Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Síða 18
18 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004
Sport DV
Það verða Keflvíkingar sem mæta KA-mönnum í úrslitaleik VISA-bikarkeppni karla sem fram fer næst-
komandi laugardag, en þeir lögðu lið HK að velli í gærdag í Laugardal, 1-0. Keflvíkingar freista þess að
hampa bikarnum þriðja sinni, en áður hafði hann komið í hús árin 1975 og 1997. HK spilaði aftur á móti
sinn fyrsta undanúrslitaleik í bikarnum.
Keflavík marði sigur
Flnn stuðningur Keflvíkingar hafa ekki mætt sérstakiega vel á völlinn Isumar en þeir mættu f Laugardalinn ígær og studdu vel við bakið á
sfnum mönnum er þeir tryggðu sér sæti f úrslitum bikarsins. DV-mynd Stefán
Fyrirfram voru Keflvíkingar
taldir mun sigurstranglegri og
það ekki að ástæðulausu. Lið-
ið leikur í úrvalsdeild og hefur
á köflum í sumar leikið frá-
bæra knattspyrnu. Lið HK er á
hinn bóginn í 1. deildinni og er
algjörlega reynslulaust þegar
kemur að jafn stórum leikjum.
Þeir létu þó KefMkingana hafa
verulega mikið fyrir hlutunum
og það hefði ekki verið ósann-
gjarnt ef leikurinn hefði farið í
framlengingu.
Greinilegt var í byrjun leiks að
talsverður skjálfti var í leikmönnum
HK - þeir voru óöruggir og Keflvík-
ingar voru fljótir upp á bragðið.
Strax eftir ellefu mínútna leik leit
eina mark leiksins dagsins ljós og á
þeim tímapunkti leit allt út fyrir að
úrvalsdeildarliðið myndi valta yfir 1.
deildarliðið.
Sú varð aldeilis ekki raunin því
leikmenn HK vöknuðu til lífsins við
markið og hófu að spila eins og
menn. í raun og veru má segja að
það sem eftir lifði leiksins hafi verið
jafnræði með liðunum en færin sem
Stöðugleiki er nokkuð
sem liðinu skortir og
hann kemur með
meiri reynslu. Árang-
urinn í bikarnum gerir
ekkert annað en að
auka innistæðuna í
reynslubankanum.
Þetta er framtíðarlið -
það er engin spurning
um það.
leikmenn HK fengu voru hins vegar
talsvert hættulegri en þeirra Keflvík-
inga. í síðari hálfleik fengu Kópa-
vogspiltar nokkur virkilega góð færi
sem ekki nýttust og annað hvort má
segja að þeir hafi verið óheppnir eða
klaufar.
Keflvíkingar fengu reyndar nokk-
ur ágæt færi en voru aldrei neitt sér-
staklega nálægt því að bæta við
marki. Ef sanngirnin hefði fengið að
ráða einhverju varðandi úrslitin í
leiknum hefði hann farið í framleng-
ingu en upp á það var ekki boðið að
þessu sinni. Það verður ekki tekið af
Keflvíkingum að þeir gerðu ná-
kvæmlega það sem þurfti en ekkert
meira en það.
Skemmtilegt lið
Hér er á ferð lið sem á góðum
degi getur spilað einn allra besta
boltann í úrvalsdeildinni en getur
dottið langt niður þess á milli. Stöð-
ugleiki er nokkuð sem liðinu skortir
og hann kemur með meiri reynslu.
Árangurinn í bikarnum gerir ekkert
annað en að auka innistæðuna f
reynslubankanum. Þetta er framtíð-
arlið - það er engin spurning um
það.
Leikmenn HK geta verið ánægðir
með leik sinn þrátt fyrir tapið. Þeir
létu Keflvíkinga hafa verulega fyrir
hlutunum og árangurinn hjá félag-
inu í sumar er sá besti í sögu þess,
hvort sem um ræðir 1. deildina, þar
sem liðið endaði í þriðja sæti, eða í
bikarkeppninni. Það er hugur og
stemmning í gangi hjá HK og hðið á
án efa eftir að minna rækilega á sig á
næsta tímabili. sms@dv.is
Stefán Gíslason átti enn einn stórleikinn fyrir Keflavík í Dalnum í gær
Alveg nóg að skora eitt og fá ekkert á sig
Stefán Gfslason var sterkur í
vörn Keflavíkurliðsins gegn HK og
hann var að vonum ánægður með
að sæti í úrslitaleiknum var tryggt.
„Þetta var kannski ekki fallegasti
sigur sem við höfum unnið en þetta
var nóg, alveg nóg að skora eitt og
fá ekkert á sig. Þegar komið er út í
svona leiki þá verður oft meira um
baráttu en fallegan bolta og við ætl-
uðum okkur í úrslitaleikinn sama
„Spilamennska okkar
í sumar hefur verið
afar sveiflukennd en
liðið er ungt og skort-
ir fyrst og fremst
reynslu til að komast
enn ofar."
hvað það kostaði. Við vissum vel að
leikmenn HK myndu láta okkur
hafa verulega mikið fyrir hlutunum.
