Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Qupperneq 19
DV Sport
MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 19
„Áfram KA-menn" KA-maðurinn Dean
Martin var besti maður vallarins á iaugardag
og hann fagnaði griðarlega með
stuöningsmönnum KA eftir leikinn.
DV-mynd Stefán
KA gerði sér lítið fyrir og sló nýkrýnda íslandsmeistara FH út úr VISA-bikar-
keppninni á laugardag. Leikurinn endaði 1-0 og var sæt hefnd fyrir KA-menn þvi
helgina á undan tryggði FH sér íslandsmeistaratitilinn á heimavelli KA
f /
KA komið i unslit
Fyrirfram bjuggust flestir við sigri íslandsmeistaranna sem hafa f/þettd VOr bara meiríháttar, VÍð SÖnnuðum
spilað áberandi skemmtilegasta fótboltann í sumar og hafa , *, , .... ..* . , ,
menn verið á einu máh um að hér fari án efa besta knattspyrnu- þoð fyrit Sjalfum okkur OQ Óllum Öðrum her I
lið landsins. Eitthvað mikið var þó að í leiknum gegn KA. Norð- dag að VÍð getum unnið hvað Hð Sem er/'
anmenn mættu hins vegar til leiks án allrar pressu, skipulögðu
sig vel og uppskáru eftir því, þótt óneitanlega hafí lukkan verið á
þeirra bandi.
KA-FH 1-0
VISA-bikarinn - Laugardalsvöllur
Dómari: Gylfi Orrason (4).
Áhorfendur: 1115. Gæöi leiks: 2.
Gul spjöld: KA: Atli Sveinn - FH:
Freyr.Tommy.
Rauð spjöld: Engin.
Mörk
1-0 Hreinn Hringsson 30.
skot úr teig stal bolta
Leikmenn KA:
SandorMatus 4
Ronni Hartvig 4
Atli Sveinn Þórarinsson 4
Steinn Viðar Gunnarsson 3
Haukur I. Sigurbergsson 3
Pálmi Rafn Pálmason 4
Örn Kató Hauksson 3
Hreinn Hringsson 3
(87., Steingrímur Eiðsson -)
ÖrlygurÞórHelgason 3
Jóhann Þórhallsson 2
(23., Sigurður Skúli Eyjólfsson 3)
Dean Martin 5
Leikmenn FH:
Daði Lárusson 4
Guðmundur Sævarsson 3
Freyr Bjarnason 4
TommyNielsen 3
Davíð Þór Viðarsson 2
Heimir Guðjónsson 2
Baldur Bett 2
Atli Viðar Björnsson 2
(83., Ármann Smári Björnsson -)
Jón Þorgrímur Stefánsson 3
(63., Allan Borgvardt 3)
Emil Hallfreðsson 2
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 3
(75., Jónas Grani Garðarsson -)
Tölfræðin:
Skot (á mark): 9-21 (4-6)
Varin skot: Sandor 2 - Daði 3.
Horn: 6-11 Rangstöður: 0-2
Aukaspyrnur fengnar: 11-13
BESTUR Á VELLINUM:
Dean Martin, KA
Eins og í flestum leikjum sumars-
ins var alveg eins og FH-ingar væru
á heimavelli. Stór hópur aðdáenda
hefur fylgt þeim um landið þvert og
endilangt og h'tið heyrðist í fáum að-
dáendum KA. Það eitt og sér dugði
þó skammt því skemmtileg FH-
stemmningin skilaði sér engan veg-
in til liðsins hverju svo sem um er að
kenna.
í það heila voru FH-ingar mun
meira með boltann og kom það
fáum á óvart. Hins vegar sáust þær
skemmtilegu sóknarlotur sem ein-
kennt hafa liðið í allt sumar afar
sjaldan en langspörk og lélegar fyrir-
gjafir mun oftar. KA-menn lögðu
upp með hörku varnarleik, baráttu
og skyndisóknir.
