Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2004, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2004, Blaðsíða 30
> 30 MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST2004 Síðast en ekki síst DV Jack Nicklaus og Karl Gústaf Þessi frægðar- og fyrirmenni eru hér nánast án þess að nokkur veiti þvi athygli. Sænskur kóngur og Gullbjörn á íslandi eins og ekkert sé Svo mikill er atgangurinn í tengslum við hingaðkomu stór- stjarna í poppheiminum: Lou Reed, James Brown og Van Morrison svo einhverjir séu nefndir að önnur frægðar- og fyrirmenni fara hér um eins og hver annar Jói á bolnum. Og öllum er sama nema náttúrlega DV sem fylgist sem fyrr og eftir bestu getu með því hvað höfð- ingjarnir hafast að. Þannig heyrir DV fregnir af því að sjálfur golfsnillingurinn og goðsögnin Jack Niclaus hafi lent í vikunni á Egils- staðaflugvelh í einkaþotu sinni. Ha? Gullbjörninn hefur reyndar verið tíður gestur á íslandi og erindi hans nú er sem fyrr að komast í lax. Og það mun vera á bökkum Selár í Vopnafirði sem golfarinn snjalli stendur og sveiflar flugustöng sinni. Og svo, svona nánast í framhjá- hlaupi heyrist að sjálfur sænski kóngurinn gisti á Hótel Rangá í góðu yfirlæti. Hann er, líkt og Nicklaus, við veiðar. Kannski ekki margir sem muna eftir því en Karl Gústaf borðar ekki þorsk úr Eystrasalti því Eystra- saltsþorskurinn er á lista yfir dýr og fiska í útrýmingarhættu. En hann lætur sér íslenska laxinn að góðu verða - nema hann sleppi eins og Pálmi og Bubbi? Jahérnahér. • Margur náttúruvemdarsinninn er undrandi á því hvemig talað er um brotthvarf Sivjar Frið- leifsdóttur úr ríkis- stjórninni. Þeir sem hafa varið Siv hvað harðast hafa haldið því fram að hún hafi stað- ið sig mjög vel sem umhverfisráðherra. Þessu em nátt- úruvemdarsinnar ekki sammála og minnast á Kárahnjúkavirkjun sem hún samþykkti þrátt fyrir að Skipu- lagsstofnun hefði lagst gegn henni af umhverfisástæðum. Á sama hátt þorði Siv ekki að úrskurða um Þjórs- árverin, segja náttúruvemdarsinnar. Ennfremur segja þeir hana njóta tak- NUNÆéfiÞBSSU BLESSAÖA VXbTALI Vtfi HANN fVRIR OW/ - PÓ MÉft HAFI SEWlb XLLA Afc N/ SAMBANOIVtb ÖABBA KÖN6, UPP A SÍ&KASTIð, JESSIÉ6BABA TBÚXPESSU . EKKII ^ MÁPÓ SEfiSA* 5 SE MEð HANN .NUNNI NÚNMl HÚKK'ANNI :^r "V Síðast en ekki síst markaðrar virðingar erlendis fýrir sín umhverfisstörf... • Núþegar Jón Steinar Gunnlaugs- son hefur sótt um að verða hæstaréttar- dómari, bíða menn spenntir eftir því hvað Bjöm Bjama- son dómsmálaráð- herra geri. Hann hlaut mikla gagn- rýni fyrir að skipa ffænda Davíðs Oddssonar í hæstarétt síðast og nú velta menn fyrir sér hvort hann skipi næst einn nánasta vin forsætisráð- herra. Jón Steinar lýsti því yfir í DV þegar hann var fyrst spurður um það hvort hann ætlaði að sækja um sæti í Hæstarétti þegar Pétur Kr. Hafstein hætti, að ef hann hefði áður sótt um starf hæstaréttardómara, þá væri hann orðinn dómari... • Hjónaleysin Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálma- dóttir kunna að njóta lífsins. Nýverið bauð Ingibjörg tæp- lega tíu manna hópi gamalla skólasyst- kina sinna til Króatíu í skemmtisigl- ingu með snekkju um Miðjarðarhaf- ið. Naut hópurinn dvalarinnar en þegar komið var að leggja af stað heim á leið, með einkaþotu, mun hafa borist símtal til Ingibjargar og var Jón Ásgeir þá á línunni. Hann bað hana vinsamlegast að koma koma og pikka sig upp í Ungverja- landi á leiðinni. Þar var hann með félögum sínum að skoða Formúlu eitt kappakstur, enda þekktur fyrir áhuga sinn á góðum bílum... Hjálparsveit skáta í Reykja- vlk og skotstjóri þeirra, Vlðir Reynis- son, eiga sannarlega hrós skilið fyrir flugeldasýninguna á Menningarnótt. Með 2.857 bombum, fimm á hverri sekúndu, ráku þeir