Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2004, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST2004
Fréttir DV
Höfuðmeiðsl
eftir slagsmál
Lögreglan í
Reykjanesbæ hafði
talsvert að gera að-
faranótt sunnudags
þó margir bæjarbúar
hafi skellt sér til
Reykjavíkur á Menn-
ingarnótt. Tveir menn voru
fluttir á Heilbrigðisstofnun-
ina vegna höfuðmeiðsla
eftir slagsmál í miðbæ
Reykjanesbæjar. Fíkniefni
fundust einnig í fórum hjá
tæplega þrítugum manni á
veitingastað í bænum og
var hann handtekinn.
Hann var þó látinn laus eft-
ir yfirheyrslu. Fjórir voru
grunaðir um ölvun við
akstur á suðurnesjunum
um helgina.
Heimastjórnar-
hátíð á ísafirði
íbúar í Kjarrhólma 24 í Kópavogi eru í sálrænni gislingu af ótta við að geðveik
kona í húsinu valdi sjálfri sér eða börnum þeirra tjóni. Hún gengur fáklædd um
ganga og drukknir vinir hennar rápa inn og út.
Heimastjórnarhátíð var
haldin á ísafirði um helgina
og tóku um ellefu hundruð
manns þátt í hátíðinni.
Hún var sett með því
að eldur var tendraður
og hélt Ólafur Ragnar
Grímsson hátíðarræðu
þar sem hann minntist
sérstaklega á einn
mann. Það var Sigurður
Bjarnason í Vigur sem er
eini núlifandi þingmaður-
inn sem sat lýðveldisfund-
inn árið 1944. Glæsileg
flugeldasýning fór svo í
loftið þar sem eldfoss
steyptist fram af klettunum
í kring algjörlega óvænt.
Búið var að fela þessa flug-
elda þannig að þetta kom
öllum á óvart.
Byrja skólarnir
ofsnemma?
Vilborg Davíðsdóttir
rithöfundur
"Já, mér finnst þeir byrja of
snemma, sumarið hjá krökk-
unum styttist töluvert við
þetta. Ég hefði gjarnan viljað
að börnin fengju að leika sér
lengur í góða veðrinu. En
þetta er nú kannski vegna
þess að þessa stundina er ég
umborð í Baldri, að leggja að
bryggju í Stykkishólmi og þarf
að rjúka í bæinn eftir dásam-
legt sumarleyfi á landsbyggð-
inni. Svo börnin mín mæti í
skólann á réttum tíma."
Hann segir / Hún segir
"Nei, það finnst mér ekki.
Langa íslenska sumarfríið er
hannað fyrir gamla samfélag-
ið. Nú hafa fæstir útivinnandi
foreldrar tök á að sinna börn-
um sínum á sumrin og
bændasamfélagið er að mestu
vélvætt svo ekki fara þau í
sveit að læra á sveitamenn-
inguna. Þau væflast um á
sumrin eða taka þátt írándýr-
um námskeiðum."
Grfmur Atlason
þroskaþjálfí
„Við óttumst mest af öllu að hún kveiki í sér einhverja nóttina
því hún reykir. Við erum hálft í hvoru í gíslingu hér í blokkinni og
vitum ekki hvað gerist næst,“ segir Guðbjörg Gísladóttir, hús-
móðir í Kjarrhólma 24, en íbúarnir eru búnir að fá nóg af sam-
býli við geðsjúka konu sem býr í íbúð á vegum Félagsþjónust-
unnar í blokkinni.
Guðbjörg hefur búið í Kjarr-
hólmanum í tvö ár en allar íbúðirn-
ar nema þessi eina eru venjulegar
eignaíbúðir. Hún segir lögreglu og
sjúkrabifreið svo að segja daglegan
gest fyrir utan blokkina en svo virð-
ist sem enginn hafi umsjón með
fársjúkri konunni.
‘‘Hún hefur ekki valdið neinum
skaða enn, en við vitum ekki
hvenær kemur að því. Börnin eru
logandi hrædd við hana og þora
ekki út ef hún er að ráfa í stigagang-
inum en það gerir hún mörgum
sinnum á dag. Hún er þá oft fá-
klædd og illa til reika og við getum
alltaf búist við henni inn á okkur ef
við gleymum að læsa að okkur. Þá
getur verið erfitt að koma henni út
aftur. Hún lyktar illa og úr íbúð
hennar leggur oft megna ólykt.
Verst af öllu er að það fylgir henni
alls kyns óþokkalýður sem kastar af
sér þvagi í anddyrinu og situr að
drykkju inni hjá henni,“ segir Guð-
björg.
Óttast að hún kveiki í húsinu
Guðbjörg segir íbúana standa
saman í að gera það sem í þeirra
valdi stendur til að koma konunni
undir manna hendur. Hún sé ekki
manneskja til að búa ein og það sé
ekki lengur hægt að leggja það á
íbúana að fýlgjast með henni.
