Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1928, Blaðsíða 24
OAPníOUK, 'I'UNOL.fiS 0« SÓLAR Á ÍSLANUt.
í þriðja dálki livers mánaðar, sem liefir yiirskriptina »t í h« (tungl
í liádegisstað), og í töblunni ó blaðsíðu (17' er sýnt, hvað klukkan er
eptir islenzkum meðaltíma, þejíar tunglið og sólin eru í hódegisstað
í Reykjavik. En vilji menn vita, hvað klukkan sje eptir íslenzkum
meöaltíma, þegar tunglið eða sólin eru i hádegisstað á öðrum stöðum
ó íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda »lengdarleiðréttingu«
á Reykjavikurtölunni. Verður hún — 4 minútur fyrir hvert lengdar- j
stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavik, og + 4 mín. fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurimi liggur vestar en Reykjavík. T. d. er
Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en Reykjavik; lengdar-
leiðréttingin þar er þá — 24 mín. og 5. júlí er sól i hádegisstað i
Raufarhöín þess vegna kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiða-
firði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavík og lengdarleið-
réttingin er þar 4 min. 1. febrúar er því tungl í hádegisstað í Flatey
kl. 9 15 e. m. (9 11 + 4 mín. = 9 15).
Sólargangurinn i Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvem
miðvikudag. Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er
miðja sólar sést koma upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til
sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sjest fara niður fyrir sjóndeildarhring-
inn Til þess að finna sólarganginn annarsstaðar á landinu, þarf að
gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama hátt og við sól
eða tungl í hádeeisstað. en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi aðeins eftir breiddarstigi staðarins,
heldur er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavik. í
eftirfarandi töblu er sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert halft stig,
norðar og sunnar en Reykjavík, þegar sólargangurinn i Rvík stendur
á heilli stundu. Leiðréttingin er pósítíf (-f), þegar sólargangurinn |
lengist vegna hennar, en negatíf (—), þesrar sólargangurinn styttist.
Breiddarleiðrétting töblunnar er þvi lögð við tima sólarlagsins i Rvík,
en dregin fra sólaruppkomutimanum, nema breiddarleiðréttingin sé
negatíf (—), þá er það öfugt.
Dæmi: Sólargangur 9. mai á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
og 2*/a stigi norðar en Rvik.
Penna dag er sólargangur í Reykjavík 17 st. 37 min. Breiddar-
leiðrétting töblunnar fyrir 2‘/» stig norður og sólargang 17 st. er + 23
min. en fyrir 18 st. + 30 mín. og fyrir 17 st. 37 mín. verður breiddar-
leiðréttingin þvi + 27 mÍD. Lengdarleiðréttingin er — 24 min.
í Reykjavik...........su. 3 37 sl. 9 14
Breiddarleiðrétting . — 27 +27
Lengdarleiðrétting . — 24_______— 24
í Raufarhöfn . . . . su. 2 46 sl. 9 17
Annað dæmi: Sólargangur 21. nóv. í Flatey á Breiðafirði, sem er
1 stigi vestar og l1/* stigi norðar en Rvik. Sólargangur í Reykjavik
er 5 st. 49 mín.
í Reykjavik...........su. 9 19 sl. 3 08
Breiddarleiðrétting . +15 — 15
Lengdarleiðrétling . + 4________+ 4
í Flatey..............su. 9 38 sl. 2 57