Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Page 14
14 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Reykinga-
lungu til sýnis
Nýjasta baráttuaðferð
Breta gegn reykingum er að
sýna unglingum lungu lát-
inna reykingamanna.
Unglingar fá
ókeypis aðgang
að Bodies
Revealed sýning-
unni sem hefur lfkama og
líkamshluta látinna manna
til sýnis. „Sterkasta vopnið
gegn reykingum er að sýna
krökkunum hvað reykingar
gera líkamanum," segir Dr.
Roy Glover sem stendur að
sýningunni. „Börn og ung-
lingar læra um skaðsemi
reykinga en helsta eyði-
leggingin er ósýnileg. Sýn-
ingin leysir þann vanda.
Hér sést með berum aug-
um að reykingar drepa á
endanum." Á sýningunni
eru 13 lík og yfir 200 líffæri
sem nemendur geta skoð-
að.
Að finna fyrir hjartanu
Hjartað er í tvennum skilningi
mikilvægt h'ffæri. Auðvitað er
nauðsynlegt að það slái því annars
deyr maður. Á hinn bóginn á hjart-
að að láta mann vita þegar þegar
maður gerir sjálfum sér eða öðrum
rangt til. Heilbrigð manneskja sem
missir fótanna á hálli lífsins braut á
Þroskaþjálfinn segir
Ingveldur
Sigurðardóttir
vill að fólk hlusti á
rödd hjartans.
að finna í hjarta sér þörf fyrir
betrumbót. Annars er hún hjarta-
laus og illa stödd í lífinu. Stundum
verður mér hugsað til lidu dóttur-
dóttur minnar sem varð á í leik-
skólanum og sagði ósatt. „Var þér
ekki illt í hjartanu þegar þú
skrökvaðir svona?" spurði ég hana
seinna.
„Jú mér er svo illt í hjartanu,"
svaraði hún full einlægni og horfði
á mig stórum kringlóttum augum.
Mér hlýnaði um hjartað. Eftir þetta
er það viðkvæði hennar að hún
finni til í hjartanu ef henni verður
eitthvað á. Ef hún heldur þessu við-
horfi sínu er henni borgið í lífinu.
Við fullorðna fólkið gætum mikið
lært af henni og bömunum okkar
og mörgum væri það holl-
t að hugsa um hjartað í sér eftir að
þeir hafa misst fótanna. Ef við
þekkjum ekki sjálf okkur þá getum
við lent í ógöngum. Sjálfsvirðingin
er það mikilvægast sem við höfum
í samskiptum við annað fólk. Les-
andi góður, hlustaðu vel eftir
hjartsiætti þínum og gættu þess að
beita hjartanu á réttan hátt til að
verða betri manneskja.
Nýverið var Séð og heyrt í Danmörku dæmt til að greiða tæpa milljón króna í sekt
fyrir að fjalla um dönsku handboltastjörnuna Anja Andersen og lesbiskt samband
hennar við leikmann í liði sem hún þjálfaði. Dómurinn grundvallaðist á því að
þarna sé íjallað um einkalíf kvennanna en ekki handbolta. Bjarni Brynjólfsson,
ritstjóri Séð og heyrt, vill meina að dómurinn hafi engin áhrif á tímarit sitt.
Fjölda-
morðingi
myrtur
fjölskylda
fjöldamorðingjans og
læknisins Harolds
Shipman telur að hann
hafi verið
myrturí
fangelsinu.
Harold,
sem var
dæmdur
fyrir að
myrða 215 manns,
fannst látinn í fangaklefa
sínum f janúar. Talið var
að hann hefði hengt sig.
Fjölskylda hans heldur
hins vegar fram að óút-
skýrðir áverkar á líkinu
sýni fram á að hann hafi
verið myrtur. „Áverkar á
hálsi hans eru ekki í
samræmi við hnútinn
sem hann á að hafa not-
að til að hengja sig og á
andliti hans og líkama
voru mörg óútskýrð sár."
Enn fremur segir fjöl-
skylda hans að lakið sem
Harold á að hafa notað
til að hengja sig hafi ekki
verið úr hans klefa.
