Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Side 24
24 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004
Fókus DV
Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is
NÓIALBÍNÓI var loksins frumsýndur
í Kaupmannahöfn í vikunni og
gagnrýnandinn í Politiken erfjarska
ánægður með verkið, rek-(
ur í löngu máli sögu-
þráðinn og veltir fyrir
sérhelstu
stíleinkennum Dags
Kára. Honum er hrósað
fyrir gamansama fjarlægð
og nærfærni trygglyndis. Myndin sé
hressileg og gefi ekkert eftir kröfum
MTV-kynslóðanna og eða tvlræðni
póstmódernista. Er ekki aö sjá annað
en Nóinn hafi hitt
skríbentinn beintí
höfuðið því hann
finnur ekkert að myndinni. Þetta er
vitaskuld mjög í anda flestra dóma
sem birst hafa erlendis um þetta
ágæta verk. Nói var tilnefndur til
menningarverðlauna DVá laugar-
dag og verður fróðlegt að sjá hvernig
honum ferst í meöhöndlun dóm-
nefndar.
Flugan
RITIÐ kom út fyrir fáum dögum og
hefur þegar fengið nokkra umfjöllun
á siðum DV. Efni ritsins er helgað lýð-
ræðinu og eru þar margar fróðlegar
greinar. Ný-næmi er að þar er birt
enskt leikrit i íslenskri þýðingu, styrkt
af Þýðingarsjóði og þýðir Vilborg
Sigurðardóttir leikritiö Lýðræði eða
Democracy eftirMichael Frayn, en
það fer nú sem logi yfir akur í flest-
um Evróþulöndum. Verið er að frum-
sýna það í Kaupmannahöfn I Betty
Nansen leikhúsinu og er Lars Bryg-
man í hlutverki Willy Brandt. Lars er
þekktur hér afhlutverkum sínum í
dönskum framhaldsseríum. Hann
lék la Cour í Rejseholdet og var síðan
Mikael Frank, einn lögmannanna í
Forsvar sem RUV sýndi í sumar.
LÝÐRÆÐI segir affrægu máli í sögu
síðustu aldarþegar Willy Brandt var
kanslari Vestur-Þýskalands sem þá
var. Brandt réði til sín sem ritara
mann að nafni Gunther Guillaume
og urðu þeir afar nánir, en þá kom í
Ijós að pilturinn var njósnari fyrir
stjórnina ! Austur-Þýskalandi. Eins og
er um leikrit Frayn takast hér traust,
trúnaður og heilindi manna á við
djúpstæðan vilja til blekkinga og
táls. Verkið er afar brotakennt í upp-
byggingu en samsett afmiklu list-
fengi og væri gaman að sjá það á ís-
lensku sviði.
Kópavogur heldur spænska menningar-
viku! Ole! Gunnar Birgisson og Sigurður
Geirdal í flamenco! Fjör í Salnum, Gerð-
arsafn fullt af spænskum pappír og börn
læra spænsku og flamenco! Smárinn for-
sýnir nýjustu kvikmynd Almadovar.
Spænskar nætur
Kópavogsbær stendur fyrir
Spænskri menningarhátíð dagana 2.-9.
október með fjölbreyttri og spennandi
dagskrá, meðal annars flamenco,
spænskri tónlist, myndlistarsýningu,
málþingi og fræðsluerindi um spænska
menningu, forsýning á nýjustu kvik-
mynd Pedros Almodóvar, kynning á
spænskum bókmenntum, fjölskyldu-
hátíð og margt fleira. Á spænskri
menningarhátíð gefst fólki kostur á að
kynnast fjölbreyttri og áhugaverðri
menningu Spánverja en heimsþekktir
listamenn koma fram á hátíðinni.
Meistarar á myndlistarsýningu
í Gerðarsafni verður ein stærsta yf-
irlitssýning á spænskri myndlist sem
haldin hefur verið utan Spánar. Greint
var fr á henni hér í þessum dálkum í síð-
ustu viku. Sýningin er kölluð /
blóma/En cierne - spænsk nútíma-
myndlist á pappír og verða um hund-
rað verk eftir marga þekktustu lista-
menn þjóðarinnar á sýningunni. í
tengslum við hana er gefin út ríkulega
myndskreytt sýningarskrá með texta
eftir Guðberg Bergsson sem hefur haft
veg og vanda að undirbúningi sýning-
arinnar.
