Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Side 32
I—* s r t I ,
'T'fzitttlJXtM Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndarergætt. Í-J #-»
5505090
SKAFTAHLÍÐ24, 105REYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910 ] SÍMI5S0S000
‘V'
rm
Jakobína Thomsen Stendur ráðþrota gagnvart innheimtuhörku STEFs og telur kröfu þeirra
vart standast lög. DV-mynd Gísli Einarsson Skessuhorni
• Dávaidurinn Sailesh
hefur gjörsamlega slegið
í gegn á íslandi og hafa
móttökurnar komið
honum algjörlega í opna
skjöldu. Alls 156 manns
buðu sig fram til dáleiðslu og
hefur Sailesh aldrei upplifað neitt
í líkingu við þetta...
• íslenskt kvenfólk féll fyrir Sai-
lesh hinum dáleiðandi en tíð-
indamaður blaðsins segist hafa
komið að þremur stúlkum í
heimsókn uppi í rúmi hjá honum
á Hótel fslandi þar sem hann
gistir. Dávaldurinn fer til sfns
heima í Bandaríkjunum síðdegis
í dag. Svo vel líkar Sailesh við
land og þjóð að hann er þegar
farinn að undirbúa endurkomu
sína. Er von á honum ekki síðar
en einhvem tíma á fyrstu fjórum
mánuðum næsta árs og mun
umbjóðandi hans hér, fsleifur
Þórhallsson, þegar vera farinn að
leggja drög að því...
Rolling Johnsen?
$
3 'Aoái
„Ég er enn svo reið eftir að ég
talaði við manninn hjá STEF að ég
er ekki komin yfir það ennþá," seg-
ir Jakobína Thomsen verslunareig-
andi frá Grundarfirði sem hefur
afar sérkennilega sögu að segja.
Jakobína rekur Stellubúð á
Grundarfirði og er hún opin 2 tíma
hvern virkan dag. Þar höndlar hún
með handverks- og gjafavöru. í
fyrra fékk hún rukkun frá STEF upp
á níu þúsund krónur fyrir að leika
tónlist í búð sinni. Þá einsetti hún
sér að leika ekki tónlist framar í
búðinni svo óréttmætur þótti henni
reikningurinn. En það breytti ekki
því að aftur kom rukkun frá STEF
og nú, að því er virðist, fyrir að leika
sitt eigið lag í búðinni!
„í fyrra vissi ég ekki til þess að
maður væri rukkaður fyrir að leika
tónlist í búð. En svo fékk ég rukkun
á nýjan leik þó svo að ég hafi engin
hljómflutningstæki í búðinni."
Löng eru eyru STEFjarmanna
því sá sem varð fyrir svömm þegar
Jakobína hringdi í samtökin fullyrti
að leikin hafi verið tónlist í Stellu-
búð. „Hann kynnti sig ekki en var
bara með skæting. Það eina sem
mér datt í hug var að tvisvar hef ég
kveikt á grínútvarpi sem hreyfir
varirnar þegar það er í gangi til að
sýna viðskiptavinum. Hann sagði
að það væri ekki málið. Svo kveikti
ég á perunni."
Þannig var að Jakobína og Niels
Friðfinnsson, maður hennar og
mikill músíkant, sendu inn lag í
lagakeppni sem Rás 2 stóð fyrir í
tengslum við sjómannadaginn.
„Þetta er svona létt og þægilegt sjó-
mannalag. Ég samdi textann og Ní-
els lagið. Við tókum það upp í litlu
hjóðveri hjá kunningja okkar. Ég
söng það sjálf þannig að þú getur
ímyndað þér hverskonar kattargól
þetta er. Enda var það bara gert til
að menn gætu áttað sig á laglínu og
texta. Þetta lag hefur aldrei verið
spilað opinberlega og við bíðum
þess en að Lísa Pálsdóttir sendi
okkur diskinn aftur því ekki vann
lagið."
Og það er sem sagt þetta lag sem
Jakobína hefur leikið á gamalt
kassettutæki í Stellubúð og þarf nú
að gjalda STEF það sem keisaran-
um ber. „Ég stend gersamlega ráð-
þrota gagnvart þessu en hef ekki
komið því í verk enn að leita lög-
fræðings."
Pólska engisprettan
fannst dauð
Engispretta sem dvalið hafði í
góðu yfirlæti í ráðhúsinu í Stykkis-
hólmi frá því í síðasta mánuði
drapst fyrir nokkrum dögum. Engi-
sprettan fannst um borð í flutn-
ingaskipinu Jökulfelli 20.ágúst þeg-
ar verið að skipa upp plaströrum frá
Póllandi. Það var Símon Sturluson
hafnarverndarmaður Stykkis-
hólmshafnar sem fann engisprett-
una og fór umsvifalaust með hana á
Náttúrustofu Vesturlands þar sem
starfsmenn tóku við henni. Engi-
sprettan var af tegundinni Great
Green Bush, um sex cm löng og
gullfalleg. Hún settist að í glerbúri
og lifði lengstum á víðilaufblöðum,
vínberjum og ýmsu öðru góðgæti.
Engisprettan vakti verðskuldaða at-
hygli og segir Róbert Arnar Stefáns-
son líffræðingur og forstöðumaður
Náttúrustofu Vesturlands að ýmsir
bæjarbúar hafi verið áhugasamir
Engisprettan f Stykkishólmi Hún settist
að í glerbúri og lifði lengstum á víðilaufblöð-
um, vínberjum og ýmsu öðru góðgæti.
DV-mynd Róbert A. Stefánsson
um dýrið og um helgar hafi börn
starfsmanna ráðhússins og Nátt-
úrustofunar tekið engisprettuna
heim og séð um hana og haldið
henni félagsskap. Á tímabilinu varp
engisprettan í glerbúrið sitt en
þann 18. september drapst hún. Ef-
laust þykir mörgum Hólmaranum
sjónarsviptir af engisprettunni.
Rúilandi steinar á Stokkseyri
í veðurhamnum sem gekk yfir
landið aðfaranótt laugardags gekk
ýmislegt á. Þau undur gerðust á
Stokkseyri að tvö af landsþekktum
steinverkum Árna Johnsen tókust
nær á loft og ultu um koll. Verkin
skemmdust nokkuð en Árni mun
telja mögulegt að gera við þau.
Sunnlendingum þykir sem rúllandi
steinarnir hafi verið merkilegur fýr-
irboði örskömmu áður en Rolling
Stones-hátíð var haldin á Drauga-
barnum. Hátíðin þótti heppnast
einstaklega vel og varð húsfyllir.
Björn Bjarnason, forseti Hrútavina-
félagsins, var einn aðstandenda há-
tíðarinnar, sem haldin var að vest-
firskri fyrirmynd og undir vernd
lögsögumannsins og söngvarans
Ólafs Helga Kjartanssonar.
„Stokkseyringar sáu rúllandi
steina bæði úti og inni. Hátíðin
heppnaðist fullkomlega þrátt fýrir
fyrirboðann og framhald verður á
Rolling Stones-kvöldunum hér,“
segir Björn Ingi.
30. september 2(?04
á Broadway
lExpress
Krýning á k\7nþokkafyllsta karlmanninum 2004
Kosning fer fram á www.vikan.is
Fylgstu með á Létt 96,7
\ MOTORS