Því verður ekki neitað að FH-ing-
ar fengu töluvert mikið af góðum
færum og nokkrum sinnum björg-
uðu KA-menn nánast á marklínu. Þá
var markvörður þeirra, Sandor Mát-
us, í essinu sínu. í blálokin voru ís-
landsmeistaramir ótrúlega nálægt
því að jafha metin en þá skaut Ár-
mann Smári Björnsson í þverslána
af örstuttu færi. Segja má að sláar-
skotið hafi endurspeglað vel lán- og
andleysi FH-inga í þessum leik.
Vantaði menn
Nokkur skörð vom höggvin í rað-
ir FH-inga í þessum leik því vamar-
maðurinn sterki, Sverrir Garðarsson
tók út leikbann, og þá kom Allan
Borgvardt ekki við sögu fyrr en eftir
rétt rúmlega klukkutíma leik en
flensa var að hrjá Danann snjalla.
Þá fann fyrirliðinn, Heimir Guð-
jónsson, sig engan veginn og sér-
staklega eftir að hann átti slæma
sendingu til baka á Tommy Nielsen
sem segja má að hafi orsakað að
mestu mark Hreins Hringssonar
fyrir KA-menn. En mikið hefur verið
rætt um góða breidd FH-hðsins og
nú reyndi verulega á hana. Miðað
við frammistöðu íslandsmeistar-
anna í þessum leik má leiða líkur að
því að þeir treysti um of á Heimi,
hann er miðjupunktur og kjarni liðs-
ins og ef hann dettur niður á slæm-
an leik er greinilegt að enn sem
komið er getur enginn leikmaður
tekið algjörlega af skarið, tekið við
stjórninni af Heimi, í svona mikil-
vægum leik. Því fór sem fór.
Hins vegar er algjör óþarfi að
gera htið úr frammistöðu leikmanna
KA. Þeir urðu fyrir miklu áfalli um
síðustu helgi, féhu niður um deUd,
en höfðu nægUega sterkan karakter
tfl þess að ná að rífa sig upp og gera
það sem nánast enginn átti von á að
þeir gætu - slá út besta knattspymu-
Uð landsins og tryggja sér sæti í bik-
arúrslitunum. AUt Uðið gaf það sem
það átti, barist var um hvern einasta
bolta. Síðan var skynseminni beitt
og tíminn nýttur tU hins ýtrasta þeg-
ar liðið fór í þær fáu sóknarlotur sem
það fékk.
Atli Sveinn góður
Atli Sveinn Þórarinsson lék
geysivel fýrir KA og var að vonum í
skýjunum eftir leikinn. Hann sagði
sigurinn mikla sárabót fýrir faUið í
1. deUd. „Þettavarbara meiriháttar,
við sönnuðum það fyrir sjálfum
okkur og öUum öðrum hér í dag að
við getum unnið hvað lið sem er.
Menn munu eflaust benda á að þeir
hafi fengið heUing af færum, sem
þeir vissulega fengu, en á móti
kemur að við fengum fuUt af hraða-
upphlaupum sem við nýttum ekki
nógu vel. Við klikkum oft á síðustu
sendingunni, þegar við erum þrír á
móti tveimur eða fjórir á móti
þremur. Þetta datt okkar megin í
dag, þetta datt þeirra megin um
síðustu helgi. Við vorum auðvitað
mjög svekktir að faUa en við náðum
að rífa okkur upp og sýndum mik-
inn karkater. Nú verðum við að
passa okkur á því að það verði ekki
spennufaU - það er auðvitað mikið
afrek að vinna fslandsmeistarana
en við erum ekki búnir að vinna
neitt ennþá. Við verðum því, og
ætlum, að mæta jafn vel stemmdir í
úrslitaleikinn eftir viku og við gerð-
um hér í dag," sagði Atíi Sveinn
Þórarinsson.
sms@dv.is