Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ2004
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Jón Baldvin á að baki oft á
tíðum giæsiiegan stjórnmála-
feril en einnig oft á tíðum
brösóttan. Hann þótti mikill
refur!pólitíkinni á sínum tíma
og átti gott með að sjá leik-
fléttur nokkuð langt fram í
tlmann. Auk þess var hann
næmur á veikieika andstæð-
inga sinna.Jón Baldvin er
harður í samningum, metnað-
arfullur og mjög fyiginn sér.
Jón Baldvin hefur alla sín
tíð sem pólitíkus þótt nokk-
uð tækifærissinnaður og
hagað seglum eftir vindi.
Hann þykir eigingjarn og
slægur og pólitískir sam-
herjar hans sem og and-
stæðingar kvörtuðu oft yfír
því að þeir vissu aldrei hvar
þeir hefðu Jón í mörgum
málum. Hann hikaði aldrei
við að taka umdeildar
ákvarðanir efhann taldi
slikt henta sér.
„Hann erieiftrandi hug-
myndaríkur og fjölfróð-
ur um stjórnmál og
sögu. Einnig er hann
rökfastur og góður í að
aia upp þingmenn. Mér fannst
hann fullhægrisinnaður á póli-
tískum sambýlisárum okkar en
það hefur að mér sýnist elst af
honum eftir að hann varð
sendiherra í Bandaríkjunum."
Össur Skarphéöinsson formaður Sam-
fylkingarinnar
„Það hafa alltafblásið ferskir
vindar um Jón Baldvin. Hann er
orkurikur og með mikla
útgeislun. Mér finnst
sem hann hafi efist eftir
að hann varð sendi-
herra, kannski afþví að
þá hefur hann komist i nokkra
fjarlægð frá þjóðmálaharkinu
hérheima."
Guðrún ögmundsdóttir þlngmaöur
„Ég hefþekktJón Bald-
vin lengi og hann er
skemmtiiegur maður.
Eins og mér finnst um
alla aðra afminni kyn-
slóð er maðurinn nánast galla-
laus. Hann er hinsvegar á stund-
um óiíkindatói. Hann varatveg
vonlaus krati. Skoðanir sem
hann hafði á þeim vettvangi
voru ekki sterkar að minu mati."
Einar Oddur Kristjánsson þingmaður
Jón Baldvin Hannibalsson er fæddur 21.
febrúar 1939 á Isafiröi. Foreldrar hans voru
Hannibal Valdimarsson þingmaöur og ráÖ-
herra og Sólveig ólafsdóttir húsfreyja.Jón
Baldvin starfaöi fyrstsem kennari og
blaöamaöur en var kosinn á þing 1982.
Hann varö fjármálaráöherra og sfðar utan-
ríkisráÖherra áÖur en hann tók viö embætti
sendiherra f Washington. Nú starfar hann
sem sendiherra í Finnlandi.Jón Baldvin er
kvæntur Bryndísi Schram.
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari meistaraflokks Vals segir mörg lið alls ekki sátt
við að íslandsmeistarar kvenna í Landsbankadeildinni koma til með að fá minna
verðlaunafé en neðsta liðið í Landsbankadeild karla að tímabilinu loknu.
Þjálfarinn Elisabet Gunnars-
dóttir, þjálfarí meistaraflokks
Vats vonarað fjárveitingar
KSl til kvennaboltans muni
breytast í takt við timann.
Toppkonurnar íá
en botnkarlarnir
Leikmenn í Landsbankadeild kvenna neyðast til að vinna í
miðasölu, gæslu og sælgætissölu á leikjum karlanna á meðan
karladeildir liðanna fá miklu meiri fjárveitingu frá KSÍ og leik-
menn liðanna margir hverjir himinháa bónusa, sportbfla og
jafnvel heilu íbúðirnar til umráða.
Pálmi Jónsson fjármálastjóri KSÍ
staðfesti það í samtali við DV að út-
deilt verðlaunafé fyrir efsta sæti í
Landsbankadeild kvenna sé lægra en
verðlaunin sem neðsta liðið í Lands-
bankadeild karla fær.
„Auðvitað er það skrítið að liðið
sem lendir í neðsta sæti í úrvalsdeild
karla fái meira verðlaunafé en ís-
landsmeistaramir í kvennadeildinni
en ég reyni að innprenta það í mína
leikmenn að við þurfum bara að gera
okkar besta og sýna fram á að við
stelpumar eigum meira skilið," segir
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari
meistaraflokks Vals „Við erum samt
ekkert að æsa okkur. Við viljum frek-
ar einbeita okkur að því að fá fleiri
áhorfendur og rífa upp stemninguna
á vellinum og það hefur tekist. Til
dæmis vom um daginn 500 áhorf-
endur á heimaleik hjá okkur og það
er ekki síðra en hjá körlunum. Þó veit
ég að mörg lið em mjög ósátt við
þessa mismunun. En á meðan þetta
er staðreyndin bítum við bara í það
súra epli að þetta er bara svona.“
Karlarnir á niðurleið
Karlalandsliðið okkar er komið
niður í 78. sæti á heimslistanum og
virðist stefna hraðbyri niður á við á
meðan kvennalandsliðið er að
standa sig með stakri prýði. Lands-
bankadeild kvenna hefur heldur
aldrei verið stérkari, á meðan efsta
Gæðingar Karlarnir fá jafnvel sportbíia og
himinháa bónusa.
