Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2004, Blaðsíða 27
DV Fókus
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST2004 27
m
www.sombioin.is
SÝND kl. 5.50, 8 og
B.L14
SÝND kl. 5.45 og 7.30
M/iSLENSKU TAU
-
REGnBOGinn
DDDolby /ÐD/.. Thx SÍMI: 551 9000 www.regnboginn.is
www.laugarasbio.is
Ragnheiður Gröndal söngkona hefur gert víðreist í sumar, bæði landfræðilega og
tónlistarlega. Hún segir sumarið hafa verið frábært og er þegar farin að hlakka til
vetrarins þegar hún gefur út sólóplötu.
„Þetta er búið að vera frábært
sumar," segir Ragnheiður Gröndal
söngkona. „í byrjun sumars söng ég
með djassbandi ásamt bróður mín-
um, honum Hauki. Við spiluðum á
litlum og kósí stöðum í bænum og
síðan á djasshátíð á Egilsstöðum.
Svo fór ég í tíu daga tónleikaferðalag
um landið með hljómsveitinni Black
Coffee. Við spilum blús og djass, og
tónlist eífir mig. Þá fór ég í ferð með
hljómsveitinni Schpilkas sem sam-
anstendur af þremur Dönum og
þremur íslendingum. Við spilum
klezmer, sem er þjóðlagatónlist Gyð-
inga og einnig ýmsa tónlist ff á Aust-
ur-Evrópu.“
Ragnheiður er aðeins 19 ára göm-
ul og hefur þegar lokið við fyrstu sex
stigin í söng- og píanónámi og gefið
út djassplötu fyrir síðustu jól sem
seldist mjög vel. Hún læmr sér ekki
nægja að syngja djass, blús og klez-
mer-tónlist heldur hefur hún líka
verið að syngja með hljómsveitinni
Ske sem hefur getið sér góðan
orðstír, bæði hér á landi sem erlend-
is. „Ég fór líka til Bretlands í sumar
með Ske. Við spiluðum á allskonar
stöðum. Ske er allt öðmvísi en hinar
hljómsveitirnar sem ég hef sungið
með. Þeir spila rosalega flotta og
skemmtilega popp- og rokktónlist."
Ragnheiður segist sjálf mest
hlusta á djass og góðar söngkonur.
„Joni Mitchell er voðalega mikið á
fóninum sem stendur, annars hlusta
ég bara á það sem mér finnst flott
hverju sinni.“
Það er margt spennandi fram-
undan hjá Ragnheiði, meðal annars
sólóplata um jólin sem mun inni-
halda ljúf vetrar- og jólaljóð, og plata
með Ske. Hún segir að henni finnist
frábært að geta unnið við tónlist og
vonast til að geta gert það áfram í
framtíðinni samhliða því að mennta
sig enn frekar á sviðinu. „Ég vil bara
halda áfram að syngja og semja tón-
list, ég er samt ekkert með neina sér-
staka poppstjörnudrauma."
Tökur á
himnaferð Balta-
sars Kormáks
hefjast á næstu
dögum en á föstu-
dag mátti sjá leik-
stjórann og sam-
starfsmenn hans
gera sér glaðan
dag á Kaffibamum áður en
törnin hefst. Nýi íbúinn í
Þingholtunum, JuMa Stiles,
kvikmyndastj arna frá Amer-
íku, virtist skemmta sér kon-
unglega á nýja hverfisbarn-
um sínum á fslandi. Þar vom
einnig litla Dís-stjarnan
Alfrún ömólfsdóttir ásamt
Hveriir voru hvar
gamla góða Pétri Pan,
Friðriki Friðrikssyni leikara,
en þau eru par.
Nokkur hluti af rúmlega
100 þúsund gestum á Menn-
ingarnótt, komu auðvitað við
á ölstofum og skemmtistöð-
um borgarinnar að skála fyrir
velheppnaðri hátíð, slá
taktinn og sumir stigu
dans. Á Geirfuglaballinu í
Iðnó, sást til þingmanns-
ins Hjálmars Ámasonar
meðal ballgesta, en þar
voru líka Steingrímur
Ólafsson kynningarfuU-
trúi og ekki síður Ottó
Tynes tónlistarmaður. Val-
ur Gunnarsson ritstjóri og
Grapevine-gengi hans voru
svo í grenjandi og öskrandi
stuði á De Palace. Að lokn-
um vel heppnuðum tón-
leikum Rásar 2 á Miðbakka,
skeiltu strákarnir f Leaves
sér rakleiðis á Sirkus. Þar
voru þá fyrir allar þær
fýrirsætur landsins sem
starfa í útlöndum og eru
heima í sumarfríi og
ekki lét Andrea Róberts-
dóttír sig vanta heldur.
Jónsi í Sigurrós heiðraði
þann stað líka með nær-
veru sinni.
Á Ölstofunni og
Vegamótum var
mjög margt um
manninn. Búið var
að sameina staðina
og girða portið af.
Þar var Simmi og Jói
í góðum fíling ásamt
Guömundi Stein-
grímssyni, harmonikuleikara
Ske.
Klukkan tíu í gærmorgun
voru hinir skemmtanasjúku
enn á ferð um miðborg Reykja-
víkur en f görðum og á túnum
hringuðu þeir sig sem ekki náðu
heim áður en óminnishegrinn
hafði betur.
Tálog
blekkingar
Æfingar standa nú yfir í Borg-
arleikhúsinu á frægu verki eftir
Harold Pinter sem heitir Betrayal
og lýsir í öfugri tímaröð ástarsam-
bandi karls og giftrar konu, en
hinn kokkáiaði eiginmaður og
elskhugi konunnar eru bestu vinir
og að auki rithöfundur og útgef-
andi. Munu þeir Felix Bergsson
og Ingvar Sigurðsson leika karl-
mennina í þríhymingnum en Jó-
hanna Vigdís eiginkomma. Verkið
vakti mikla athygli þegar það var
frumsýnt fyrir nær þremur ára-
tugum sökum þess að það lýsti á
opinskáan hátt sambandi leik-
skáldsins við fræga sjónvarps-
konu. Þótt það sé oftast talið með
áhrifameiri síðari verkum skálds-
ins þá er það talið afar erfitt í
þýðingu, en ekki hefur frést hver
leysir þá þraut í Sogamýrinni. Það
er fyriirtæki Baltasars
Kormáks sem stendur
að leiksýningunni í
samstarfi við Leikfé-
lag Reykjavíkur og
mun einnig standa
til að flytja
verkið á sviði
norðanlands í
samvinnuvið
Leikfélag Akur-
eyrar. Þávekur
það ekki síður
athygli að Edda
Heiðrún Back-
man leikstýr-
ir.
Madonna
góðvið
Britney
Madonna hefur eytt mörg
hundruð þúsundum króna til að
kaupa sjaldgæfa bók frá 12. öld
um Kabbalah-trúna fyrir vinkonu
sína Brimey Spears. Brimey ku
hafa orðið hrifin af trúnni eftir að
Madoima kynnti hana fyrir
henni. „Madonna hefur alltaf litið
eftir Brimey, þegar Britney átti
erfitt fyrr á áiinu notaði Madonna
Kabbalah-trúna til að hjálpa
henni. Brimey var hæstánægð
með bókina, hún hefur lesið hana
spjaldanna á milli og er hugfiang-
in af henni," sagði heimildarmað-
ur.