Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2004, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST2004 Sport DV ÚRVALSDEIID ENGLAND Urslit Southampton Blatkburn 3-2 1 -0 Kevin hhilíps (32!, I I Barry f nrguson (50,), 1 -2 haui Ditkov (67,), 2 2 Anders Svénsson (74 ), 3- 2 Jantes íieattie, víti (90.), Blrmingham-Chelsea 0 1 0 I Jot> Cole (68,j Charlton - Portsrnouth 2-1 1 0 Jason Euell (73 ), I 1 Patrlck Berger (53,j, 2-1 sjálfsmark (87,) Crystal Palace -Everton 1 -3 1 -0 Mark Hudson (9.!, 1 1 l homas (jravesen, viti (19.), I 3 Thomas Gravesen (62.), 1-3 Marcus Bent (82,1 Fulham-Bolton 2-0 1-0 Aiidy Cole ('>.). 2- 0 Andy Cole (82.). Liverpool Man, t ity 2-1 0 I Nicolas Anelkð (*15 ), I I Milan Baios (48.), 2 l Steven Gerrard (75 ). Newcastle-T ottenham 0-1 0 -1 lintoíhee Atouha (51,) Man. Utd.-Norwích 2-1 1-0 Davirt Bellion (32.), 2-0 Alan Smílh (50 ), 2-1 Paul McVeigh (75.). WBA-Aston Villa 1-1 0 I OI.it Melberg (-11, I 1 Neíl Clement (.18.). Arsertal Middlesbrough 5-3 1 -01 liierry Henry (25,), 1-1 ioseplt Desire loh (-11), I 2 limrny I lasselbaink (50 I, I 3 í i.mck Queudrtie (53.), 2 3 Dennis Bergkamp (54 ), 1 i Josa Antomo Reyes (65.), 1-1 liobeit Piies (65.), 5 3 Ihierry I ienry (90.). Nottingham Forrest lék 47 deildarleiki i töö án þess að tapa fr.i 20. növemhet 1977 (il 9. desembei 1978 Nottingham liðið tapaöi loks fyrir Uveipool sent varð seinna um vorið bnglandsmeistari. Arsenal vann tvo siöustu leíki sin.i tfmabilið 2002-03 og tapaöi síðan ekki leik i fyna (38 leikir á timabili), unnu Everton 4 1 í fyrst.i leik timabilsins og svo Middlesbrough i g.i’t Fjórir leikmenn i liöi Arsenal hafa skorað tvö rnórk í fyistu tveinun umferðunum og liðíð hefur skorað alls 9 mörk i þeim. helr Dennis Bergkamp, Thietry I leniy, Jose Antonio Reyes og (lobeit Pires liafa allír skoraö tvö mörk og Píres b.cöi eftir að hafa komið inn á sem vaiamaðui Arsenal jafnaöi met Nottingham Forest og lék sinn 42. deildarleik í röð án þess aö tapa í ensku úrvalsdeildinni í gær. Liðið vann Middlesbrough, 5-3, þrátt fyrir að hafa lent 1-3 undir og það er virðist ekki vera hægt að vinna þetta lið. Enn eitt Arsenal-liðið er ótrúlegt. Það sýndu menn Arsene Wenger enn einu sinni í gær þegar þeir komu aftur eftir að hafa lent 1-3 undir gegn Middlesbrough og tryggðu sér 5-3 sigur og léku þar með sinn 42. deildarleik í röð án þess að tapa og jöfnuðu 25 ára met Nottingham Forest. Arsenal er á toppnum en Chelsea fylgir þeim fast eftir. Þetta eru einu liðin með fullt hús. Það eru 15 mánuðir síðan Arsenal tapaði síðast deildarleik. Það var gegn Leeds í lok tímabilsins 2002-03 og það er erfitt að sjá þetta frábæra lið tapa leik. Dæmi um það er hvernig Arsenal-menn brugðust við því að lenda 1-3 undir í gær. Það tók Dennis Bergkamp innan við mínútu að minnka muninn og eftir að þeir Robert Pires og Jose Antonio Reyes skoruðu tvö mörk á sömu mínútunni var Arsenal komið yfir 12 mínútum síðar. Það var síðan Thierry Henry sem innsiglaði sigurinn með sínu öðru marki í leiknum. „Við sem vorum inn á vellinum áttuðum okkur ekki einu sinni á því sem við höfðum afrekað," sagði