Umferðarslys
við Bíldudal
Landhelgisgæslan fékk
tilkynningu frá Lögreglunni
í Bíldudal um
klukka hálf sex
í gærmorgun
og var beðið
um aðstoð
vegna manns
sem hlotið hafði alvarlega
höfuðáverka í umferðar-
slysi í grennd við bæinn.
TF- Líf var send af stað og
lenti þyrlan á Bíldudal tvei-
mur tímum síðar. Klukkan
hálf níu lenti þyrlan við
Landspítalala-háskóla-
sjúkrahús í Fossvogi. Mað-
urinn reyndist höfuðkúpu-
brotinn og var hann lagður
inn á gjörgæsludeild.
Fíkniefni í bíl
Lögreglan í Borgarnesi
stöðvaði á föstudagskvöldið
bifreið við
reglubundið
eftirlit. í bíln-
um voru tveir
ungir menn
og við leit
fann lögreglan lítilræði af
fíkniefnum og tæki til
neyslu. Mennirnir játuðu
að eiga efnin og telst málið
upplýst.
„Hann er alls óviðkomandi okkur þessi dómur. Ég get ekki séð
hvernig það snertir okkur að einhver dómur falli í landsréttinum
í österby um lesbískt samband einhverra handboltakvenna.
Kemur okkur ekkert við. Og ég get heldur ekki séð að þessi dóm-
ur yfir Karólínu prinsessu hafi haft nokkur áhrif á vikublöð í Evr-
ópu,“ segir Bjarni Brynjólfsson, ritstjóri Séð og heyrt.
Nýverið féll dómur í héraði í
Danmörku þar sem vikublaðið Se og
Hor, systurtímarit Séð og heyrt á Is-
landi, var dæmt til að greiða tæpa
milljón króna í miska- og skaðabæt-
ur fyrir að fjalla um samband Anja
Andersen handboltastjörnu og leik-
manns í kvennaliði Slagelsi sem
hún þjálfaði. Dómurinn grundvall-
aðist á því að í grein Se og Hor væri
ekkert fjallað um handbolta heldur
væri verið að fjalla um einkamál í
óþökk kvennanna beggja. Haft var
eftir Ragnari Aðalsteinssyni í frétt-
um Stöðvar 2 nú um helgina að
þarna væru að koma í ljós áhrif
dóms sem féll fyrir Mannréttinda-
dómstóli Evrópu í sumar þess efnis
að þýsk ú'marit mættu ekki birta
myndir af Karólínu Móna-
kóprinsessu, til dæmis ef hún
væri á hestbaki. Bjarni vill
ekki meina að svo sé.
Séð og heyrt stígur var-
lega til jarðar
Bjarni segir Séð og heyrt
ætíð stíga afar varlega til
jarðar í þessum eftium
ogbendiráað blað-
ið hafi ekki lent
fyrir dómstólum í
síðan það hóf
göngu sína árið
1996. „Ég held
einfaldlega
að þetta sé
einstakt til-
felli. Og fæ
ekki séð að
dönsk blöð
hafi minnkað
umfjöllun af
þessu tagi en þetta
tiltekna mál fór í
gang árið 2002.
Hugsanlega hefur
verið eitthvað í um-
fjölluninni sem hef-
Anja Andersen og Mette Melgaard
Handboltastelpurnar ánægðar, sælar og
glaðar en dómur féll þeim nýverið Ihagl
máli gegn Se og Har.
ur verið særandi og meiðandi á
þeim tíma." Ritstjórinn bendir á að
líklega hafi eitthvað verið komið inn
á kynhvöt þeirra Önju og vinkonu
hennar, sem hugsanlega hafi
þótt óviðurkvæmileg, en
Bjami segist ekki hafa haft á
því tök að skoða dómin og
telur lítinn skyldleika með
þessari tilteknu grein og efnis-
tökum síns rits. „Okkar greinar
eru yfirleitt urrnar í samráði
við viðkomandi. þó
svo að vissulega
eru til dæmi þess
að svo sé ekki."
