Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Qupperneq 10
1 0 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Stefán
Kostir & Gallar
Stefán er forvitinn húmoristi
sem hefur áhuga á fólki, mann-
legum málefnum og ekki slst
kjaftasögum. Kemur sér beint
að efninu og er ekki gefmn fyrir
hjal. Stefán er skapandi lista-
maður og hefur löngun til að
bæta heiminn. Hann ku vera
kominn að kjarnanum.
Stefán er af leikaraætt og
taldi á sínum tima að öll
stærstu hlutverkin í leikbók-
menntunum hefðu verið
skrifuð fyrir sig. Það reyndist
honum um tíma erfitt er
hann komst að því að svo
var ekki en hefur nú gengið í
endurnýjun lífdaga sem hug-
myndaríkur leikstjóri.
„Kostir Stefáns eru meðal
annars hvað hann er for-
vitinn um lífið í kringum
sig og sjálfan sig. Hann
er skapandi manneskja
og hefur gráðuga sköpunargáfu.
Hans galli er að hann er fæddur
á erfiðasta degi ársins - 23.
ágúst, milli Ljónsins og Meyjar-
innar, mest extróvert merkisins
og mest intróvert merkisins,
þannig aö hann er alltafað berj-
ast við sviðsljósið og meyrjar-
skuggann."
Haraldur Jónsson bróöir
„Stefán er skapandi og
hæfileikarlkur húmoristi.
Hann ertrúrsinni sann-
færingu og skemmtilegur I
samkskiptum og hefur
löngun til að bæta heiminn og
sjálfan sig. Stefán er kominn ansi
langt á þeirri llfsins braut. Þar
með eru gallar hans orðnir nán-
ast ósýniiegir er hann því galla-
laus eins og manneskjan er nátt-
úrulega I grunninn. Stefán er
kominn nálægt kjarnanum."
Harpa Arnardóttir leikkona
„Stefán hefur fallega rit-
hönd og fínan og oft sér-
kennilegan húmor. Mér
hefur alltafþótt hann
traustur, hreinn og beinn
og það er alltafgaman
að hitta hann. Stefán kemur sér
beint að efninu og hefur áhuga á
kjarna málsins, hann er ekkert að
hjala. Ég hafði vissa fordóma
gagnvart honum en svo leigðum
við saman I Lundúnum og þá
komst ég að þvl að hann er hlýr
og góður og ekkert I fari hans
pirrað mig. Aftur á móti er Stefán
voðaiega loðinn á rassinum og ég
skil ekki hvað hann er alltafað
gera ígufu."
óskar Jónasson kvikmyndageröarmaður
Stefán Jónsson er fæddur í Reykjavlk 1964.
Hann er frá MR og stundaöi stundaöi síöan
leiklistarnám i Englandi. Eftiraö hann útskrif-
aðist hefur hann leikiÖ á sviöi og I seinni tlö
sótt I sig veörið sem athyglisveröur leikstjóri.
Fáðu flott
munnstykki
www.nicorette.is
Hópur ungmenna á framhaldsskólaaldri á Norðurlandi hefur stofnað styrktarreikn-
ing og biður landsmenn að hjálpa til við að fjármagna skólavist þeirra. Hópurinn
segist ekki hafa efni á skólavist sökum atvinnuleysis.
Sitja heima Kristln María Stefánsdóttir,
Aron Viðisson og Aðalsteinn Jónsson hafa
ásamt fíeiri ungiingum komið af stað lands-
söfnun til að eiga fyrir skólavist.
DV-mynd Þorvaldur Jónsson
„Ég hef ekki efni á að vera í skóla," segir Kristín María Stefáns-
dóttir, 16 ára stúlka á Dalvík, sem er í hópi unglinga á framhalds-
skólaaldri í Eyjafirði sem kalla sig fátæka námsmenn. Ungling-
arnir hafa stofnað styrktarreikning í Sparisjóði Dalvíkur þar sem
þau vilja bjarga skólagöngu sinni.
„Það er lítið um vinnu hérna.
Eins og er er ég bara að vinna í
sjoppu. Það er stundum og stundum
vinna, aðallega á kvöldin. Ég er með
400 krónur á tímann. Ástæðan fyrir
því að ég fór ekki í skóla var að ég
hafði ekki efni á því eftir 10. bekk.
Mamma og pabbi gátu ekki heldur
styrkt mig," segir Kristín María. At-
vinnuástandið á Dalvík hefur farið
versnandi undanfarið, ekki síst eftir
að kjúklingabúið þar í bæ fór á haus-
inn í sumar.
Forsprakki fátækra námsmanna
er Aðalsteinn Jónsson, 18 ára gamall
Akureyringur sem er atvinnulaus og
hefur ekki efni á skólavist. „Ég var
búinn að vera í eitt og hálft ár í Verk-
menntaskólanum á Akureyri en
þurfti að hætta vegna peningaleysis.
