Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Blaðsíða 16
7 6 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
• f
verslun-
um
Nettó
kostar
kllóið af
saltkjöti 439 kr. í stað 799 kr., klló af
Gríms fiskibuffi kostar 638 kr. og
sama magn af plokkfiski kostar
351. Flaska af Wesson matarolíu
kostar 369 kr. og pakki af Wafer
kexi kostar 89 kr. Kíló af kampa-
vínshelgarsteik úr læri kostar 1.662
en var áður á 2.078 kr. Þá kosta all-
ar tegundir af Xanto
hreingerningarvörum 49
kr. og brúsinn af Easy
hreinsilegi 99 kr.
• í byrjun október
hefst á vegum Hljóð-
færahússins og
Trommu stúdíósins
tveggja vikna trommunámskeið
þar sem leiðbeinendur verða Gulli
Briem og Jóhann Hjörleifsson.
Þáttakendur fá íslenska kennslu-
bók, trommukjuða og geisladiski.
Námskeiðið samanstendur af
einkatímum, hóptímum og sam-
spili. í tilefni námskeiðsins býður
Hljóðfærahúsið trommusett og
fylgihluti á tilboðsverði.
• Kflóíð af lambagúllasi kostar
998 kr. í verslunum Nóatúns í
stað 1.998 kr. og kílóverðið á
reyktum laxi frá Eðalfiski er
nú 1.629
2.507 kr.
samloku-
Létt börn og
sjálfsmorðstíðni
Börn unglingsmæðra
og börn sem eru undir
eðlilegri fæðingar-
þyngd eru helmingi
líklegri til að reyna að
fremja sjálfsmorð sið-
ar á ævinni segja
sænskir sérfræðingar.
Þetta er niðurstaða
þeirra eftir að hafa
rannsakað sjö hundruð þús-
undsænsk ungmenni sem
fædd voru á árunum 1973-
1980 og fyigst með þeim frá
fæðingu til ársins 1999.1Ijós
kom að tæplega tvö þúsund
karlar og rúmlega fjögur þús-
und og sjö hundruð konur úr
hópnum höfðu reynt að
fremja sjálfsmorö og hafði
fjögur hundurð körlum tekist
ætlunarverkiö og hundrað
sextíu og sex konum. Sérfræð-
ingarnir segja að félagsleg og
efnahagsleg staða móður hafi
mikið að segja, sem og heilsu-
far hennar fyrir og eftir fæð-
ingu. Einnig skiptir það máli
hvort systkinahópurinn er stór
svo og menntun móður. Einn
þeirra sérfræðinga sem rann-
sökuðu hópinn segir aö auka
þurfi aðstoð við ungar mæður
og bæta upplýsingar þeim
ætlaðar bæði fyrir og eftir
fæðingu.
Stútar
við stýri
Ofdrykkja varð
um sjötíu og
fimm þúsund
Bandaríkja-
mönnum að
aldurtila á síð-
asta ári. Tæp-
lega þrjátíu og
fimm þúsund
þessara
drykkjumanna
létust af völdum skorpu-
lifur, krabbameins eða
annarra sjúkdóma sem
rekja má til ofdrykkju en
rúmlega fjörutíu þúsund
þeirra létust í bílslysum
og öðrum slysum sem
rekja má drykkju. Karl-
menn voru 72% þeirra
sem létust og 6% þeirra
voru 21 árs eða yngri.
Fram að árinu 2010 ætla
Bandaríkjamenn sér að
ná ölvunarakstri niður
um þriðjung.
DV hvetur fólk til að senda inn hugmyndir á netfangið heilsa@dv.is og kaerilaeknir@dv.is ef fólk vill beina spurningum til Katrínar Fjeldsted. Heilsusíðan birtist í DV á mánudögum.
Gunnar ísdal hefur verið með ofnæmi fyrir dýrum frá unga aldri en hann lætur
það ekki aftra sér. Gunnar er hundahótelstjóri og leikskólastjóri á Hundaleikskól-
anum og vann í tæp fimm ár í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal.
Ofnæmisköstin komu
þegar ég hafði verið
að vinna með smá-
dýrum sem hafa afar
fín hár.
stundum verð ég var við mjög væg-
ar aukaverkanir af sprautunum,
verð svolítið þreyttur fyrstu klukku-
tímana á eftir. í ágúst í fyrra bauðst
mér að taka við Dýrahótelinu í Víði-
dal og ég sló til og síðan hef ég ver-
ið hér. Ég hef aldrei verið sprækari,"
segir Gunnar. „Sprauturnar halda
ofnæminu alveg í skefjum og það er
frábært, mér finnst þetta algjört
kraftaverk og ég ætla að halda
ótrauður áfram að vinna með dýr-
um.“
Gunnar ísdal hundahótel-
haldari Ég bjó í sveit þegar ég var
barn og átti til dæmis alltaferfitt
með að vinna við heyskapinn en
maður harkaði af sér. í sveitinni
voru auðvitað hundar og kettir og
ég fékk lika ofnæmi fyrir þeim.
