Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1889, Page 24
tJR TILSKIPUN 3. FEBRUAR 1836.
vii. atr. tm almanök:
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyíii sem Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök,
annaðhvort með því að flytja til Islands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt þvi sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831),* þau almanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar
á ofan \ rbd. silfrs fyrir hvert þeirra. Helming sekia-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskóiinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en
annar hclmingr gengr til stjörnuturnsins i Kaup-
mannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var
talið.
3. gr. Öll mál, sem risa af að einkaleyfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almanak þotta kostar óinnfest 10 aura, on innfest 11
aura, atlstsðar á íslandi og í Danmörku; en Gyldcn'lals bóka-
yerzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til
að sclja hvert á 8 aura tíinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem
kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt
að skila aptr óseldum almauökum, ef það er gjört innan árs
loka 1889; verðr þeim þá borgað andvirði þeirra, sem tísködduð
eru, en þtí svo, að hin innfestu verða borguð sem tíinnfest; skyldir
eru þeir og að sýna reikninga bókaverzltmarinnar, ef krafizt verðr.