Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Side 16
16 LAUGARDAGUR 10. JÚU2004
Fréttir DV
Senn líður að jólum, að minnsta kosti þegar höfundar og útgefendur eru annars vegar. Búast má við fyrstu
bókunum á jólamarkaðinn upp úr miðjum september en flóðbylgjan skellur á af fullum krafti i október.
1
i
i
Á heimildarmönnum DV í bókaútgáfunni er helst að skilja að
feykileg skáldsagnajól séu í uppsiglingu. Hér gefur að líta nokkra
af þeim rithöfundum sem í sumarblíðunni eru að leggja síðustu
hönd á verk sín, svo þau nái í jólaflóðbylgjuna sem á okkur skell-
ur af fullum þunga frá og með október. Þótt karlar séu hér í mikl-
um meirihluta þýðir það ekki að fáar konur ætli að senda frá sér
bækur. Þær virðast einungis tregari til að láta nokkuð uppi að
sinni.
íslenska glæpasagan blómstrar
sem aldrei íyrr, Amaldur Indriðason
tók sér frí frá Erlendi, Sigurði Óla og
Elínborgu um síðustu jól og skrifaði
um Bettý. En þessa dagana er Arn-
aldur að leggja síðustu hönd á bók
sem ber vinnuheitið Kleifarvatn og
kemur út hjá Vöku-Helgafelli. Þar
tekst þrenningin á við samfélagslegt
sakamál með sínum góðkunnu sér-
viskum, ólund, heimilisógæfu og
húmor. Þegar Ævar öm Jósepsson
er ekki að stjórna Speglinum í RÚV,
vinnur hann að
glæpasögunni Blóðberg. Ævari Emi
var nokkuð bmgðið í vetur þegar
sakamál komu upp á Austurlandi
því að í Blóðbergi skrifar hann um
glæp sem upp kemur við Kára-
hnjúka. Hið íslenska glæpafélag
stóð fyrir glæpasagnasamkeppni á
menningarhátíð Grand Rokk á dög-
unum og Almenna bókafélagið gef-
ur út safn verðlaunasagna keppn-
innar. Jón Hallur Stefánsson sigraði
með sögu sinni Enginn engill og
verður hún að sjálfsögðu í safninu
en frá bókaútgáfunni Bjarti berast
þau tíðindi að þar sé Jón
Hallur að skrifa heila,
stóra glæpasögu fyrir
jólamarkaðinn.
Stefán Máni er
sagður genginn í
glæpasagna-
björgin líka,
hans bók
kemur út
hjá Máli
og
menn-
... jj? ■aÍÉLa .
ingu og segja menn þar að hann fari
rússíbanareið í gegnum íslenska
glæpi síðustu áratuga.
Sögulegar og alskáldaðar
sögur
í Hrapandi jörð, tyrkjaránssögu
Úflars Þormóðssonar sagði af örlög-
um herleiddra suður í Barbaríinu.
Nú er Úlfar að ljúka við framhald
bókarinnar og segja menn hjá Al-
menna bókafélaginu að Úlfar telji
frásagnir af lffi herleiddra íslendinga
stórlega affluttar af yftrvöldum í
Danmörku og á íslandi. Fólkið hafi í
raun fundið hamingjuna undir
heitri Miðjarðarhafssólinni og fjöl-
þjóðlegu og lifandi umhverfi. Þórar-
inn Eldjám hefur verið með skáld-
sögu í smíðum um Hvítárvalla-
baróninn, þann sem byggði fjósið
við Barónsstíg í Reykjavík og ætlaði
að verða stórbóndi í Borgarfirði.