Thierry Henry og lofaði fyrirliðann Dennis Bergkamp. „Sem betur fer leit Dennis út fyrir að vera 20 ára en ekki 35 ára. Leiðinlegt en stigin koma Lærisveinar Jose Mourinho hjá Chelsea eru með fullt hús eftir fyrstu tvær umferðirnar en sigrarnir hafa hvorki verið sannfærandi né skemmtilegir á að horfa. „Þetta var áfail en við fdeyptum Chelsea úr prísundinni með því að nýta ekki færin okkar," sagði Steve Bruce, stjóri Birmingham, og Mourinho hrósaði liðsmönnum Bruce. „Ég skil fólk sem finnst við hafa spilað illa en Birmingham spilaði líka mjög vel. Ég er mjög ánægður með liðsandann í mínu liði og hvernig allir menn liðsins spiluðu vörnina. Ég skipti Joe Cole inn á til þess að lífga upp á sóknarleikinn þannig að ég hugsa ekki bara um vörnina," sagði Mourinho eftir leik. Umræddur Cole skoraði einmitt eina mark leiksins fimm mínútum eftir að hann kom inn á. Sá ekki leikinn! Kevin Keagan kvartaði bæði yfir dómaranum sem og Rafel Benitez, stjóra Liverpool, eftir 2-1 tap Man. City á Anfield. „Herra Benitez verður að fara læra það að hann á að sitja í sfnu sæti meðan á leik stendur. Það er lítið pláss fyrir okkur á hliðarhnunni á Anfield og hann stóð allan tímann. Það er erfitt að koma hingað og ná í stig en ég verð að fara heim og horfa á leikinn á myndbandi því ég sá ekkert fyrir Benitez," sagði Keagan en hann vildi einnig meina að dómarinn hefði verið farinn að skipuleggja örugga brottför af vellinum í leikslok sem hann taldi benda til að umræddur dómari léti undan pressu áhorfenda. Það voru þeir Milan Baros og Steven Gerrard sem gerðu útslagið fyrir Liverpool og sáu til þess að skelfileg mistök markvarðarins Jerz Dudek skiptu ekki máli. Dudek missti boltann til Nicolas Anelka sem kom City yfir en þeir Baros og Gerrard lögðu upp mörk hvor annars og tryggðu Liverpool fyrsta heimasigurinn undir stjórn Benitez. „Við töpuðum leik sem við áttum að vera búnir að vinna í hálfleik. Þeir vörðust vel og það er hægt að hrósa þeim fyrir það en við vorum engu að síður rændir," sagði Bobby Robson eftir 0-1 tap hans manna í Newcastle fyrir Tottenham á St. James. Kamerúnsld landsliðsmaðurinn Thimothee Atouba skoraði sigurmarkið rétt eftir hlé og Tottenham vann sinn fyrsta sigur undir stjórn Jacques Santini. „Ég var ánægður með mitt hð og það að við náðum góðum sigri á erfiðum útivelli. Þegar við spilum gegn mönnum eins og Shearer, Bellamy, Rober og Jenas þá leggur maður áherslu á vörnina frá fyrstu mínútu og hún lagði grunninn að sigri okkar," sagði Santini eftir leikinn. Alan Smith skoraði glæsilegt mark og lagði upp annað í 2-1 sigri Manchester United á nýhðum Norwich. Nýliðarnir ógnuðu marki United mikið í lokin, minnkuðu muninn á 70. mínútu og komust mjög nálægt því að taka með sér stig frá Old Trafford. Alex Ferguson var samt ánægður með leikinn og fannst sigurinn ekki vera í hættu. „Við spiluðum vel og áttum að bæta við þriðja markinu til þess að guiltryggja sigurinn. Alan hefur gert góða hluti fyrir okkur, gerir öllum varnarmönnum lífið leitt og í þessum leik var hann stórkostlegur. Hann minnir mig orðið á Mark Hughes og markið hans var einmitt dæmigert