Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 54
25. okt. var dr. Sigurður Nordal skipaður ambassador
ísl. i Danmörku (afhenti skilriki sín 28. nóv.). 28. okt.
var Knútur Hallsson cand. jur. skipaður fulltrúi í
menntamálaráðuneytinu. 31. okt. var Tómas Tómass.
hagfræðingur skipaður fulltrúi í islenzku utanrikis-
þjónustunni. í okt. var Sigurður Jónass. skipaður
forstjóri Tóbakseinkasölu ríkisins. í okt. var Ástráður
Sigursteindórss. cand. theol. ráðinn skólastjóri Gagn-
fræðaskólans við Vonarstræti (Landsprófsskólans).
1. nóv. var Sveinn Björnss. ráðinn framkvæmdastjóri
Iðnaðarmálastofnunar íslands. 9. nóv. var Pétur Bene-
diktsson sendiherra ráðinn bankastjóri við Lands-
banka íslands. 15. nóv. var Henrik Linnet skipaður
héraðslæknir í Stórólfshvolshéraði. 15. nóv. var V.
Prost skipaður aðalræðism. ísl. i Luxemborg. 24. nóv.
var dr. Sigurður Samúelsson skipaður prófessor í lyf-
læknisfræði við Háskóla íslands. 1. des. var Ingi Þor-
steinss. skipaður ráðunautur í jarðyrkju við Atvinnu-
deild Háskóla íslands. 7. des. var Torfi Bjarnason
skipaður héraðslæknir i Akraneshéraði.
26. sept. tók dr. Kristinn Guðmundsson utanrílcis-
ráðherra við formennsku í Norður-Atlantshafsráðinu
til eins árs. Páll S. Árdal frá Siglufirði var ráðinn
lektor í heimspeki við Edinborgarháskóla. Árni Böðv-
arsson var ráðinn lektor í íslenzku við Oslóarháskóla.
Eirík Eylands starfaði í Pakistan að kennslu i bún-
aðartækni á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna.
Lausn frá embætti: [20. des. 1954 var Þorsteini
Þorsteinssyni, sýslumanni í Dalasýslu, veitt lausn frá
embætti.] 8. febr. var Páli Ólafss., ræðismanni ísl.
í Þórshöfn, Færeyjum, veitt lausn frá embætti. 15.
febr. var Garðari Þ. Guðjónssyni, héraðslækni í Flat-
eyjarhéraði, veitt lausn frá embætti. 15. febr. var
Guðjóni Guðnasyni, héraðslækni í Höfðahéraði, veitt
lausn frá embætti. 11. maí var séra Sigurði Norland,
sóknarpresti í Tjarnarprestakalli, V.-Hún., veitt lausn
(52)