Stórmerkir tónleikar í Salnum
Þrennir tónleikar verða í Salnum:
þeir fyrstu í TÍBRÁ, tónleikaröð Kópa-
vogs, sunnudagskvöldið 3. október kl.
20 Þá flytja þær Auður Gunnarsdóttir,
sópransöngkona, og Helga Bryndís
Magnúsdóttir, píanóleikari, sönglög og
píanóverk eftir nokkur helstu tónskáld
Spánar.
Síðari tónleikarnir eru fimmtu-
dagskvöldið 7. október og föstudags-
kvöldið 8. október. Um er að ræða
tvenns konar flamencotónleika
heimskunnra tónlistarmanna sem
Kópavogsbær býður sérstaklega til
landsins í tileftii Spænskrar menn-
ingarhátíðar.
Þau eru spænski gítarsnillingurinn
og tónskáldið Gerardo Núnez, dans-
höfundurinn og flamencodansarinn
Carmen Cortés, djúpsöngvarinn Rafael
de Utrera, kontrabassaleikarinn Pablo
Martín og slagverksleikarinn Cepillo,
en öll eru þau stjörnur hvert á sínu
sviði.
Flamenco-funi og Flamenco-
fusion.
Fyrra kvöldið er helgað hreinrækt-
aðri flamencotónlist, ástríðufullum
djúpsöng, gítarleik og flamencodansi
með tilheyrandi lófaklappi.
Seinna kvöldið flytja tónlistar-
mennimir bræðing klassískrar fla-
mencotónhstar og nútímalegra
strauma, þar sem gætir áhrifa tónlistar
frá ýmsum heimshomum, einkum þó
jazzi. Miðasala á tónleikana hefst
mánudaginn 27. september og ættu
áhugasamir að drífa sig því sem kunn-
ugt er vilja sætin í Salnum oft verða of
fá.
Fjölskylduhátíð í Vetrargarð-
inum
í Smáralind laugardaginn 9. október
verða ýmis skemmtiatriði aukþess sem
nemendur úr skólum Kópavogs koma
fram. Nemendum í Menntaskólanum í
Kópavogi var boðið upp á valáfanga í
spænskri menningarsögu þar sem flétt-
að er inn kennslu í framencodansi. Þeir
sýna afrakstur danskennslunnar á fjöl-
skylduhátíðinni í Vetrargarðinum.
Nýjasta mynd leikstjórans Pedro
Almodóvar, La mala educación - Slæmt
uppeldi, verður forsýnd 9. október í
Smárabíói, ogfjallar hún ekki um dans-
kennslu í Kópavogi.
Blóðlítill Snorri
Vissulega mun mörgum þykja
forvitnflegt að lesa lýsingu norska
rithöfundarins Thorvald Steen á
síðustu dögum Snorra Sturlusonar
en það er viðfangsefrii þessarar
stuttu sögulegu skáldsögu. Og er
rétt sem bent hefur verið á í kynn-
ingu á bókinni að mest nýlunda
mun sérfræðingum líklega þykja
hið „alþjóðlega samhengi" sem
vígið á Snorra er sett í; hér eru ekki
bara „bændur að fljúgast á“ heldur
koma við kóngar, keisarar, greifar
og páfar.
En það er þó ekki pólitíkin sem
er aðalefni sögunnar heldur þau
drög að lýsingu á persónu Snorra
Sturlusonar sem Steen festir á blað
og ýmsum af hans nánustu, ekki
síst ruddanum Órækju
Snorrasyni. Samband
þeirra er rauður þráð-
ur í bókinni og út af
fyrir sig gaman að því,
þar sem Órækja hefur
hingað tfl yflrleitt ver-
ið afgreiddur í neðan-
málsgreinum flest-
allra rita um Sturl-
ungaöldina.
