Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Blaðsíða 123
(Framh. frá 2. kápuslðu.)
fáir af hinum mörgu kaupendum ritanna nú geta átt þess
kost að eignast svo um muni af þeim. Með því að kaupa
sem mest af gömlum árgöngum, auka þeir verðmæti þess
safns af ritunum, sem þeir eiga eða eignast, svo að nemur
margfalt meira fé en gömlu árgangarnir kosta nú.
Það borgar sig því margfaldlega að verja nokkrum
tugum króna til þess að eignast sem mest af gömlum
árgöngum Almanaksins og Andvara. Sé keypt í einu
það, sem til er af ritum þessum, hvoru fyrir sig, frá
upphafi og fram til 1939 — eða þótt skemur sé, cf um
félagsmenn er að ræða, sem eiga eldri árganga, — þá
kostar árgangurinn aðeins eina krónu.
Ný félagsrit.
Um Ný félagsrit gegnir liku máli og um Andvara, en
hann má skoða bcint áframhald þeirra. Enn er til nokkuð
af þeim, þótt þar séu lika óbætanleg skörð. Einstakir ár-
gangar af þessu fræga tímariti Jóns Sigurðssonar, er
hefur að geyma margar beztu ritgerðir hans, kosta aðeins
eina krónu.
Ævisaga Jóns Sigurðssonar
eftir dr. Pál Eggert Ólason. I.—V. bd.
Þetta stórmerka ritverk gengur nú óðum til þurðar.
Þykir ekki ástæða til, eins og verðlagi háttar nú, að
selja það við lækkuðu verði. Verður það selt eftirleiðis
við upphaflegu verði, 35 kr. öll 5 bindin, meðan upp-
lagið endist.
Bókasafn þjóðvinafélagsins I.—IX.
Aðeins fáein eintök eru enn til af safni þessu. Kost-
ar það aðeins 25 kr., ef öll bindin eru keypt í einu.
Um önnur rit félagsins, einstakar bækur og hefti og
verð þeirra, skal vísað í bókaskrána i Almanaki 1941.