Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Qupperneq 11
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 17
Kennarar og
sjómenn fá
sfuðning
Stjóm BSRBliefur lýst
yfir stuðningi við kjarabar-
áttu kennara og sjómanna.
í ályktun samtakanna
vegna kjarabaráttu kennara
segir að brýnt sé að samn-
ingar takist hið ailra fyrsta
því langvinnt verkfall geti
haft alvarlegar afleiðingar
fyrir alla hluteigandi. BSRB
sendir Kennarasambandi
íslands einnig baráttu-
kveðjur. í ályktun BSRB
vegna kjarabaráttu sjó-
manna lýsir sambandið
stuðningi við sjómenn og
varar við tilraunum útgerð-
armanna að reyna að
sundra samstöðu sjó-
manna með samningum á
bak við samtök þeirra. Það
sé aðför að samningsrétti
stéttarfélaga og grefur und-
an verkalýðshreyfingunni
og réttindabaráttu launa-
fólks almennt.
Naktir gestir
fá afslátt
Gestir listasýningar-
innar Bodyline í Swin-
don í Bretlandi fá afslátt
af listaverkunum ef þeir
afklæðast er inn er kom-
ið. Sýningastjórinn
Kevin Money hvetur
gesti til að fara úr fötun-
um svo þeir tengist list-
inni betur. Hingað til
hafa fáir gestir tekið Mo-
ney á orðinu. „Ég er til-
búinn að veita 25% af-
slátt ef gestimir klæða
sig úr,“ sagði Money. „Ég
vona að listin verði til
þess að fólk hætti að
skammast sín fyrir lík-
ama sinn."
Óléttar vilja ís
með sinnepi
Samkvæmt könnun
breska tímaritsins The
People blanda ófrískar kon-
ur ólíklegustu hlutum
saman í matargerð.
Mörgum kvennanna
sem svömðu könn-
uninni leist afar vel á
rjómaís með sinnepi og
frönskum kartöfl-
um. Hrá sítróna
með salti og pipar
virtist einnig gimiieg í aug-
um þeirra. Könnunin var
framkvæmd fyrir matvæla-
fyrirtæki sem vildi koma til
móts við kröfur verðandi
mæðra.
íbúi í Breiðholtinu stígur fram og segist hafa safnað saman nöfnum fikniefnasala
frá því að syni hans var rænt af handrukkurum. Nýlega var brotist inn á heimili
hans og öllum verðmætum stolið. Björn hótar fikniefnasölum að visa lögreglunni á
þá ef þeir láti ekki skila því sem stolið var frá honum.
Björn Sigurðsson Segist ekki
óttast dópsala, þar sem hann
geymi lista með nöfnum valda-
mestu dópsala landsins.
Björn Sigurðsson í Krummahólum í Breiðholtinu gefur dópsöl-
um vikufrest til að láta innbrotsþjófa skila verðmætum sem
stolið var af honum fyrir tveimur vikum. Hann segist annars op-
inbera lista með nöfnum 60 dópsala.
„Ég skora á menn að skila þessu
því annars birtast listarnir," segir
Björn, sem saknar fartölvu, tveggja
gsm-síma, hleðslutæki fyrir síma,
ásamt tölvuforritum og DVD-útgáf-
um kvikmyndanna Spiderman og
Ace Ventura.
Björn varð frægur þegar syni
hans var rænt og stungið í skottið á
bíl handrukkara vegna fíkniefna-
skulda. „Þá fyrst byrjaði ég að tengj-
ast þessu. Ég kom aldrei nálægt
þessu fýrr en strákurinn náði að
hringja í mig úr skottinu á bílnum.
Þá fór ég á fullt skrið. Þegar ég kom
mér upp netinu fékk ég upplýsu-
ingar um Jón Jónsson, hringdi svo í
hann og sagði að annað hvort veitti
hann mér réttar upplýsingar eða þá
að ég myndi segja lögreglunni frá
honum. Ég hef virt nafnleynd þeirra
sem veita mér upplýsingar 100 pró-
sent. Ég notaði bara sömu aðferð og
þeir sjálfir. Þeir hóta mönnum fyrir
upplýsingar. Ég hóta þeim á þann
máta að ég hóta að koma upplýs-
ingum til lögreglunnar. Það voru
mínar hótanir," segir Björn.
Það var með þessum aðferðum
sem hann endurheimti son sinn úr
skottinu. „Á sínum tíma þurfti ég að
vera í sambandi við Maitsland-
bræður og aðra til að afturkalla lið
sem var búið að senda á strákinn
hjá mér. Þeir þrættu fyrir allt þang-
að til að ég nefndi nöfnin upp á við.
Það var ekki liðinn ldukkutími þar
til ég frétti að sonur minn yrði lát-
inn í friði," segir hann.