Sumir hafa ekki komist í skólann
enn þá vegna peningaleysis. Við eig-
um ekki pening til að komast í skóla
og biðjum landsmenn að hjálpa
okkur.“
Spurð hvers vegna þau taki ekki
lán fyrir skólavist segjast
þau ekki vilja skuldsetja sig
meira en orðið er.
Hjalti Jón Sveinsson,
rektor Verkmenntaskólans
á Akureyri, telur það já-
kvætt ef unglingar veki at-
hygli á stöðu sinni. Hann
segist hafa áhyggjur af vax-
andi atvinnuleysi ung-
menna. „Það er áhyggju-
eftii að hlutfall þeirra á at-
Hjalti Jón Sveinsson
vinnuleysisskrá sem eru 16 Rektor Verkmennta-
til 24 ára hefur aukist und- skólans á Akureyri hef-
anfarin tvö ár. Nemendur, ur óhyggjur afskuld-
sem taka hlé eða hætta setningu nemenda.
námi og eru í brottfallshópi, áttu formleg samtök, en á annan tug
áður auðvelt með að finna sér at- unglinga eru í hópnum.
vinnu. Nú hefur harðnað á dalnum jontrausti@dv.is
fyrir þau. Við vitum af því að nem-
endur hætta námi vegna
þess að þeir telja sig ekki
hafa efni á því," segir hann.
Spurður út í ástæður
þess að nemendur hrökkhst
frá námi segir Hjalti að
skuldsetning hafi aukist.
„Þeir borga skuldir. Bank-
arnir hafa greinilega mjög
mikinn áhuga á þessu fólki.
Þeir hafa haft samband við
okkur og biðja um að fá að
kynna starfsemi sína hér í
skólanum."
Hópur fátæku nemend-
anna hefur enn ekki stofnað
Áralöngum málaferlum viö Kvenna-
athvarfiö er lokiö
Kvennaathvarfið sýknað
Kvennaathvarfið var sýknað af
kröfu Víðis ehf um leigu í Héraðs-
dómi fyrir helgina. Ágúst Einarsson
lögffæðingur og systkini hans áttu
húsið en stofnuðu félagið Víði í
kringum rekstruinn. Systkinin
gleymdu þó að framselja kröf-
una um vangoldna leigu til fé-
lagsins og því stóð ekki steinn
undir steini í málarekstrin-
um.
Kvennaathvarfið var sýkn-
að og vonar lögmaður at-
hvarfsins að allri mála-
þrætu sé nú lokið.
Krafan á hendur
Kvennaathvarfinu
nam um 1,6 millj-
ónum. Athvarfið
átti að rýma húsið
í nóvember 2001
en fóru ekki út
fýrr en í febrúar 2002. Sjálfar báru
þær við erfiðleikum að finna nýtt
hentugt húsnæði.
Vegna þess hve málið var við-
kvæmt stofnuðu Ágúst Einarsson og
systkinin félagið Víðir ehf í kringum
húsið. Víðir fór svo í mál við
Kvennaathvarfið. Til þess að
málið hefði gengið hefðu
samt annaðhvort systkinin,
sem áttu húsið meðan
Kvennaathvarfið var í því,
þurft að fara í mál eða
framselja leigu-
kröfuna til Víð-
is.
Hvorugt
var gert og
því var
Kvennaat-
hvarfið
sýknað.
Ágúst Einarsson prófessor
Rak Kvennaathvarfið á dyr og
vildi vangoldna leigu.
Bók Halldórs Guðmundssonar
Halldór Laxness
til Þýskalands
JPV útgáfa hefur samið við forlag-
ið Random House/Bertelsmann um
útgáfu á ævisögu Halldórs Laxness
eftir Halldór Guðmundsson í Þýska-
landi. Áður hafði bókin, sem
væntanleg er fyrir jól, verið
seld til Svíþjóðar. Jóhann
Páll Valdmarsson segir
þess ekki mörg dæmi að ís-
lenskar ævisögur séu seldar
erlendum útgefendum, hvað
þá áður en þær eru komnar
út hér heima.
Halldór Guð-
mundsson var á
árum áður útgáfu-
stjóri Máls og
menningar, með
an það forlag bar
höfðuð og herðar
yfir önnur forlög á íslandi, og vann
þá ötuilega að því að koma íslensk-
um höfundum á ffamfæri við er-
lenda útgefendur. Það þótti tíðind-
um sæta þegar hann gekk til liðs
við JPV fyrir nokkrum mánuðum
en hans hlutverk þar er einmitt
það að huga að útrás íslenskra
bóka. Random House / Bertels-
hluti af einu stærsta
bókafyrirtæki heims, og mun
ævisaga Laxness
koma út
r .
■
Halldór Guðmundsson Hann hef-
ur einkum fengist við að koma ís-
lenskum höfundum á framfæri við
erlenda útgefendur enernú sjálfur
kominn með útgáfusamning við
Random House/Bertelsman áður en
bók hans er komin út hér heima.
innbundin
og mynd-
skreytt hjá
„btb“, for-
lagi í eigu
þess.