Saga Þórarins gerist jafnt í New
York, London, París, Pisa, San
Remo, Munchen og Borgarfirði og
kemur út hjá Vöku-Helgafelli. Þar er
líka verið að ganga frá nýrri fullorð-
insskáldsögu eftir Guðrúnu Helga-
dóttur en fyrsta saga hennar í þeirri
deild, Oddaflug, kom út fyrir
nokkrum árum. Guðrún lætur ekki
þar við sitja, sjálfstætt framhald af
barnabókinni Öðmvísi dögum er
einnig væntanlegt fyrir jólin. Og
Bragi Ólafsson tekst á við siðferðileg
vandamál, glæpi og refsingu, í nýrri
bók sem skartar vinnuheitinu
mi
Handritin streyma
inn Ferðasögur,
glæpasögur, sögulegar
sögur,skáldaðarsögur,
minningar, meiningar,
ádeilur, heimsósómi, tjóð,
sjálfshjálp í markaðsheimi
- allt þetta og ótal margt
fleira kemur með
jólabókaflóðinu í október.
Arnaidur
Indriðason
W Erlendur,
Sigurður Óli og
Elinborg snúa
aftur.
Samkvæmisleikir. Vinnuheitið á
nýrri skáldsögu Steinars Braga er
SólskinsfóUdð. Heyrst hefur að þar
fáist hann þó við líf og örlög þeirra
sem sjaldnast eru á ferð í björtu.
Einar Már Guðmundsson fæst við
bítlatímabilið í eins konar blöndu af
Riddurum hringstigans og Englum
Alheimsins, en bókinni hefur ekki
verið valinn titill hjá Máli og menn-
ingu fr ekar en nýrri skáldsögu Auðar
Jónsdóttur, en hún mun gerast í
samtímanum. Sagt er að væntanlega
skáldsaga Þorsteins Guðmundsson-
ar snúi öfugt, þ.e.a.s. í ónefndri bók
hans verða ýmsar þekktar persónur
að skáldsagnapersónum.
Sögur á ferð, Grim og sjálfs-
hjálpin
Góður rómur var gerður að
ferðasögu Huldars Breiðfjörð, Góðir
íslendingar, fyrir nokkrum árum. í
bókinni Múrinn er Huldar enn á
ferð. Nú hyggst hann þramma eftir
Kínamúrnum endilöngum og glímir
óreyndur ferðalangurinn við fram-
andi tungur, endalausar eyðimerk-
ur, skordýr, vatnsskort og sína ís-
lensku fordóma. Frá Máli og menn-
ingu kemur líka ferðasaga, þar fer
Einar Kárason um og hripar ýmis-
legt hjá sér. Þar á bæ er einnig verið
að ganga frá Best of Grim, bestu
sögur og teikingar af þessari vin-
sælu fígúru Hallgríms Helgasonar.
Nýr sjálfshjáparráðgjafi stígur fram
á sjónarsviðið með jólabókaflóinu,
Andri Snær Magnason byggir bók
sína á fyrirlestrum um markaðsmál
og hugsar hana lesendum til sjálfs-
hjálpar.
Kviður, Ijóð, minningar og
smáprósar
Málsvöm og minningar heitir
væntaleg bók Matthíasar Johannes-
sen. Vöku-Helgafellsmenn segja að
þar fari samþætting minningaþátta,
skáldskapar, ljóða og uppgjör
margra þeirra mála sem nú em í
forgrunni í íslensku þjóðlífi. Frá
sama forlagi er Ktístín Steinsdóttir
að skrifa persónulega bók fýrir full-
orðna, en hún hefur unnið til fjölda
viðurkenninga fyrir barnabækur
sínar. Óskar Ámi Óskarsson hefur
gefið út flölda ljóðabóka, þýðinga
og smáprósa. Hjá Bjarti er nú verið
að leggja síðustu hönd á Truflanir í
vetrarbrautinni, safn smáprósa um
ævintýralega atburði í hvunndags-
lífinu en þar koma janfvel náttúm-
lögmálin sjálf raunveruleikanum í
opna skjöldu. Andræði heitir mergj-
aður heimsómsómi Sigfúsar Bjart-
marssonar, rammstuðlaður og rím-
aður. Hjá Bjarti segja menn Sigfús
takast á við samtíma og siðferði
vorra daga. Þaðan er líka von á
fyrstu ljóðabók Kristínar Eiríksdótt-
ur. Hún sigraði í ljóðasamkeppni
Eddu-útgáfu og Fréttablaðsins á
dögunum og heitir hennar fyrsta
bók Kjötbærinn.
rgj@dv.is
hm