Tíðni astma og ýmissa ofnæma hefur aukist með árunum og eru
til dæmis ofnæmisvakar frá dýrum í umhverfinu allt árið um
kring. Sagt er að eina örugga meðferðin fyrir þá sem eru með
dýraofnæmi sé að forðast allt samneyti við dýr. En ekki eru allt-
ir til í að slíta vinskapnum við bestu vini mannsins.
„Ég hef verið með frjó- og rykof-
næmi og ofnæmi fyrir dýrum frá því
ég fæddist. Þegar ég var krakki var
ég alltaf með rauð augu, kláða,
hnerraði mikið og var með pirring í
nefinu,“ segir Gunnar ísdal hunda-
hótelstjóri og leikskólastjóri
Hundaleikskólans. „Ég bjó í sveit
þegar ég var barn og átti til dæmis
alltaf erfitt með að vinna við hey-
skapinn en maður harkaði af sér. í
sveitinni voru auðvitað hundar og
kettir og ég fékk líka ofnæmi fyrir
þeim. Eg hef alla mína tíð unnið
með dýrum, finnst það gaman og
get ekki hugsað mér annað.“
Vann í Húsdýragarðinum
„Ég vann í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í fjögur og hálft ár en
varð að hætta
Með ofnæmi fyrir dýrum
Ég hefaila mína tíð unnið með
dýrum, finnst þaðgamanog
get ekki hugsað mér annað.
SSCT73 3
vegna ofnæmis-
ins. Fyrst var allt í lagi, ég fann bara
fyrir þessu venjulega frjóofnæmi en
svo fór ég að verða veikari og veik-
ari og lá jafnvel í rúminu með hátt í
Hverniq vinn ég bug á feitu hári?
ir lyfjatækmr i Lyf og hedsuviðH g ^ ^
fjörutíu stiga hita í
nokkra daga. Og
þessum tímabilum
fór að fjölga," segir Gunnar. „Of-
næmisköstin komu þegar ég hafði
verið að vinna með smádýrum sem
hafa afar fín hár. Á endanum varð
ég að að segja upp starfinu í Hús-
dýragarðinum sem mér fannst
mjög sorglegt og erfitt. Ég var
hreinlega búinn að ganga of nærri
mér.“
Sprauturnar
Fyrir rúmu ári frétti Gunnar að
hægt væri að fá sprautur við of-
næminu, talaði við lækninn sinn og
ákvað að reyna meðferðina. „Ég er
sprautaður á tveggja mánaða fresti.
Ég er líka með vægar ofnæmistöflur
sem ég tek mjög sjaldan, á að taka
þær ef ég finn fyrir einhverju en ég
finn bara ekki fyrir neinu. Og þó,
I Ð A H Ú S I Ð opnunartími 10.00 - 22.00
Guðrúnspyr:
Liðir stirðna c
Kæri læknir,
Ég errúmlega fimmtug kona sem
leita til þín því ég hef verið slæm i lið-
unum um nokkurt skeið. Þaö eru
einkum fingurliðirog hné
sem angra mig og þá sér
í lagi þegar ég er orðin
þreytt. Ég heftekið eftir
þvi að nokkrir fingurliðir
á hægri hönd eru orðnir
fyrirferðarmeiri en þeir voru og
einnig eru þeir stundum aumir.
Hægri þumalfmgur er verstur og ég á
stundum erfitt með beita honum.
Það brakar oft íþumalfingrinum
og afog til I hnjánum, en mér
liður betur I fótunum þegar
éghreyfimig. Égheldað
mamma mín hafi haft
svipuð einkenni og jafnvel
ýmsar frænkur minar úr
móðurætt. Alia vega eru þær
sverar um hnén, konur í
minni ætt. Hvað held-
urðu að þetta sé, liða-
gigt? Er hægt að gera eitt-
hvað til að laga þetta? Mér er
illa við lyfog vil helst ekki taka þau
nema i neyð.
Kveðja,Guðrún.
Kæra Guðrún,
Þakka þér fyrir bréfið. Þetta sem
þú lýsir hljómar eins og þú sért að
koma þér upp slitgigt í fingr-
um og hnjám en auðvitað
er best að læknir skoði
þig svo hægt sé að svara
þér með vissu. Slitgigt
hefst oftast um fimmtugt
og er talin vera um þrefalt
algengari hjá konum en
körlum. Þeir liðir sem helst
verða fyrir barðinu á slitgigt eru
smáliðir í fingrum (fjarkjúkuliðir),
grunnliðir stóru tánna og þuml-
anna, hálsliðir, lendarliðir, síðan
mjaðmaliðir og hné. Gigtin ein-
kennist af verkjum við hreyfingu,
einkum þegar líður á daginn, en
verkirnir geta einnig verið í hvíld.
Liðir stirðna og geta orðið óstöðug-
ir. Þeir verða aumir viðkomu og
þegar þreifað er á þeim má finna
mjúkvefjabólgu og þykknun á þeim.
Þú hefur án efa heyrt talað um að
fingur hnýti en það er gamalt og