Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1885, Blaðsíða 64
31. Kemur eldur upp í Vesúvíus á Ítalíu, og hraunflóð mikið.
7. okt. 14 þús. italskra leikmanna (»pílagríma«) sækja fund Leós
páfa og færa honum hollustuávarp.
3. nov. Hefst uppreist allmikil í hjeraðinu Cerna Reka í Serbíu.
9. Foringi stjórnarhersins, Nicolic, berst við uppreistarlið Serba.
10. Nicolic herhöfðingi nær á vald sitt Kalafat, helztu varnarstöð
uppreistarmanna.
11. Fundur nál. í hverri borg á Italíu; fundarefni: að krefjast
almenns kosningarrjettar í bæjarstjórnar- og sveitastjórnarmál-
um, og að konur jafnt sem karlar fái atkvæðisijett i þeim málum.
13. Öllum griðum lýst úr lögum í hjeruðunum Oroa, Eeka, Kri-
jazevatz, Banja, Alexinatz og Kraina i Serbíu.
Aðrar heirmálfur.
9. jan. Kviknar í mjög stóri gestahöll í Mihvaukee í Ameríku;
fjöldi manns brennur inni.
4. marz. Lögleidd í Bandafylkjunum niðurfærsla á aðflutnings-
gjaldi af varningi svo skiptir fleiri 100 miljóna.
25. Talað með hljóðbera (telefón) milli New-York og Chicago í
Ameríku, 1000 mílur enskar; áður lengst 700 mílur.
22. apr. Fellibylur banar 83 mönnum i Missisippi í Ameríku og
meiðir 300.
13. maí. Ógurlegur fellibylur í Missouri í Ameríku, brýtur 50 hús
í borginni Kansas.
24. Vígð brú yfir sundið milli New-York og Brooklyn, »EastRiver,«
eitthvert hið mesta furðuverk heimsins. Var í smíðum 13 ár,
kostar nálægt 60 milj. kr.
30.j«ttí\ Fellistormur rís frá Bengalsflóa í Asíu, og æðir yfir suð-
urhluta Indlands; sveipar burt borgum og þorpum t. d. 500
húsum í bænum Súrat við Tapterá.
12. júH. Verður fyrst vart kóleru í Alexandríu á Egiptalandi.
18. Kólera drepur flölda manns í Kairó, og fer sem morðengill
um Egiptaland.
25. ág. Hefjast hin voðalegustu eldsumbrot, er sögur fara af, _og
jarðskjálftar á Java og Sundaeyjum; stendur í 3 daga; eyjar
með borgum sökkva í sjó, öðrum skýtur upp; 50—80 þús.
manna farast.
1. sept. Til þess tíma höfðu alls dáið 27318 manns úr kólernnni
á Egiptalandi.
20. Uppreist á eynni Háiti í öðru þjóðveldinu þar.
15. okt. Mikil tjón af jarðskjálftum í Litlu- Asíu og á sumnm
eyjum í Grikklandshafi; mest hjá Smyrna og þar nærlendis.
4.—6. nóv. Fjell hershöfðinginn Hick pasja í Súdan og með
honum allur herinn nær 11,000 manna, enskra og egipzkra, fyrir
herflokkMahdíans (falsspámanns), er stýrði nálægt 30,000manna.
Mannalát.
Abd-el-Kader, frelsiskappinn mikli frá Alzír, 25. maí í Damaskns,
hálfáttræður
Andersen, Carl, skáld Dana (alinn upp á Islandi, útskrifaður úr
Rvíkurskóla 1848; hefur samið ýmsar smásögur semfarafram
á Islandi) 1. sept., hálfsextugur.
(60)