Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1960, Side 26
ÚR LÖGUM UM TÍMATAL OG ALMANÖK.
Samkvæm* lögum um ákvörðun tímans 16. nóv. 1907 skal hvarvetna á fslandi
telja tímann eftir miðtíma á 15. lengdarstigi fyrir vestan Greenwich. í almanaki
þesau eru því allar stundir taldar eftir þessum svonefnda íslenzka midtíma, 27 mínútum
43,2 sekúndum á undan miðtíma Reykjavíkur.
Með lögum nr. 8, 16. febr. 1917, er ríkisstjórninni heimilað að flýta klukkunni,
ef það þykir henta (,,sumart(mi“), og verður, ef það er gert, að sjálfsögðu að taka
tillit til þess við notkun almanaksins.
í lögum nr. 25, 27. júní 1921, segir m. a. svo:
1. gr.
Háskóli íslands skal hafa einkarétt til þess að gefa út og selja eða afhenda með
ððrum hætti almanök og dagatöl á íslandi.
5. gr.
í>að er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. gr., ef maður:
1. Flytur inn í landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti önnur almanök
eða dagatöl en þau, er í 1. gr. segir.
2. Selur hér í landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða dagatöl en þau
sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eða dagatöl eða
kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjölritar almanök háskólans eða dagatöl eða kafla úr þeim til
þess að selja eða láta af hendi með öðrum hætti.
Hið íslenzka þjóðvinafélag hefur með samningi keypt einkaleyfi þetta í ár (1960),
og nær það til allra almanaka í bókarformi.
Árið 1961 ber páskana upp á 2. apríl.
(24)