Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1960, Blaðsíða 33
veita, sé því dælt inn í æð. Hafi maðurinn neytt
heroíns, fær ekkert annað lyf veitt honum framar
jafnmikla ánægju, og miðast þess vegna öll hans við-
leitni upp frá því við það eitt að afla sér þess. Held-
ur vill hann svelta heilu hungri dögum saman en án
þess að vera. Heilbrigt kynferðislíf þver og kynlöng-
un verður algert aukaatriði. Hann verður óháður
allri mannlegri þrá og eðlilegum kenndum, finnst
hann yfir slíkt hafinn og sjálfum sér nógur i sjálfs-
elsku sinni. Ástríðan verður öllum hinum sterkustu
eðlishvötum yfirsterkari, hún sigrar sjálft lífið, enda
hætta þeir lífinu oft hennar vegna. Á hinn bóginn
skilst þeim, að ástríðunni fylgi geigvænleg hætta, og
þeir verða ósegjanlega óttaslegnir. Óskaplegt sálar-
stríð og togstreita skiptist á við yfirskilvitlega sælu-
kennd, en ört hallar undan fæti og örlög flestra
heroínista eru hin ömurlegustu.
Marijuana fæst úr blómum ýmissa hampjurta
(Cannabis americanus). 3000 árum f. Kr. er fyrst
vitað um notkun þess sem nautnalyfs og hefur það
síðan verið notað öldum saman sem nautnalyf í Kína,
Indlandi, Evrópu og undanfarna áratugi í Ameríku.
Nefnist það ýmsum nöfnum, til dæmis hashish, ganga
og manzoul. Það er ýmist etið blandað sætindum,
reykt sem vindlingar eða drukkið sem te. Áhrifum
þess svipar helzt til áfengisáhrifa. Yerða neytendurn-
ir ýmist syfjaðir eða ofsafengnir, kátir eða rólegir,
og oft skortir þá dómgreind, samfara almættiskennd.
Á suma virðist það hafa litil sem engin áhrif og
áhrifin eru raunar töluvert breytileg hjá flestum.
Freistast þá allmargir til þess að afla sér sterkari lvfja
og mjög algengt er, að menn byrji á marijuana og
kynnist þá öðrum nautnalyfjaneytendum og sölu-
möngurum, sem fljótlega krækja í þá og venja þá
á heroín. Upp frá þvi er þeim sjaldan undankomu
auðið.
Mescaline er unnið úr hnapplaga toppi kaktusjurt-
(31)