Skiptir ekki máli
Gallinn er bara sá
að frásögn Steens náði aldrei að
fanga þennan lesanda hér almenni-
lega. Stfllinn er dálítið undarlegur,
einfaldur og jafnvel eilítið klossaður
en á svo tfl að fara út í einhverjar
óþarfar fabúleringar.
Lýsing á því þegar
hestur Snorra prjónar
með hann á bakinu
(bls. 43) er tfl dæmis
nálægt því að vera
beinlínis absúrd. Og
jafnvel í þessari fremur
stuttu frásögn eru end-
urtelcningar furðu al-
gengar án þess að verða
töfrandi: „Þrátt fýrir að
aldrei hefði verið eins
stormasamt á Noregs-
hafi á þessum árstíma
hélt Snorri fast við það að hann yrði
að fara heim tfl eyjunnar úti í Atl-
antshafi. Snorri vfldi fýrir alla muni
komast tfl baka tfl íslands, litla
Tilnefningar til K*
menningarverðlauna
uv 2003
í flokki arkítektúr
Bifröst -
Studio Granda
Viðbygging við Viðskipta-
háskólann á Bifröst. Fjöl-
nota hús, kaffihús og sam-
komusalur. Vel leyst hús-
bygging sem tengist eldri
byggingum með smekk-
legum hætti. Innra rými
leyst á snjallan hátt.
istak
Engjateig 7
KHR AS arkitekter i Dan-
mörku og Arkis ehf. arki-
tektar í Reykjavík.
Höfuðstöðvar verktakafyr-
irtækis við Engjateig 7 i
Reykjavik. Einföldm og fal-
leg bygging sem er vel
leyst í alla staði, bæði ut-
anhús og innan. Heilt og
velheppnað verk.
Barnaspítali
Hringssins
Teiknistofan Tröð
Ágæt bygging sem er
klæðskerasaumuð fyrir
starfsemina sem hún hýsir.
Eykt
Lynghálsi 4
Pálmar Kristmundsson,
arkitekt
Höfuðstöðvar verktaka-
fyrirtækis við Lyngháls 4 i
Reykjavík. Einföld og
glæsileg bygging.
Laugalækjar-
skóli - Studio
Granda
Viðbygging við Laugalækj-
arskóla. Ágætis bygging.
Skemmtileg rými i frekar
lítilli byggingu. Góðar
lausnir á einföldu rými.
Dómnefnd vegna arkítektúr sem ísitja Guja Dögg Hauksdóttir
arkítekt, Páll Hjaltason arkítekt og Freyr Einarsson blaðamaður.
Thorvald Steen
Undir svikulli sól
Þýðandi Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson. 198 blaðsíður. Útgef-
andi Almenna bókafélagið.
Bækur
landsins undir Pólstjömunni, eyjar
elds og ísa.” Hmmm.
Snorri Sturluson sögunnar er
ferlegur vingull sem rápar ffarn og
aftur síðustu dagana og fær hvergi
rönd við reist þótt hann viti sig í lífs-
hættu. Sú lýsing kann að standast
en þessi Snorri náði þó því miður
aldrei að skipta lesanda minnsta
máli. Hugsanir hans ekki in-
tressant. Andlegt líf rithöfundarins
knáa að því er virðist helst tfl fátæk-
legt. Spenna yfir ffamvindunni títil.
Og bókin í heild náði ekki að festa
sig í huganum.
niugUökulsson
Hátíðinni lýkur
á morqun
Norræna heimflda- og stutt-
myndahátíðin er senn yfirstaðin.
Hún hófst á föstudagseftirmið-
dag og hefur staðið alla helgina
með látíausum kvikmyndasýn-
ingum á nokkrum stöðum í mið-
bæ Reykjavíkur, en aðalsýningar-
staður hátíðarinnar var Regn-
boginn.
Margt var merkilegt og
spennandi að sjá á hátíðinni og
var vel vandað til allrar kynning-
ar, en ekki em öll kurl komin til
grafar og því of seint að segja til
um aðsókn að hátíðinni.
Verðlaunamyndirnar verða
ekki sýndar fyrr en að morgni
þriðjudags í Regnboganum og
síðan endurteknar á sérstakri
útisýningu á Miðbakkanum í
gömlu höfninni í Reykjavík.