Bjarni ítrekar
að hann sjái
engin merki
þess að dag-
blöð né
vikukblöð
hafi minnk-
að umfjöllun
af þessum
toga. Og það sem
meira er, hann hefur
heldur ekki tekið eftir
Bjarni Brynjólfsson Ritstjóri Séð og heyrt á
Islandi glaðbeittur og þeirrar skoðunnar að
nýfallinn dómur yfir systurblaði þeirra I Dan-
mörku muni ekki hafa áhrif á skrif þeirra.
því að U'marit í Evrópu hafi
í nokkru slegið af í umfjöll-
un um Karólínu prinsessu
þrátt fyrir dóm Mannrétt-
indadómstólsins.
Morgunblaðið fagn-
ar Karólínudómi
„Ég held einfaldlega
að þetta sé h'til frétt og
það sé engin umræða um
þetta í Danmörku. Síðan
ég sá þessa frétt hjá Stöð
2 núna um helgina hef
ég legið í dönskum
blöðum á netinu. En
þessi htla frétt virðist
ætla að verða að hlassi
hér."
Bjami segir vissu-
lega áhyggjuefni ef
þessi dómur verður til
að þrengja að blaða-
mennsku eins og hún ti'ðkast í
dag og þar með að tjáningar-
frelsinu. Þegar umræddur dóm-
ur Mannréttindadómstólsins
sem féll Karólínu í vil féll var því
fagnað vel og lengi í Morgunblað-
inu.
„Dómurinn í máli Karólínu
Mónakóprinsessu er holl áminning
til fjölmiðla. Það er ekki sjálfsagt mál
að rjúfa friðhelgi einkalífs fólks með
umfjöllun í fjölmiðlum. Raunar á
einkalíf fólks ekkert erindi í fjölmiðla
nema í algerum undantekningartil-
vikum, eins og t.d. í þeim málum
sem upp komu í forsetati'ð BUls
Clintons," segir í ritstjórnargrein
Morgunblaðsins í júh' og í annarri
ritstjórnargrein sem birtist í síðar
sama mánui: „Karóhna, prinsessa af
Mónakó, vann merkilegan sigur fyr-
ir Mannréttindadómstól Evrópu fýr-
ir skömmu. [...] íslenzkt þjóðfélag
hefur smátt og smátt verið að breyt-
ast að þessu leyti til samræmis við
það sem lengi hefur verið þekkt í
öðrum löndum. Það er áleitin
spurning hvort ekki sé ti'mabært að
snúa þeirri þróun við.“
Mun engu breyta fyrir Séð og
heyrt á Islandi
„Morgunblaðið er vitaskuld und-
Forsíöa Séð og heyrt Þarna má sjá hand-
boltakappann Geir Ólafsson á forsíðunni og ef
afllkum lætur er greinin um hann og Jóhönnu
Vilhjálmsdóttir ekki um handbolta.
ir þessa sömu sök selt og við, þið
(DV) og allir miðlar á íslandi," segir
Bjarni. Hafa má í huga, í því sam-
bandi, að Morgunblaðið hefur um
árabil verið með áberandi efnisþátt
þar sem QaUað er um allt það sem
erlendar stjömur aðhafast - ekki síst
í einkalífi sínu. Morgunblaðið telur
sig ef til vill vera á fríu svæði af því að
þar er um útlendinga að ræða en
ekki íslendinga. En sú röksemdar-
færsla hlýtur að teljast hæpin.
Ristjóri Séð og heyrt bendir jafn-
framt á að þegar hann leitaði dyr-
um og dyngjum að fréttflutningi af
umræddum dómi yfir systurriti
hans í Danmörku hafi hann fundið
frétt í Extrabladed sem birtir mynd
af Anja Andersen og kæmstu henn-
ar með þeim ummælum að Se og
Hor væri bannað að segja að þær
þessar væm kæmstupar. „Já, já,
blaðið er greinilega að hæðast að
þessum dómi," segir Bjarni. Þannig
geta þessi mál reynst tvíeggja vopn.
„Nei, ég h't ekki svo á að þetta sé
neitt stórmál. Og mun engu breyta
fyrir okkur."
jakob@dv.is