Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1889, Síða 87
1884. Skipstjórarnir gefa meiri skýrslur um strauma í hafinu norðan
og vestan við landið, en þeir innfæddu, sem stunda hákarlaveiðar
hafa gjört allir til sarnans í 5 eða 10 ár.
Á skipinu >Aliee Williams«, 78 tons að stærö, voru lö
rnenn sem höfðu 7 smábáta, og jafnrnargar línur með 800 öngl-
um á. J>að afiaði af lúðuflökum 164,000 pd., sem í Ameríku
seldist mest alt fyrir 19 aura pd., og 65 tn. rafabelti, hver tn.
34 kr., alls hljóp afli þessi 31 pús. krónur. Verð á heilafiski var
miklu lægra það ár í Ameriku en árið áður.
Skonnortan »Concord« 93 tons að stærð, sigldi frá Ameríku
27. maí, kom 10. júní til Rvík. og sigldi svo á fiskimið sín; fyrir
Vestfjörðum, nálægt Hornbjargi fiskaðist bezt, línurnar lögðu
skipverjar á 30—80 faðma dýpi, 25,000 pd. af heilafiski fengu þeir
á einum degi þegar bezt fiskaðist. þorski og öllum öðrum fiskum,
sem komu á línuna, aðrir en lúður, fieygðu skipverjar í sjóinn
aptur, sömuleiðis iúðuhausum öllum. þeir segjast gjarnan hafa
viljað hirða þetta og selja Islendingum, en þóttust ekki hafa mátt
gjöra það vegna landslaganna?
A skipinu voru jafnmargir menn, bátar oglínur eins og á hinu
skipinu. það sigldi frá íslandi 31. ágúst og kom 18. sept. til
Ameríku, hafði fiskað 152 þús. pd. af lúðuflökum og 60 tn. af rafa-
beltum. Fyrir aflann allann fjekkst 29,500 kr.
a skipið »David Story«, 80 tons að, stærð, fór frá
Ameríku 12. maí og kom þangað aptur frá íslandi 15. sept.
Fyrstu vikuna, sem skipverjar voru við veiðina fengu þeir 1,500
lúður, en alls 6,040, sem voru að þyngd, upp úr salti, fyrir utan
bein hausa og rafabeiti, 139,000 pd. Farmurinn allur seldist í
Amenku fyrir 28,500 kr.
Skipveijar á þessum 3 skipum _beittu fiski og höfðu allir
miklu minni aungla, en alvenja er á íslandi.
Fiskiveiðar í Noregi.
Árið 1887 fiskaðist í Noregi 48 mill. af þorski, þaraf í Lo-
foten 32 mill., sem er meira en nokkru sinni áður í manna mynni,
að undanskyldu árinu 1886, eptir því sein blaðið »Verdens Gang«
skýrir frá. Eigi að síður varð þó ágóðinn af þessum mikla afla
talsvert minni en mörg undanfarin ár, þegar reiknað er fyrir allar
veiðistöður í Noregi; aðal orsökin til þess var óvenjulega lágt
verð á fiskinum. þessar 48 mill. fiskar voru eigi nema 7 mill. kr.
virði, eður hver fiskur að meðaltali 14'/a a. með höfði hala og
lifur einsog hann kom úr sjónum.
það ár, sem minnst fiskaðist næstliðin 20 ár, var þó aflin
8,;> mill. kr. virði.
Vertiðin í Lofoten er nálægt 3,3 mán. Hásetinn þarf að
leggja sjer til auk fæðis, net og línur að sínum parti, er hefir
talsverðan kostnað í för með sjer, en manns hluturinn í Lofoten
hljóp þ. á. ekki meira en 160kr., þrátt fyrir þennan mikla landburð.
(85)