Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1892, Page 84

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1892, Page 84
sag8í að hún skyldi verða konan hans fyrir guðí og mönnum til eilífðar. — Vesalings Anna, hún valdi ekki þárjettu sölubúð. * * * Við stóran húsbruna var kona ein svo áleitin, að komast sem næst eldinum, til þess að sjá hvernig allt gekk til, að hún varð slökkviliðinu til tafar. Hún var beðin um að færa sig burt, en því gengdi hún ekki *Við skulum þá kenna henni að hlýðas sagði einn í slökkviliðinu, og sneri vatnsslöngunni að henni og setti vatnsbununa beint á hana, en hún vjek sjer ekki við fyrir það; hún þurfti þess heldur ekki, því þegar hún kom heim, var hún skrauf þur, því hún var í vatnsheldri kápu frá FF í N—ffötu 100. * Eitt af því merkilegasta, sem fyrir mig hefur komið var það þegar jeg kom heim um daginn og konan mín þekkti mig ekki, hún sagði jeg væri orðinn svo umbreyttur í þessum flúnkur nýju fínu fötum; jeg hefði ekki átt að kaupa mjer svona dýr föt. En sannleikurinn var sá, að þetta voru gömlu fótin min, nærri gatslitin, en hann T í A—götu var nýbúinn að þvo þau og pressa þau, og þessi mikla breyting kostaði nærri því ekki neitt. * * Jeg varð dauðhræddur um daginn þegar báturinn hvolfdist með hana móður mína; jeg hjelt hun mundi drukna. Að klukku- tíma liðnum var henni bjargað upp í annan bát og svo á land, en þegar menn sögðu henni að hafa fataskipti, voru fötin skraufþur; orsökin var sú, að hún var í vatnsheldri kápu frá M. <£ Co. í T—götu. * * % Náúnganskcerleiki. Konan (við dýrasýning); »Jeg er svo hrædd um að ljónið bijóti búrið og hlaupi út í mannþröngina*. Maðurinn: »pú þarft ekki að vera hrædd, þegar ljónið er búið að jeta alla þá sem næstir standa, þá verður það orðið svo fullt, að það hefur ekki lyst á okkur>. * $ * Hreinlœti. Á: Hvað ertu að fara kunningi. B: Jeg er að fara í bað, jeg hef það fyrir fasta reglu að baða mig einu sinni á ári (!). * * * Úr erfSaskrá: Ef þær 10 sauðkindur, sem mig vantar af fjalli, koma fyrir, þá á þorsteinn sonur minn þær, en finnist þær ekki, þá skulu þær vera eign Jóns litla. Auglýsing: Regnhlíf, sem átti að fara í aðgjörð glataðist í dag á leiðinni hjá vinnukonu minni, sem var brotin sundur í miðjunni. * * * Einn kemur öSrum meiri. Málarinn: Jeg er svo fljótur að mála, að jeg get á fáum mínútum með penslinum mínum breytt híæjandi barnsmynd í grátandi. (to)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.