Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1889, Page 88

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1889, Page 88
þótt fiskiverð væri svona óvanalega lagt græddu kaupmenn samt ekkert, varð árið því í versta lagi, bæði fyrir seljendur og kaupendur. Olía eða lýsi í sjáfarháska. • Sorglegur viðburður var þetta« segja menn, þegar frjett kemur um það, að skip eða bátur hafi farizt með allri áhöfn. 1 marga tugi ára hefur þar við setið á íslandi; lítið eða ekkert hefur verið gjört til að afstýra hættunni, eða bæta fyrir þeim, er eptir lifa, en nú virðist svo, sem áhugi manna sje farinn að vakna í þessu efni, og er það mjög gleðilegt. í hveq'u útlendu blaði, sem flytur fijettir um sjáfarútveg og sjóferðir, er iðuglega skýrt frá því, að þeim eða þeim skipstjóra hafi tekist að bjarga skipi og mönnum í hafróti, með því að láta olíu drjúpa á sjóinn. Skipstjórnarfræðisfjelag nokkurt í pýzkalandi bauð nýlega að veita þeim verðlaun, er semdu bezt rit um notkuu og árangur af olíu í sjáfarháska. Skipstjóri af herskpi, og annar af kaupfari, unnu báðir verð- launin. peir höfðu týnt saman allar þær frásagnir, sem þeir fundu eptir áreiðanlega menn, um afleiðingar þær sem olían hefði gjört, þegar henni var helt á sjóinn í ofviðri, og hver aðferð hveij- um einum hafði reynzt bezt. pessi tvö rit eru nokkuð stórar bækur, og voru nýlega gefnar út bæði í Hamborg og Berlín. Stjórnarráðið í Bandaríkjunum hefir látið rannsaka hveijar afleiðingar olían gjörði í stórsjó. Verzlunarráðið í Englandi heflr einnig látið ransaka þetta og síðan gefið út, eptir marg ítrekaðar ransóknir, sjófarendum til athugnnar og leiðbeiningar, svolátandi skýrslu: »1. Mjög lítil af olíu getur sefað sjóinn, varnað sjóbroti ogkomið í veg fyrir manntjón, einkum á smábátum, þegar hún er ijett notuð. 2. Olían gjörir meiri verkun þar sem dýpið er talsvert, en á grynningum þar sem brotsjóar eru. 3. |>yngsta og feitasta olían gjörir mest gagn, öll fita af dýrum er góð. Steinolíu má nota þegar ekki er annað betra fyrir hendi. 4. Olían gjörir gagn hvort heldur skipið er á ferð, eða rekur fyrir vindi eða liggur kyrt við stjóra, þegar skipið liggur kyrt eða rekur fyrir vindi þarf ekki mikið af olíunni. ö. jpegar sjórinn er kaldur breiðist olían ekki eins fljótt yfir vatnsskorpnna, einsog þegar hlýtt er í sjónum, þó ber minna á þessu þegar olían er fitumikil. €. Jiegar menn vilja reyna að bjarga skipi með olíu í sjáfarháska, hefir það reynzt bezt, að hengja litla segldúksþoka sem taka 4 potta af olíu (eða lýsi) við skipshliðina þannig að pokinn liggi í vatnsskorpunni. Göt. skal stinga á hann með seglnál svo auðveldar sje fyrir olíuna að renna _úr honum. þegar skipið siglir undan vindi á að hengja olíupoka á bæði borð. (sn)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.