Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Page 45
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ2004 45 >
Einsog
Leikonan Gwyneth Paltrow
gerði aðra gesti í partíi í New York
orðlausa þegar hún mætti í
klæðalitlum topp sem faldi ekki
furðulega bletti á bakinu á henni.
Leikkonan er nýbúin að eignast
sitt fyrsta barn með söngvaranum
Chris Martin úr Coldplay.
Læknar telja að blett- ,
irnir eigi sér eðlilega
skýringu. Líkleg- ý':'
ast er talið að
Paltrow hafi ÆjáF.
undirgengis t ■
meðferð / ff
skottulæknis w
þarsemheit- •
ir bollar eru ' lý,\Z0SF
látnir draga
eitur úr líkaman-
um. „Hún var eins ’Wú
og geimvera,"
sagði einn gest- ^ 10.
anna forviða.
Beyonce Knowles
Söngkonan leikurlnýrrí
ríiynd um Bleika
pardusinn með grínist-
anum Steve Martin.
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er 25 ára dansari. Hún hefur dans-
aö á fullu síðan hún var sjö ára. Lovísa er ein þeirra sem
standa að uppsetningunni á söngleiknum Hárinu sem frum-
sýndur var í gær. Þegar Lovísa er ekki að dansa reynir hún
að slaka á með kærastanum, Ólafi Darra Ólafssyni leikara.
Engin
gæra eins
ogParís
Hin failega Sienna Miller þolir
ekki að vera líkt við París Hilton.
Miller er kærasta Judes Law og
vann fyrir sér sem fyrirsæta áður
en hún sló í gegn sem leikkona.
Hún segist ekki skilja af hverju
fólk haldi að hún sé djammari.
„Lít ég út fyrir að vera ein af
Hilton-gærunum? Það er ekki
séns að þú finnir myndir á netinu
af mér að stunda kynlíf." Sienna
segist lítið fara út og finnst henni
skemmtilegra að vera heima og
elda góðan mat.
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir Lovisa
syngur einnig i Hárinu. Hún segist
hafa verið smá óörugg I fyrstu en
nú sé þetta bara gaman.
DV-mynd Valli
■
„Þetta er búið að vera alveg frá-
bært enda mikil stemning og hippa-
andi í gangi," segir Lovísa Ósk
Gunnarssdóttir dansari og viður-
kennir að hippinn í henni sé ein-
hvers staðar þarna undir niðri."
Lovísa Ósk er einn krakkanna £ söng-
leiknum Hárinu og er búin að vera
að dansa síðan hún var lítil. Hún
dvaldi í fjögur ár í Stokkhólmi þar
sem hún var við atvinnudansara-
nám.
Lovísa segir nektaratriðið í söng-
leiknum ekki flækjast mikið fyrir sér.
„Þetta var svolítið stressandi fyrst en
svo lét maður andann grípa sig og
eftir það varð þetta ekkert mál. Hóp-
urinn er mjög samstillur enda
stútfullur af talentum og liðsheildin
mjög sterk. Rúnar Freyr stendur sig
líka alveg frábærlega sem leikstjóri."
Auk þess að dansa tekur Lovísa Ósk
lagið.
„Ég var pfnu óörugg í byrjun en
þetta er rosalega gaman núna. Það
er líka svo gaman að blanda söngv-
urum, dönsurum og leikurum í einn
hrærigraut."
Hún segir að það sé ailtaf að
verða meira og meira að gera fyrir ís-
lenska dansara hér á landi en hún
hafi auk þess verið heppin að næla
sér í skemmtileg verkefni og hafi
meðal annars tekið þátt f tveimur
uppfærslum með fslenska dans-
flokknum. Auk Hársins er hún að
fara að æfa fyrir Reykjavík dansfesti-
val og tekur auk þess af og til að sér
að vera leiðsögumaður fyrir sænska
ferðamenn og er þá stoltust af því að
sýna þeim Þingvelli. „Það á mjög vel
við mig að hafa mikið að gera en það
er náttúrlega nauðsynlegt að fá góða
pásu á miUi,“ segir Lovísa og bætir
við að til að slaka á fari hún í sund og
nudd eða taki góða spólu með
kærastanum, Ólafi Darra leikara.
„Ég ætla að dansa þangað til lík-
aminn segir stopp en það er líka
ótrúlega gaman að semja og maður
getur verið miklu lengur í því og svo
er líka full af öðrum hlutum sem mig
langar að gera þegar ég er orðin
stór."
Beyoncé Knowles á erfitt með að finnast hún sexý þegar
hún leikur á móti Steve Martin Leikkonunni var ekki
skemmt þegar aðdáandi vissi ekki hver hún væri.
