Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Árgangur

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1892, Síða 56

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1892, Síða 56
Jón bískup kvæntist Sígríði dóttur Baufta-Jóns biskups á Hólum, frá Leirá. Hún var mjög nísk og þótti ekki bæta um fyrir manni sínum. Einusinni rak hval á reka biskups. Hart var í ári, en samt seldi biskup allan hvalinn dýrum dómum. Margqet móðir hans frjetti þetta og þótti illt að heyra. Hún brá við og reið heim í Skálholt. pegar biskup fqetti að móðir hans væri komin, gekk hann til dyra og ætlaði að fagna henni, en kerling rak honum roknalöðrung og sagði um leið að hann skyldi ekki láta skurð- goðið frá Leirá draga sig til helvítis. Að svo mæltu reið hún af stað en biskup sagði: »Keið er móðir vor nú«. Hann vissi vel við hvað kerling bafði átt. Skömmu seinna rak hval hjá honum og gaf hann hann allan. Einusinni kom fátækur maður til biskups. Hann hafði misst kú sína. Biskup fór með hann út í fjós og gafhonum eina kúna. þegar frú Sigríður frjetti þetta varð hún fokvond og sagði við biskup: »Nú! það var mikið að þú gafst honum ekki hest líka«. »þá er að gera það« svaraði biskup og gaf manninum uppá- haldshest konu sinnar; sagði liann að konan sín gæfl honum hann*). Jón biskup bar ávalt korða. Einu sinni var hann og frú hans stödd á kvíunum í Skálholti þegar verið var að mjalta. Fátækan barnamann úr sveitinni bar þar að og bað hann biskup að gefa sjer eina ána. Biskup ætlaði strax að verða við bón hans, en frúin taldi það úr. Biskup skipti engum orðum við hana en brá korðanum, og hjó eina ána sundur í miðjunni. Að því búnu sagði hann við aðkomumanninn: Konan mín átti helminginn í ánni en jeg gef þjer minn helming; farðu með liann. Ekki er annars getið.en fátæklingurinn hafl þegið það með þökkum. þeir voru litlir vinir Oddur lögmaður Sigurðsson og biskup. Einusinni hjelt Jón biskup ræðu á alþingi. Oddur fjekk sjer ekki geð til að hlýða á ræðuna en sendi svein sinn af stað og bað hann að segja sjer úr messunni. Ræða sú sem biskup hjelt er orðlögð, en svo var hún harðorð að mörgum þótti nóg um; sumir ætluðu jafnvel að fara út úr kyrkjunni í miðju kafl. þá veik biskup máli sínu að afdrifum þeirra Datans og Abírams og bað jörðina að opnast og svelgja guðleysingjana sem vildu ekki heyra guðsorð. Svo brá við orð þessi að alt ljek á reiðiskjálfi. þeim sem út ætluðu leist ekki á blikuna svo þeir settust niður aptur og biðu messuloka. þegar úti var, fór þjónn Odds til húsbónda síns, en svo var honum mikið niðri fyrir, að hann fjell á knje fyrir framan hann og las ræðu biskups orðijetta upp fyrir honum. þegar Oddur hafði heyrt alla ræðuna varð honum þetta að orði: »MíkíU kjaptur er á honum Jóni«. Biskup heyrði sagt frá þessu en trúði því ekki að maðurinn hefði kunnað alla ræðuna. Hann fjekk hana því uppskrifaða hjá honum og bar hana saman við sína, og kom þá fram að ekki munaði einu orði. *) Jeg hef lika heyrt pessa sögu um JónEspólín sýsiumann og konu hans ------------—Ó. D. (48)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.