Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1885, Page 23

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1885, Page 23
Mars sfest ei fim fýrstu mánuði ársins, Hann er á austrleið ímiðjum Júní, er hann aptr kemr í ljós, og j)á í {Jjórsmerki, sem hann skilr við í Júlímánaðar lok. það sem eptir er árs fer hann um tvíbura, krabba og ljón og er í árslok nær höfði meyjar, en skín um allau þenna tíma ei með neinum frábærum ljóma. Fer hann 4. Nóvember framhjá Regúlus, mælistigi fyrir norðan, og gengr hæzt 6. December kl. 6 fyrir miðjan dag. Júpíter kemr í árs byrjun upp kl. 8*/í eptir miðjan dag og er á vestrferð í ljónsmerki. Seinast í Febrúar gengr hann hæzt um miðnætti og sbst þá alla nóttina, en 15. Marts fer hann einu mælistigi fyrir norðan Regúlus. Vestrferð hans seinkar meir og meir til þess í Apríl, er hann nemr staðar og fer síðan um ljón í gagnstæða átt, svo að hann fer aptr framhjá Regúlus seinast í Maí. Seinast í Júní gengr hann undir um miðnætti, en síðan æ fyrr og fyrr vg veldr það, að hann hverfr alveg sýnum um næstu mánuði. Seinast í September má aptr sjá hann um morgna og er þá á austrleið í ljónsmerki, sem hann skilr við fyrst í Nó- vember og leggr þá leið vestr um meyjarmerki. Fyrst í Nóvember kemr hann upp kl. 23/4 nætr, en seinast í December um miðnætti Satúrnus sest í Janúar alla nóttina og gengr þann mánuð. undir kl. 8 morguns, en um næstan tíma æ fyrr og fyrr, svo að hann seinast í Marts sest ei lengr enn til kl. 3 um nótt, seinast í Apríl til kl. 1 og í miðjum Maí til miðrar nætr. í Júní hverfr hann sýnum, en fer í Júlí aptr að koma fram um morgna fyrir sólaruppkomu og shst síðan frá Ágúst til ársloka alla nóttina, gengr hæzt um miðnætti seinast i December. I upphafi árs er hann á vestrferð í þjórsmerki, neinr staðar í miðjum Febrúar og heldr svo austr. Hann gengr í Apríl og Maí milli bornstiklanna inn í bræðramerki og heldr þar til það sem eptir er árs.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.