Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Side 4
4 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Þórólfur aftur í
Sigurður ísmaður Pétursson, skipstjóri í Kuummiit á Grænlandi hefur náð því
í gærmorgun voru ráöa-
menn þjóðarinnar og önn-
ur fyrirmenni, þau sem
ekki voru þegar farin,
á leið til Parísar. Til-
gangurinn er vita-
skuld sá að fagna
með Tómasi Inga
Olrich sendiherra
sem stendur fyrir
veglegri menning-
arveislu í París
þessa dagana. Með
flugvél Flugleiða í
gærmorgun voru
meðal annarra Þor-
gerður Katrín
Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra, Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra,
Guðríður Sigurðardóttir
forstöðumaður Þjóðmenn-
ingarhúss, ráðuneytisstjór-
ar og önnur fyrirmenni,
vitaskuld á Saga Class. At-
hygli vakti að meðal al-
mennings sat hins vegar
borgarstjórinn Þórólfur
Árnason.
Jarðskjálftar
við Reykjanes
Milli klukkan átta og tíu
á laugardagskvöld urðu sex
jarðskjálftar út af Eldeyjar-
boða á Reykjaneshrygg.
Fyrsti skjáíftinn var stærst-
ur og mældist hann 3,3 á
Richter en hinir sjálftarnir
mældust frá 2,6 tú 29 á
Richter. Nokkuð algengt er
að skjálftahrinur gangi yfir
á þessum stað.
Rangt að
reka frétta-
konurnar
Kærunefnd jafnréttis-
mála úrskurðaði Huldu
Gunnarsdóttur í vil í máli
sem hún rak gegn Stöð 2.
Hulda, sem er fyrrum
fréttamaður Stöðvar
2, kærði brottrekst-
ur sinn sem var í
júní 2003 og hið
sama gerði Bryndís
Hólm. Bryndísi var
einnig sagt upp störf
um sem og tveimur
öðrum konum. Þá
voru starfandi 7
konur og 10 karlar á frétta-
stofunni en eftir uppsagn-
irnar 3 konur gegn 10 körl-
um. Stöð 2 þótti ekki hafa
fært nógu góð rök fyrir
uppsögninni en í kærunni
kom fram að karlar sem
voru með lægri starfsaldur
en þær Hulda og Bryndís
héldu störfum sínum þegar
„skipulagsbreytingarnar"
áttu sér stað.
Sigurður Pétursson skipstjóri, sem um árabil hefur búið við
frumstæðar aðstæður á Austur-Grænlandi, náði í síðustu viku
því langþráða markmiði sínu að fella ísbjörn. Sigurður, betur
þekktur sem ísmaðurinn, hefur í sumar verið við veiðar á náhval
norður í Kangerslussiak, óravegu frá byggð, þar sem björninn
var felldur.
„Þetta var góður fengur enda er
kjötið af skepnunni ljúffengt. Ég
borðaði hjartað úr ísbirninum með
bestu lyst,“ segir Sigurður sem ný-
kominn er úr hálfsmánaðartúr á
norðurslóðir þangað sem hann fór
ásamt tveimur Grænlendingum.
Það var annar grænlenski veiðimað-
urinn sem kom auga á björninn.
Óskráðar reglur eru um að sá sem
fyrstur sér fsbjörn eigi rétt á skinni
hans. Aðrir fá svo hlutdeild í dýrinu
eftir því hver aðkoma þeirra er að
drápinu. Sigurður, sem
skaut björninn og er
eigandi bátsins
sem félagarnir
voru á er næstur í
goggunarröðinni.
Eftir að björninn
var felldur segir
ísmaðurinn að
það hafi verið
bjarnakjöt í
hvert mál.
bróður síns, Jóns Péturssonar, sem
snaraði á sínum tíma ísbjörn á Vest-
fjarðamiðum og hlaut reyndar bágt
fyrir. Jón hefur aldrei til Grænlands
komið.
Félagarnir þrír á fleyi ísmannsins
veiddu einnig þrjá náhvali sem
skiptast einnig upp eftir reglum.
Hvalirnir voru aÚir skutlaðir frá
kajökum en síðan gert að þeim í fjör-
unni. Verðmætasti hluú náhvalsins,
mattakið, er ysta spiklagið sem
Grænlendingar borða hrátt og
krydda með aromat.
ísmaðurinn er þekktastur fyrir að
hafa á síðasta hausti fangað hákarl
með því að vaða út í sjó og grípa ber-
hentur um sporð hans. Siguröur
drap hákarlinum síðan með hníf
sínum. Sú frétt flaug um gjörvalla
heimsbyggðina og náði meðal ann-
ars í aðalfréttatíma CNN.