stórkostlegan endahnút á vel heppnaða menning- arhátíð og bættu við fegurð himins- ins svo lengi verður Iminnum haft! „Þetta er alveg frábært og ánægjulegt að starfa með þeim ágæta hópi í KSÍ undir forystu... hvað heitir hann aftur, já, Eggert Magnús- son, að þessu verkefni," segir gull- drengurinn Einar Bárðarson sem flaug norður á bóginn um það leyti sem landsleikur íslands og Ítalíu hófst. Einar var að fara í veiðitúr með Björgvin Halldórssyni og öðrum góðum mönnum nyrðra. KSÍ kallaði á aðstoð Einars og markmiðið var að slá aðsóknarmetið. Þegar DV náði tah af Einari lá þeg- ar fyrir að aðsóknarmetið á Laugar- dalsvelhnum hafði verið slegið. í raun má það heita furðulegt að þetta met hafi ekki verið slegið fyrir lifand- is löngu en það var sett þegar Vals- menn mættu Benfica fyrir 36 árum. Þá mættu átján þúsund á völlinn en nú voru þeir rétt rúmlega 20.204. Víst er að ekki hefur verið mikið við að vera fyrir 36 árum og líklega flestir, aðrir en Valsarar, fegnir því að ekki þurfi að fást lengur um hið foma met. Einar er ekki í vafa um að þama hefur popplandshðið sem hann sjálfur stihti ffam á tónleikum sem vom fyrir leik gert gæfumuninn: Nylon, Papar, í svörtum fötum og fleiri. „Já, jahh, það hjálpaðist nátt- úrlega aht að, veðurbhða, stemning- in var frábær." Og þetta sumar hefur reynst Einari gott og aht sem hann; snertir virðist verða að guhi.' Uppselt er á vænt- anlega tónleika ' Van Morrisson 2. október og tók það ekki langan tíma að koma út 2.526 mið- um út á írska snih- inginn - eða einn dag. Einar stóð fyrir hingaðkomu Deep Purple og seldust miðar á þá tónleika upp á augabragði - nokkuð sem enginn hafði séð fyrir. Einar setti þá á aukatónleika og seldist upp á þá einnig. „Já, þetta er kannski sambland af heppni og kunnáttu," segir Einar sem vih aðspurður ekkert gefa út á það hvort hann sé ekki að verða vel fjáður eftir þessa velgengni. „En sko... já, þetta er kannski spuming um að setja sér takmörk. Aðeins er Einar Bárðarson „Þetta ersam blandaf heppni og kunnáttu," seg- irhann en á alla þá viðburði sem hann hefurstaðið að hingað til hefur selst upp á. Hann er nú I veiðitúr með Björgvin Halldórssyni og slappar afeftir vel unnin störf. | Laugardalsvöllur í gær Að- | sóknarmetið fauk. Einar Bárðar-1 1 son er ekki I vafa umað popp- | landsliðið sem hann stillti fram | hafi gert gæfumuninn. boðið upp á miða í sæti en hægt væri að koma helmingi fleirum ef væri stað- ið. Svo er auðvitað að hitta á það sem höfðar th fjöldans. Og það virðist ekki síður vera þeir sem eldri em í hettunni í bransanum," segir Einar. Næsta verkefni hans á þessu sviði em svo tónleikar með Marianne Faithfuh 11. nóvember í Háskólabíó. Þar verða einungis 900 miðar í boði. Einar er, eins og áður sagði, með mörg jám í eldinum. Velgengni Nylon-stúlkna, sem em undir handjaðri hans virðist engan enda ætla að taka. Og fyrirtæki Einars stóð fyrir þessum miklu tónleikum, í sam- vinnu við KSÍ, sem haldnir vom í tengslum við landsleik íslands við Ítalíu í fótbolta. Það er ljóst að Einar er með puttann á púlsinum þegar skemmtanir landsmanna em annars vegar. jakob@dv.is Lárétt: 1 bút,4 lán,7 stillt, 8 málmur, 10 mjúkt, 12 ánægð, 13 tegund, 14 elja, 15 elsk- ar, 16 ferill, 18 varningur, 21 gripur,22 hæðir,23 gort. Lóðrétt: 1 hrúga, 2 augnhár, 3 aðseta. 4 glás, 5 siði, 6 pikk, 9 veið- arfæri, 11 nirfill, 16 greina, 17 bergmála, 19 hugarburð,20 kúst. Lausn á krossgátu dps 02'eJ9 6l'BLU9ZL 'yfs 9 l 'soueu 11 '||on 6 'iod 9 '|6e s 'jn6u!||0i| y 'jnQeiS|9q £ 'ejq z 's°>i l m^JQOl dnej £Z 'Jesp ZZ 'Jnunui iz 'ssgB 81 '99|s 91 'uue s l '!UQ! y 1 'nos £ 1 '|æs z l 'iuj| 01 '|yjs 8 '6a|9J l 'ddeq y 'qqn>( 1 :»ajen Gola

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.