deild karla veldur vonbrigðum. Þrátt
fýrir þetta þurfa meistaraflokksleik-
menn í kvennaboltanum að standa í
því að selja klósettpappír og fleira til
fjáröflunar og vinna við miða- og
pylsusölu á heimaleikjum karlalið-
anna til að eiga fyrir útgjöldum.
„Stjórnarmenn hjá KSÍ virðast
telja minna skemmtanagildi í
kvennaboltanum. Meistarafiokkur
kvenna virðist stundum skipa svip-
aðan sess og yngri flokkamir hjá
„Auðvitað er það skrítið að liðið sem lendir i
neðsta sæti í úrvalsdeild karía fái meira verð-
iaunafé en íslandsmeistararnir i kvennadeildinni"
Pylsusalar Leikmenn i Landsbankadeild
kvenna þurfa að selja aðgöngumiða og pyls-
urá leikjum hjá köríunum og fá jafnvei ekki
að æfa á aðalvellinum.
stjórnum félaganna í Landsbanka-
deildinni. Hér áður fyrr vom leik-
menn í kvennaboltanum ekki í nærri
jafngóðu formi og Lítill áhugi fyrir
kvennaboltanum. En þetta er sem
betur fer orðið alft annað í dag og
vonandi fara fjárveitingamar að
breytast í takt við þróunina. Ég tel að
við þurfum að vinna að þessu sjálfar
og við gemm það. Þetta er aÚt að
koma,“ segir Eh'sabet. rap@dv.is
Leiðrétting
í frétt um dánarbú átta
ára drengs sem lét eftir sig
30 milljónir og
birtist í DV í gær
var rangiega
haft eftir móður
hans að faðirinn
hefði ekkert vilj-
að af honum
vita fyrr en eftir
dauða drengs-
ins. Hið rétta er
að móðirin
sagði að faðir-
inn hefði ekkert skipt sér af
drengunum fyrr en bæt-
urnar sem hann hiaut
vegna læknamistaka vom í
höfn.
Þrátt fyrir risasektir eru írar famir að risa upp á afturfæturnar gegn reykingabanninu
írskir kráargestir í uppreisn
Þremur mánuðum eftir að reyk-
ingabann var sett á 10.000 krár og
veitingastaði á írlandi gerist það sem
allir áttu von á að gerðist fyrr eða síð-
ar. írskir kráargestir gera nú upp-
reisn gegn banninu og það er kráin
Fibber Magees í Galway sem ríður á
vaðið. Eigendur Fibber hafa komið
upp heilli hæð á staðnum fyrir reyk-
ingafólk. Og það þrátt fyrir að það
kosti þá um 250.000 kr. í sekt. Með
gleðiópum stormuðu 200 gestir inn á
staðinn meðan írska sjónvarpsstöð-
in RTE sendi út beint frá hinni reyk-
mettuðu hæð þar sem ölið og viskýið
flaut í stríðum straumum.
Málið hefur vakið reiði hjá Mich-
ael Martin heilbrigðisráðherra ír-
lands. Hann vísaði málinu beint til
Hæstaréttar nú í lok vikunnar og er
markmið hans að fá kránni lokað í
skyndingu með dómsúrskurði. Á
meðan fylgjast aðrir kráareigendur
með málinu frá hliðarlínunni og
munu tilbúnir í slaginn fyrir að fá
reykinn á ný.
Eigendur Fibber Magees óttast
hvorki sektir né lokun. Þeir segja að
yfir helmingur af fastagestum þeirra
sé reykingarfólk og að veltan hjá
þeim hafi hrapað í sama hlutfalli eft-
ir að banninu var komið á í mars sl.
„Við verðum hvort eð er gjaldþrota
eftir mánuð. Við höfum þegar rekið
þriðjunginn af starfsliði okkar. Við
getum alveg eins farið á hausinn í
reyk og hita, segja eigendurnir Ron-
an Lawless og Ciaran Levazin.
í könnun sem gerð var nýlega
kom í ljós að veltan á 6.000 krám og
veitingastöðum á írlandi hefur fallið
ámilli 15 og 25%.
Drepið í Eigendur
Fibber hafa komið up
heilli hæð á staðnum
fyrir reykingafólk