"Við óttumst mest af öllu að hún
kveiki í sér einhverja nóttina því
hún reykir. Hún gæti líka breytt sér
í fugl og flogið fram af svölunum og
börnin komið að. Einn morguninn
kom maðurinn minn að henni í aft-
„Einn morguninn kom
maðurinn minn að
henni í aftursætinu á
bíinum hans þar sem
hún satsem fastast
og neitaði út."
ursætinu á bflnum hans þar sem
hún sat sem fastast og neitaði út.
Taldi sig vera í leigubfl," segir Guð-
björg og játar að ekki hafi staðið af
konunni bein ógn en því meiri
óþægindi.
Pillur í færi barnanna í
blokkinni
„Við höfum margoft rætt við fé-
lagsmálayfirvöld í Kópavogi en þau
hljóta að bera ábyrgð, án árangurs.
Lögreglan stendur ráðþrota og er
ekkert að flýta sér til okkar lengur
þegar við hringjum. Ekki alls fyrir
löngu lá hún hér fyrir utan íbúðina
mína þegar ég opnaði og allt í
kringum hana voru pillur og
pilluglös. Hvað ef börnin komast í
þetta?" spyr Guðbjörg sem er orðin
þreytt á ástandinu. Hún segir ætt-
ingja konunnar ekki sinna henni en
öðru hvoru hverfi hún í tvær þrjár
vikur og þá líði öllum betur.
“Við gerum kröfu um að þeir
sem eiga að bera ábyrgð geri eitt-
hvað áður en stórslys hlýst af,“ seg-
ir Guðbjörg að lokum og ákallar fé-
lagsyfirvöld í Kópavogi.
bergljot@dv.is
Hart deilt um hetjudáðir Johns Kerry
Neita að vera repúblikanar
Hópur gamalla hermanna sem
hafa sakað John Kerry, forsetafram-
bjóðanda demókrata, um að hafa
greint ranglega frá hetjudáðum
sínum í Víetnam, þver-
tekur fyrir að vera á mála
hjá Repúblikanaflokknum.
„Enginn segir okkur hvað
við eigum að segja,“ segir
Van Odell einn félaga í
samtökum sem hafa birt
margar auglýsingar og
skrifað bók. Skilaboð
mannanna er að Kerry hafi
ekki verið heiðarlegur í
frásögn sinni af því þegar
hann vann sér inn purp-
urahjarta.
Málið hefur orðið eitt
heiftúðugusta baráttu-
málið í forsetakosningun-
um og kemur það mörgum
demókrötum spánskt fyrir sjónir að
svo fast sé skotið. Þeir saka her-
mennina gömlu um lygar og hafa
sýnt fram á verulegar veilur í mál-
flumingi þeirra.
Demókratar eru sann-
færðir um að framboð
George Bush standi á
bakvið hinar neikvæðu
auglýsingar.
Kerry hefur kært
auglýsingamar og vill
að bannað verði að
sýna þær í sjónvarpi.
Talsmaður Bush hefur
neitað því að fram-
boð forsetans sé á
bakvið auglýsingarn-
ar. Fylgismenn
Kerrys hafa slegið til
baka og birt auglýs-
ingar um að á meðan
Kerry hafi barist hetjulega í Víetnam,
hafi Bush svikist undan herþjónustu.
John Kerry Gagnrýnirþá
sem efast um hetjudáðir hans
ÍVIetnamstrlðinu og sakar
Bush um að vera á bakvið nei-
kvæðar auglýsingar.
Guðbjörg Gísladóttir Hún
segist óttast mest aföllu að
konan kveiki I einhverja nóttina
og blokkin verði eldi að bráð.
Danskur yfirmaður 1 hernum
Níðist á undirmönn
um sínum
í fyrradag birti danska Ekstra
bladet mynd sem heldur betur
sjokkeraði þjóðina. Myndin ku vera
tekin í júní stuttu eftir að myndirnar
hryllilegu úr Abu Ghraib-fangelsinu
sjokkeruðu heiminn. Myndin sýnir
Kristian Richardt, yfirmann í
hernum, skælbrosandi miða hlað-
inni byssa að höfði félaga síns sem
er með fötu á hausnum. Danskir
hermenn hafa staðfest að myndin sé
tekin á skrifstofu Richardts f Camp
Eden í suðurhluta frak.
Skrifstofa hermála hefur staðfest
að fleiri hermenn hafi orðið fyrir
barðinu á yfirmanninum. Richardt
getur átt yfir höfði sér brot á reglum
hersins og refsingin við því getur
verið allt að eitt ár.
Miðað með byssu Kristian Richardtæfði
sig á undirmanni sínum en gæti nú þurft að
sitja I fangelsi I eitt ár.
Danski herinn er undir mikilli
pressu nú því fréttir herma að þeir
hafi vitað af uppátækjum Richardt í
nokkurn tíma án þess að gera neitt.