Þetta er svo gott kjöt
að enginn ástæða er
til að kvarta.
ísmaðurinn er ekkert á förum frá
Kuummiit. Hann hefur nú nóg að
bíta og brenna fram á veturinn þar
sem búr hans er fullt af mattak og ís-
bjarnakjöti, í húsi hans er hvorki
rennandi vatn né salerni en hann
segist ekkert þurfa á slíku að halda.
„Mér líður hvergi betur en á
Grænlandi," segir hann.
n@dv.is
„Þetta er svo
gott kjöt að
enginn
ástæða er til
að kvarta,"
segir hann.
Sigurð-
ur hefur
búið á
Grænlandi í 5
ár. Það hefur
lengi verið mark-
mið hans að fella
ísbjörn og ná
þannig að jafna met
Kuummiit Lífíð í þorpinu er frum-
stætt. Hér er Sigurður fyrir framan
söluskálann þar sem íbúarnir kaupa
sérkók og snakk.
Ismaðurinn Sigurður Pétursson
felldi isbjörn I veiðiferð sinni á dög-
unum. Þetta var langþráður draum-
ur hans enda hefur hann lifað I
skugga þess að Jón Pétursson, bróðir
hans, er ísbjarnarbani þótt hann
hafi aldrei til Grænlands komið.
Skjár einn kann ekki enska boltann
Nú getur Svarthöfði ekki lengur
setið á sér. Það er eitthvað skrýtið við
meðferð Skjás eins á enska boltanum.
Samt er Svarthöfði ekki einn af þeim
sem vill íslenska kynna fremur en
enska, þvert á móti. Og þótt Svart-
höfði gefi ekki mikið fyrir þætti Snorra
Más þá gera þeir engum iílt, þeir valda
engum skaða þótt þeir bæti misjafn-
lega miklu við. Því er Svarthöfði alveg
sáttur við að enski boltinn sé á Skjá
einum. Enda er Svarthöfði ekki á mála
hjá Sýn og alveg sama hvort þeir sýni
bara gólf og bikarleiki. Það kemur
Svarthöfða ekki við.
Og þar liggur einmitt hnífurinn í
Svarthöfði
kúnni. Svarthöfða er alveg sama á
hvaða stöð enski boltinn sé sýndur.
Það mætti sýna hann á Omega og
Svarthöfði myndi þá horfa á hann
þar. Skiptir ekki máli. En Omega-
menn yrðu þá að skilja það og vita.
Eins og þeir gerðu á Sýn en gera ekki
á Skjá einum. Þar halda menn að
Svarthöfða og öðnun áhorfendum
þykji vænt um stöðina af því þeir
sýna enska boltann. Og því eru á Skjá
einum í keyrslu auglýsingar þar sem
verið er að segja að enski boltinn sé á
Hvernig hefur þú það?
„Ég er allur að koma til, “ segir Bubbi Morthens, tónlistarmaður og Idoldómari sem glímt hefur
við raddleysi undanfarið vegna streptókokkasýkingar.„Um helgina flaug til ég Akureyrar til að
spila með Egóinu. Slðan mætti ég og í Idolið á sunnudagsmorguninn í Austurbæ. Verkum mín-
um lauk á sunnudagskvöld klukkan 11 ogég stefni að þvlað sofa á mánudag og þriðjudag".
Skjá einum. Eins og það hefði farið
ffamhjá einhverjum. Þessar auglýs-
ingar eru í stanslausri keyrslu og eiga
að vera ógurlega sniðugar en eru að
gera Svarthöfða og hvem einasta fót-
boltaáhugamann á íslandi brjálað-
an.
Ástæðan er einföld. Við vitum að
enski bolúnn er sýndur á Skjá einum
og það þarf ekki að segja okkur það
aftur og aftur og aftur. En við vitum
ekki alltaf hvaða leikur er næsta laug-
ardag og sunnudag en það er hefð
fyrir því að auglýsa frekar leikina
sjálfa heldur en einhverjar kjánalegar
ímyndauglýsingar með Snorra Má
Skúlasyni. Þeúa er það sem er að gera
Svarthöfða bijálaðan þessa dagana.
Að honum sé ekki sagt hvaða leikur
sé um næstu helgi á Skjá einum. Þeir
kunnu þeúa á Sýn og þeúa ætti ekki
að vera erfiú. Jafiivel ekki fyrir Snorra
Má Skúlason.
Svarthöföi
markmiði sínu að fella ísbjörn. Jafnaði þar með bróður sinn, Jón Pétursson, sem á
sínum tíma drap ísbjörn á Vestfjarðamiðum
ísmaðurinn át
f f
hjarta ur isbirni