Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1892, Síða 54
á síðustu heímsýningunni í Parísarborg, og er hann frægur af
|m verki um allan heim.
Emin I’ascha fæddist í Oppeln í Schlesíu. Skírnarnafn
hans er Edvard Schnitzer og bar hann það nafn þangað til
hann gekk í þjónustu Tyrkjasoldáns. Á yngri árum lagði hann
stund á læknisfræði og tók próf í henni 24 ára gamall. Árið 1864
gekk hann í þjónustu Tyrkja sem læknir. því starfi gegndi hann
11 ár og vanp sjer hylli mikla og virðingu, en eptir lát Ismail
Hakki Pascha, gekk hann í þjónustu Egiptalands og varhann
sendur til Gordons suður til Miðjarðarlínu hjeraðanna, er svo
nefnast og fjekk Gordon brátt á honum hinar mestu mætur.
Emin varð þar eptirmaður Gordons, er Gordon tók við yfirráðum
yfir Sudan. Eins og mönnum er kunnugt, fór Stanley síðustu
Afríku-för sína til þess að heimta Emin úr helju, en viðkynning
þeirra fór á allt annan veg enn menn höfðu við búizt og urðu
þeir allmiklir óvildarmenn. Emin Pascha er nú í þjónustu Jbjóð-
verja í löndum þeirra í Afríku.
Tippo Tib er mjög voldugur og vellauðugur Araba-höfð-
ingi í Afríku, og er nafn hans mjög kunnugt um allan hinn
menntaða heim einkum af ferðabókum Stanleys og viðureign
þeirra allri. Að nafninu til er hann háður soldáninum í Zanzibar,
en ríkir þó miklu fremur yfir hjeraði sinu sem einvaldur væri.
Hann er þrælakaupmaður mikili, stjórnsamur í löndnm sínum og
bragðarefur hinn mesti. Svo er sagt að hans sje von á sumri
komandi til Lundúnaborgar til þess að bera af sjer sakir þær, er
Stanley bar á hana eptir síðustu Afríku-för sína.
Mark Twain erhið fræga kýmniskáld Vesturheimsmanna.
Skírnarnafn hans er Samuel Clemens, en á allar bækur sínar
ritar hann nafnið Mark Twain og er hann því almennt nefndnr
því nafni um allan hinn menntaða heim. í nokkrum undanfar-
andi árgöngum Alm. þjóðfjl. hafa staðið smásögur og skrítlur
eptir hann.
(Jharles Ttussel er talinn mælskastur allra málafærslu-
manna á Englandi. Frægastur er hann af vörn þeirri, er hann
flutti í máli því, er stjórn Breta höfðaði gegn Parnell (Times-
málinu), sem sagt er frá í greininni um Parnell.