Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1892, Page 81

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1892, Page 81
mann lífinu til þess að hræða aðra frá glæpaverkum. það verður örðugt að sanna það. Prestarnir eru fremstir í fiokki með að halda dauðahegningunni fram og bera ritninguna fyrir sig, en gleyma þeir því þá ekki, að Jesús kenndi aðrar lífsreglur í fjall- ræðunni, en lög Gyðinga heimta. Prestarnir undirbúa þá, sem dæmdir eru til dauðans, eins vel og þeir geta og af góðum hug, en verður þessi undirbúningur að tilætluðum notum? Og hvenær er sá, sem til dauða «r dæmdur, nægilega undirbúinn? það getur enginn sagt, en víst er það, að undirbúningur þessi er glæpamanninum til mikillar kvalar, og hvað má hann hugsa meðan presturinn er að prjedika um fyrir- gefningu og friðþægingu, þegar þjóðfjelagið er svo hefndargjarnt að það vill ekki sættast upp á aðra skilmála, en að inaðurinn sje af lífi tekinn. þegar morðingi einn var spurður, hvort liann væri undir það búinn að deyja, þá svaraði hann: >það verður víst svo að vera, fyrst mannfjelagið er svo ósáttgjarnt, að það vill engum öðrum bótum taka fyrir óheillaverk mitt, enn að jeg sje af lífi tekinn«. Ef undirbúningurinn til dauðans heppnast svo vel, að maðurinn iðrast illverka sinna af heilum hug og hefur einlægan vilja til þess að bæta ráð sitt, er það þá nauð- synlegt fyrir þjóðfjelagið, að svipta hann lífinu? Tíininn. Notaðu tímann vel. Pyrsta skilyrðið fyrir því er það að þú farir snemma á fætur og byrjir strax að vinna það, sem er þjer eða öðrum til gagns. þetta getur ef til vill verið óþægilegt í fyrstu, af því þú hefur vanið þig á það að sofa langt fram á dag, en þegar frá líður, þá verður pað þjer ekki aðeins þægilegt, heldur nauðsynlegt, þá viltu ekki missa af því að sjá fegurð náttúrunnar nm sóiaruppkomu, heyra fuglasönginn og njóta ánægjunnar af vinnu þinni. Ef þú ferð 1 tíma fyr á fætur á morgnana græðir þú 30 daga á einu ári eða næstum 1 ár á hveijum 10 árum. Vísindamaður í Vesturheimi sagði nýlega á fundi: »Jeg ætla ekki að halda fyrirlestur nema í 5 mínútur, mikið má gjöra og segja á 5 mínútum. Á 5 mínútum má kveikja eld á ýmsum stöðum í stórum bæ og brenna allan bæinn, bora gat á skip, svo það sökkvi, ráða manni bana, vinna það verk, sem menn iðrast eptir alla æfi, eða menn glata sálu sinni ineð. Esaú var ekki 5 mínútur að selja frumburðarrjett sinn, á 5 mínútum geta menn sett blett á mannorð sitt, sem ekki verður af þveginn með öllu • því vatni, sem rennur í öllum ám ájörðunni, en leggur foreldrana í gröfina af sorg. En eins og það er hægt að gjöra svona mikið illt af sjer á 5 mínútum, eins er líka hægt að gjöra mikið gott á 5 mínútum. Á 5 mínútum geta menn unnið þess heit að nota tímann vei fyrir sig og aðra og ganga í bindindi með ofnautn á tíma og öðru því

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.