Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 22
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR Á ÍSLANDI.
I þríðja dálki hvers mánaðar, sem hefir yfirskriftina „T. f h.“ (tungl í hásuðrí),
og í tðflunni á blaðsíðu (15) er sýnt, hvað klukkan er eftir fslcnzkum miðtíma, þegar
tunglið og sólin eru f hásuðri í Reykjavfk. En komast má að því, hvað klukkan er
eftir íslenzkum miðtíma, þegar tunglið eða sólin er í hásuðri annars staðar á íslandi,
með því að gera svo nefnda „Iengdarleiðréttingu“ á Reykjavíkurtðlunni. Verður hún
-f 4 mínútur fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggixr vestar en Reykjavík, og
— 4 mínútur fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík. T. d.
er Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdarleiðréttingin þar
er þá — 24 mín.. og 2. júlí er sól í hásuðri frá Raufarhöfn þess vegna kl. 12 08 (12 32 —■
0 24 = 12 08). Flatey á Brciðafirði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavík, og
lengdarleiðréttingin er þar + 4 mín. Þann 8. febrúar er því tungl í hásuðrí frá Flatey
kl. 19 10 (19 06 + 0 04 = 19 10).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern miðvikudag. Sólar-
uppkoma (su.) telst, þá er sólmiðjan er á uppleið 50 bogamínútum undir láréttum
sjóndeildarhring, en vegna ljósbrotsins er þá efri rönd sólar að verða sýnileg, eða því
sem næst. Sólarlag (sl.) telst á sama hátt, þegar sólin á niðurleið er 50 bogamínútum
fyrir neðan láréttan sjóndeildarhring, og hverfur sólin þá sjónum. Til þess að finna
sólarganginn annars staðar á landinu, þarf að gcra lengdarleiðréttingu á Reykjavíkur-
tölunni á sama hátt sem við sól eða tungl í básuðri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi aðeins eftir breiddarstigi staðarins, heldur er hún
einnig korain undir sólarganginum 1 Reykjavík. í ei'tirfarandi töflu er sýnd breiddar-
leiðrétting fyrir hvert hálft stig, norðar og sunnar en Revkjavík, þrgar sólargangurinn
í Reykjavík stendur á heilli stundu. Leiðréttingin er pósitff (+), þegar sólaigangur
engist vegna hcnnar, en negatíf (—), þegar sólarganguriun styttist. Breiddaricið-
rétting töflunnar er því Iögð við tíma sólarlagsins í Reykjavík, en dregin frá sólarupp-
komutfmanum. Sé breiddarleiðréttingin negatíf (—), verður að taka forteiknið til
greina.
Dœmi: Sólargangur 17. apríl á Raufarhöfn, sera er 6 stigum austar og 2*/j stigi
norðar en Reykjavík.
Þenna dag er sólargangur í Reykjavík 15 st. 17 mín. Breiddarleiðrétting töflunnar
fyrir 2stig norður og sólargang 16 st. er + 16 mín., en fyrir 15 6t. sólargang + 12
mín.; hún telst því hér + 13 mín.
Lengdarleiðréttingin er — 24 mín.
í Reykjavík.............. su. 4 50 sl. 20 07
Breiddarleiðrétting .... — 13 +13
Lengdarleiðrétting...... — 24 — 24
Á Raufarhöfn............. su. 4 13 sl. 19 56
Ánnad dœmi: Sólargangur 16. október £ Flatey á Breiðafirði, sem er 1 stigi
vestar og ll/4 stigi norðar cn Reykjavík. Sólargangur í Reykjavík er 9 st. 45 min.
í Reykjavík.............. su. 7 20 sl. 17 05
Breiddarleiðrétting .... +4 — 4
Lengdarleiðrétting...... +4 +4
í Flatey ................ su. 7 28 sl. 17 05
—
(20)