mark fyrir Hughes. Gravesení stuði Thomas Gravesen skoraði tvö mörk fyrir Everton sem vann 1-3 útisigur á nýhðum Crystal Palace. Everton sýndi með þessum sigri að þeir eru ekki á hraðferð niður úr deildinni og stjórinn David Moyes JJ Ég verð að fara heim og horfa aftur á leikinn á myndbanc ekkert íleiknum fyrir herra Benitez. KevinKea^an sa^ðiaðRafael8eniíczhefsiver Bolta bullið eftir Stefán Pálsson í síðustu viku mættu meira en 20 þúsund manns á Laugardalsvöllinn. Með fýllstu virðingu fyrir karókí- bandinu hans Einars Bárðarsonar og sígildum (og sífelldum) flutningi Geirs Ólafssonar á gömlum Sinatra- slögurum, mætti allt þetta fólk fyrst og fremst til að horfa á ítalska landsliðið leika vináttulandsleik. Aulaleikarnir í Aþenu Þremur dögum fyrr mættu helm- ingi færri áhorfendur á annan fót- boltalandsleik ítala. Það var enginn vináttuleikur, heldur mikilvæg viður- eign í riðlakeppni á meintu stórmóti. Tæplega 9.500 áhorfendur sáu ítali leggja Japan að velli á Ólympíuleik- unum, 3-2. Alberto Gilardino frá Parma, sem í fýrra var næst- markahæstur í Serie A, skoraði tvisvar. Við megum þakka fyrir að Gilardino var fjarri góðu gamni í Laugardalnum. öllum stendur á sama eftir sigur- inn á miðvikudaginn, skömmuðust íslenskir íjölmiðlar yfir þögn ítalskra starfsbræðra sinna um leikinn. Hvað mætti þá segja um hið fullkomna áhugaleysi á fótboltakeppni Ólymp- íuleikanna? Svo virðist sem öllum sé skítsama. Ekki kæra Grikkir sig um þessa keppni, svo mikið er víst. Um 20 þúsund manns horfðu á hvern leik heimamanna, einkum skólakrakkar sem fengið höfðu frímiða til að af- stýra hneyksli. Á sama tíma fylgdist gríska þjóðin spennt með marka- lausu jafhtefli í vináttulandsleik Evr- ópumeistaranna gegn Tékkum á úti- velli. Fótboltakeppni karla á Ólympíu- leikunum er brandari. Hún er svar Al- þjóðaknattspymusambandsins við Inter-toto keppninni eða íslenska deildarbikamum. Það þarf ekki ann- að en að renna yfir liðin í fjtírð- ungsúrslitunum: Malí, frak, Ástralía, Suður-Kórea og Kosta Ríka! Einungis Argentína, Paragvæ og Ítalía em nöfn sem klingja einhverjum bjöllum. Lengi vel átti fótboltakeppni ÓL að heita keppni áhugamanna. Fyrir vik- ið unnu gervi-áhugamenn frá kommúnistaríkjunum í hvert einasta skipti. Með tímanum urðu meira að segja kommamir leiðir á úrslitaleikj- um Búlgara og Austur-Þjóðveija og hættu að nenna að senda sín sterk- ustu lið. Síðar var keppninni breytt í ung- lingamót, sem engir nema Afrikubú- ar höfðu áhuga á. Núna em sterkustu Afrikuþjóðimar líka búnar að missa áhugann. Þess vegna fær Malí að láta ljós sitt skína, en Nígería, Kamerún og Suður-Afrika em hvergi nærri. Hver er tilgangurinn? Hvaða tilgangur Einn og einn þekktur knatt- spymumaður dettur inn á Ólympíu- leikana og enginn skilur hvað hann er að gera þar. Þannig em stuðnings- menn Manchester United æfir yfir að Christiano Ronaldo hafi skellt sér til Aþenu í stað þess að taka þátt í upp- hafsleikjum tímabilsins. Sennilega hefði það mætt meiri skilningi ef Ronaldo hefði skrópað til að flatmaga á sólarströnd með súpermódeli. Það

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.