd.
— 10. Hið mesta aftakaveður um suðurland, af útsuðri. Urðu
stórskemmdir á heyjum, húsurn og skipum.
— 11. Hof á Skagaströnd veitt síra Ólafi Bjamarsyni á Ríp.
— 16. Drukknuðu 5 menn í fiskiróðri frá Hrólfsskála á Seltjarn-
arnesi.
— 17. Mestur kuldi á árinu um dagtíma í Rvík: 12° R á hádegi.
— 26. Mestur kuldi á árinu á nóttu í Rvík: 15" R.
— 29. Andast Jósef Blöndal, verzlunarmaður í Rvík, 41 árs.
— 30. Gengið á ís úr Reykjavík fram í Engey og Viðey og npp
á Kjalarnes; enn fremur yfir Hafnarfjörð að Keilisnesi; »lá
ísinn ailt upp á Akranes og suður allt á Vatnsleysuströnd
og með löndum frarn allt í Garð suður«. Hafís í þ. m. og
harðindi mikil norðanlands.
— 31. Hláka með talsverðri rigning á snðurlandi.
ÁRBÓK ANNARA LANDA 1880.
England.
Janúar 21. Sjötíu manna týna lífi í kolanámu í Wales, fyrir
loptkveikju.
Febrúar 5. Bretar ganga á þing (Parlamentið, í Lundúnum);
drottning helgar sjálf þingið.
— 28. Fórst enskt gufuskip í Bengalsfióa með 190 manna.
— Einhvern tíma í þessum mánuði týndist í Atlanzhafi herskipið
Atalanta með 300 liðsforingjaefnum.
Marz 24. pingrof; vantaði 1 ár á kjörtímann (7 ár).
(Sfl)