Það segir sig eiginlega sjálft að lið
sem endar í þriðja sæti 1. deildar, er
bara óheppið að fara ekki upp, og
kemst í undanúrslit bikarsins, er
hörkulið og það sást greinilega í
þessum leik - það er úrvalsdeildar-
klassi á þessu liði.
Spilamennska okkar í sumar
hefur verið afar sveiflukennd, en
liðið er ungt og skortir fyrst og
fremst reynslu til að komast enn
ofar. Við erum allir búnir að öðlast
heilmikla reynslu í sumar.
Ég tala nú ekki um ef við náum
að hampa bikarnum - það væri
mjög mikilvægt fyrir félagið í heild
sinni og myndi án efa stuðla mikið
að því að meiri stöðugleiki næðist
og það er svo sannarlega ætlunin,"
sagði Stefán Gíslason í gær.
sms@dv.is
Stefán sterkur Sóknarmenn HK komust iftt áieiðis gegn Stefáni Gisiasyni og félögum í vörn
Keflavlkur. DV-mynd Stefán
KEFLAVÍK-HK 1-0
VISA-bikarinn - Laugardalsvöllur
Dómari: Jóhannes Valgeirsson (3).
Áhorfendur: 1.555. Gæði leiks: 3.
Gul spjöld: Keflavík: Enginn - HK:
Hörður Már (90.).
Rauð spjöld: Engin.
Mörk
1-0 Jóhann Björnsson, sjálfsm. 11.
skot úr teig Ramsey
Leikmenn Keflavíkur:
Magnús Þormar 4
Stefán Gíslason 4
Haraldur Freyr Guðmundsson 4
Guðjón Árni Antoníusson 3
Ólafur (var Jónsson 3
Jónas Guðni Sævarsson 4
Zoran Daníel Ljubicic 3
Scott Ramsey 3
(68., Guðmundur Steinarsson 2)
Ingvi Rafn Guðmundsson 2
Hólmar örn Rúnarsson 3
(63., Hörður Sveinsson 2)
Þórarinn Kristjánsson 3
Leikmenn HK:
GunnleifurVignirGunnleifsson 4
ÁrniThorGuðmundsson 3
Brynjar Skúlason 2
(73., Bjarki Már Sigvaldason -)
Júlíus FreyrValgeirsson 3
Jóhann Bjömsson 2
Davið Magnússon 3
Stefán Jóhann Eggertsson 2
(81., Gisli Freyr Ólafsson -)
Finnur Ólafsson 3
BrynjarVíðisson 3
Hörður Már Magnússon 4
Atli Guðnason 4
(84., Birgir Rafn Birgisson -)
Tölfræðin:
Skot (á mark): 12-13 (4-3)
Varin skot: Magnús 3 - Gunnleifur 3.
Horn:6-9 Rangstöður: 2-1
Aukaspyrnur fengnar: 12-6
BESTUR Á VELLINUM:
Stefán Gíslason, Keflavík
Svona er
þetta bara
Gunnar Guðmundsson er
þjálfari HK og hann var ánægður
með frammistöðu srnna manna í
leiknum og reyndar í allt sumar.
„Það er ekki nokkur spurning að
við áttum í það minnsta jafh mik-
ið og þeir í þessum leik. Það var
reyndar smá skrekkur í mínum
mönnum í byrjun leiks, fyrstu 10
til 15 mínútumar, og við fengum
markið á okkur á þeim tíma og
það reyndist dýrkeypt. Eftir þessa
byrjun komumst við vel inn í leik-
inn og vorum að spila ffnan fót-
bolta. Við vorum óheppnir að
nýta ekki þau færi sem við feng-
um - við fengum virkilega ffn færi
og þá sérstaklega í seinni hálfleik.
Við vorum þolinmóðir þrátt fyrir
að lenda undir, spiluðum okkar
bolta en því rniður kom ekkert
mark, en þannig er þetta bara. Nú
erum við búnir að ná besta ár-
angri í sögu HK og ég verð að við-
urkenna að liðið er lengra komið
heldur en ég átti von á í byrjun
tímabilsins, sem er ekkert annað
en jákvætt. Við vissum vel hvað
við gátum en árangurinn í sumar
er þó betri en við þorðum að vona
fyrir mót. Þetta tímabil fer í
reynslubankann hjá þessu unga
hði og það nýtist okkur vonandi
vel á næsta
ári. Ég býst við
að halda öh-
ummínum
mannskap og
stefnan er ein-
faldlega sett á
að bæta ár-
angurinn í
sumar - við
göngum ífá
tímabilinu
með höfuðið
hátt og erum
virkilega stolt-
ir.“