Ég er ekki J.Lo
Beyoncé Knowles segir að það sé erfitt að vera
sexí þegar hún leikur á móti grínistanum Steve
Martin. Parið leikur saman í nýrri mynd um
Bleika pardusinn. „í byrjun var ég rosalega
stressuð en núna er bara gaman," segir söngkonan
og bætir við að hún sé alltaf að springa úr hlátri yfir
fíflaskapnum í Martin. „Kynþokki er það síðasta
sem manni dettur í hug þegar maður grenjar úr
hlátri og það er mjög erfitt að halda sér í karakter."
Söngkonan var ekki ánægð þegar trylltur aðdá-
andi réðist að henni í New York og ruglaði henni við
söngkonuna Jennifer Lopez. Söngkonan var klædd í
gallabuxur og peysu og með hárið ógreitt. Hún var að
stíga út úr Benzinum sínum þegar ókunnug kona
kallaði: „Guð minn góður! Jennifer Lopez! Þú ert svo
æðisleg! Beyoncé gat þó kreist út bros og kallaði kurt-
eisislega tU baka: „Takk. En ég heiti ekki Jennifer. Ég
er Beyoncé."
Stjörnuspá
Helgi Björnsson söngvari og leikari er
46 ára i dag. „Reynsla fortíðar eflir löng-
un hans til að takast á við vel-
kgengni í starfi. Hér kemur
i að hann hefurjafn-
^ vel tekist á við þjáningar
i einhverskonar í æsku
leða vandamál sem efla '
1 kjark hans og vilja til
' að ná árangri. Maður-
. inn býryfir styrk á við
Nheilan her," segir í
stjörnuspá hans.
H
Helgi Björnsson
\\i \atl\sbemn (20. jan.-18.febr.)
V\ ----------------------------------------
Safnaðu kröftum og haslaðu
þér völl þar sem þér líður afburða vel
og hæfileikar þínirfá að njóta sin.
Stjarna þín þirtist sem óþrjótandi orku-
gjafi en þú mættir gefa náunganum
betri gaum.
(19.febr.-J0.mars)
Ekki bæla tilfinningar þínar,
segðu hug þinn kæri fiskur. Þér kann
einnig að hætta til afbrýði um þessar
mundir en reiðin rennur þér skjótt ef þú
andar djúpt og ýtir neikvæðri orku burt
hið fyrsta.
Hrúturinn (21.mars-19.aprll)
Þú skalt fýrst og fremst átta
þig á hvert þú ætlar þér og vinna síðan
með réttu hugarfari að eigin markmið-
um án þess að huga að uppgjöf. Gefðu
af þér án þess að krefjast endurgjalds
að hætti hrútsins.
T
ö
Nautið (20. april-20. mai)
Undirbúðu þig fýrir fegurð
framtíðar sem birtist hér á sama tíma
og hlutverk þitt breytist af einhverjum
ástæðum.
n
Tvíburarnirr2/. maí-2Ljúní)
Ekki hika við að skapa þér það
lif sem þú þráir. Ekki vernda sjálfsöryggi
þitt með því að blekkja sjálfið því þar
með getur þú ómeðvitað fjarlægst fólk
enn frekar en ella.
K.\abbm(22.júní-22.júli)
Q0' Agi og sjálfsstjórn eiga vel við
þig hér án þess að óþægindi séu á
nokkurn hátt eftirsóknarverð en fólk
eins og þú virðist vera fært um að
leggja töluvert á sig um þessar mundir
til að efla eigin liðan til góðs.
Ljónið (23.júli-22. ágúít)
Þú ættir að finna kyrrð í hjarta
þinu um þessar mundir og leita jafn-
vægis innra með þér en ef og þegar þér
tekst það munt þú öðlast nýja sýn á því
sem virðist eiga huga þinn.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.)
Sannleiksást meyju er sterk og
þér er ómögulegt að Ijúga án þess að
hlaupa á þig. Helgin líður hratt hjá þar
sem þú nýtur þín á meðal vina.
T13
Q VogÍn (23.sept.-23. okt.)
Þú ættir að kanna jarðveginn
vandlega þegar kemur að næsta skrefi í
ástarsambandi þínu. Þér er ráðlagt að
sætta þig við gæðin í stað þess að huga
að magninu.
ni
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0vj
Rödd þín er öflug og sterk
sem segir til um styrk þinn sem kann að
vera ómeðvitaður eiginleiki í fari þínu.
Vanafesta einkennir þig reyndar þessa
dagana en þú býrð yfir þeim eiginleika
að vita hvenær þú hefur rétt fyrir þér og
skynjar eðlilega rás atburða mjög sterkt.
/
Bogmaðurinnpzndv.-2j.fe.j
Þér hefur verið gefinn sá eig-
inleiki að draga fólk að þér en þú ættir
ekki að nota orð sem þú segir í fljót-
færni. Ný tækifæri tengjast framtíð
bogmanns.
y Steingeitin pzfa-i9.jnnj
Opnaðu hjarta þitt fyrir sjálf-
inu og þeim sem þú elskar. Fólk fætt
undir stjörnu steingeitar ætti ekki að
sniðganga eigin tilfinningar.
SPÁMAÐUR.IS/