Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1948, Blaðsíða 90
bæjum síðustu mánuði ársins, einkum á Vestfjöröum.
Mjög erfitt reyndist að fá fólk til kaupavinnu i sveitum.
Reynt var að fá útlent verkafólk til sveitavinnu, en það
bætti hvergi nærri úr þörfinni. Vikukaup kaupamanna
mun víöast hvar hafa veriö um 400 kr., en kaupakvenna
200—300 kr. —
Nokkuð var um vinnustöðvanir á árinu. Verka-
mannafélagið Dagsbrún í Rvík gerði verkfall 22. febrú-
ar, og stóö þaö til 2. onarz. Um líkt leyti var verkfall
strætisvagnabílstjóra. Hinn 23. sept. lýsti Alþýðusam-
band íslands verkfalli í einn dag til aö krefjast þjóðar-
atkvæöagreiðslu um samningsuppkastið við Randa-
ríkjastjórn um Keflavíkurflugvöllinn.
Greinin um iþróttir er rituð af Þorsteini Einarssyni
íþróttafulltrúa.
Ólafur Hansson.
íslenzk leiklist eftir 1874.
í.
Árið 1874 lýkur merkilegum kafla i leiklistarsögunni
hér. Hann hefst veturinn:1858—59, þegar Sigurður Guð-
mundsson málari útbýr leiksvið sitt í Nýja klúbbnum
og setur yfir leiksviðið með skrautlýstum stöfum
einkunnarorð leiksviðsins í Reykjavík: Gaman og
alvara. Þáttaskiptin verða, þegar Sigurður deyr, 7. sept.
1874. Hinn skammvinni starfstími Sigurðar varð is-
lenzkri leiklist næsta þýðingarmikill. Frá þessum árum
(1860) segir í leikdómi: „Það má ganga að því visu, að
þeir, sem sjá leikana í þetta sinn, láti sér nú ekki allt
lynda í þessu efni hér á eftir; það verður nú meiri
vandi en áður að sýna liér þess konar leik, því auk
þess, að sumir þeirra, sem nú léku, hafa afbragðs-
hæfilegleika til þeirra hluta, þá var hér nú við höndina
sá maður, sem átti hinn bezta þátt i að gera allt þetta
(88)