Björn segist hafa fengið hótanir
undanfarið en er ekki of óttasleg-
inn, þótt hann vilji ekki þekkjast á
mynd. Líftrygging hans er að nefna
ekki hæstu nöfnin á listanum, það
er nöfn þeirra valdamestu í fíkni-
efnaheiminum. Auk þess hefur
hann komið listanum fyrir með
þeim hætti að komi eitthvað fýrir
hann þá fari listinn í heild sinni til
fjölmiðla og lögreglu. „Ég er farinn
að fá hótanir af því að ég spyr óhik-
að fólk sem ég þekki og er í þessu
hvort það þekki einhverja dópsala.
Núna um helgina fékk ég hótun um
að ef ég hefði mig ekki hægan yrði
ég rústaður og boraður í hnéskelj-
arnar. Slíkar hótanir er hægt að taka
alvarlega í þessum heimi," segir
Björn, sem telur listann tryggja ör-
Ég er farínn að fá hót-
anir afþví að ég spyr
óhikað fólk sem ég
þekki og er í þessu
hvort það þekki ein-
hverja dópsala.
yggi sitt. „Ég er alltaf með topp-
nöfnin sér á listanum og það er mín
trygging. Þar er jafnvel að finna
landsfræga menn. Listinn er
geymdur á öruggum stað. Ef eitt-
hvað kemur fýrir mig fá bæði blöð-
in, lögreglan og sjónvarpið listann.
Það er lítið mál að sannreyna allt á
listanum með þeim upplýsingum
sem fylgja með nöfnunum," segir
Björn sem hótar dópsölum.
jontrausti@dv.is
Þrjú ár eru síðan Eyjasýn var kærð fyrir að senda út enska boltann ólöglega
Lögreglan sögð hafa horft á ólöglegar útsendingar
Romeo
skírður
David og Victoria Beck-
ham ætla að skíra Romeo
son sinn 22. desember.
Hjónin hafa sent yfir 100
boðskorta til vina og ætt-
ingja en athöfriin
verður haldin í villu
þeirra á Bretlandi.
Búist er við að Sir
Elton John og kærasti
hans verði guðfor-
eldrar Romeo ásamt
systkinum Victoriu.
Fyrrum kryddpían Emma
Bunton og leikkonumar
Patsy Kensit, Davinia Taylor
og Liz Hurley hafa allar
fengið boðskort sem og fé-
lagar Davids í fótboltanum.
„Réttvísin gengur hægt í Vest-
mannaeyjum," segir Sigurður G.
Guðjónsson forstjóri Norðurljósa.
Norðurljós kærði útsendingar Éyja-
sýnar á Enska boltanum árið 2001
en samkvæmt Sigurði hefur ekkert
spurst af rannsókninni síðan.
Sigurður segir engan samning
hafa verið gerðan við Eyjasýn og að
fýrirtækið hafi ekki haft samning um
að sýna frá boltanum lfkt og Norður-
ljós. „Við höfum frétt af því að lög-
reglumennirnir hafi sjálfir horft á
boltann með afruglara frá Eyjasýn
og þar liggur kannsld ástæðan fyrir
seinaganginum."
Sigurður segist viss um að svipað
athæfi sé stundað víða á lands-
byggðinni enda séu engar reglur til
sem taki á máhnu. „Þetta er fyrst og
fremst þjófnaður. Þarna eru eigur
annarra teknar og seldar án þess að
eigandanum sé gerð nokkur skil á
þeim verðmætum sem fást fyrir þær.
Máhð hefði gengið mun hraðar ef sf-
garettupakka í Kringlunni hefði ver-
ið stolið en þarna eru hugverk ann-
arra manna tekin óffjálsri hendi,"
segir hann. „Almenna reglan er að
lögreglan eigi að koma höndum yfir
afbrotamenn og þetta sýnir muninn
á störfum lögreglunnar eftir lands-
hlutum. Þegar svipað mál kom upp í
Reykjanesbæ tók það ekki nema
Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norð-
urljósa „Þetta er fyrst og fremst þjófnaður.
Þarna eru eigur annarra teknar og seldar án
þess að eigandanum sé gerð nokkur skil á
þeim verðmætum sem fást fyrir þær."
hálft ár fyrir lögregluna að afreiða
það. Löggæslan lúýtur að vera betri
þar, það getur bara ekki annað ver-
ið."
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður
í Vestmannaeyjum, vildi lítið tjá sig
um málið en sagði að það væri eng-
in launung á því að málið hefði tafist
í meðferð. „Ég hef enga skýringu á
því, enga sem ég vil gefa upp.“ Þegar
Karl Gauti var spurður hvort það
væri rétt að lögreglan hefði sjálf
horft á enska boltann játti hann því.
„Lögreglufélagið er með áskrift af
öllum þessum stöðvum. Þar með
talið frá Eyjasýn og frá Norðurljós-
um."