Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1960, Side 40
ávanahættu í för meö sér. Þekktast þeirra er örvi-
lyfið amfetamín. Óhófleg notkun þess greip ört um
sig áður en læknar þekktu hættuna, sem það hefur í
för með sér. Sums staðar fæst það enn í dag í lausa-
sölu, án lyfseðils. Flestar þjóðir hafa þó skrásett það
með öðrum hættulegum lyfjum og takmarka notkun
þess af fremsta megni. Það er notað í megrunartöfl-
ur, vegna þess, að það dregur mjög úr matarlyst, en
eykur einnig vellíðan og dreifir dapurleika og
drunga. Einnig hefur það verið notað með nokkrum
árangri við þunglyndi, en mjög eru skiptar skoðanir
um gagnsemi þess við þeim sjúkdómi. Það veldur
svefnleysi, og þeir, sem taka það að kvöldi, geta ekki
sofnað en vaka heilar nætur á valdi hins sterka
hugsanaflaums, sem lyfið örvar. Sumir sjúklingar hafa
notað 10—20 sinnum stærri skammta en læknar
þeirra hafa ráðlagt þeim. Fylgikvillar þess, auk svefn-
leysis og listarleysis, eru ákafur órói og eirðarleysi,
tíður hjartsláttur, ergi og gremja, ofskynjanir á sjón
og heyrn og ofsóknarþráhyggja.
Vegna svefnleysis grípa þeir oft til svefnlyfja, og
verður sú lyfjanotkun einnig óhófleg og eykur þung-
lyndi á nýjan leik. Myndast þannig vítahringur og
sogast sjúklingurinn inn i lyfjaátshringiðu og bætir
sifellt við sig hættulegri lyfjum eða áfengi. Auk tafl-
anna hafa þeir lært að leysa upp amfetamin úr
staukum, sem notaðir hafa verið við nefkvefi. 1 sum-
um þeirra er mikið magn amfetamins. — Dexedrin
heitir enn eitt lyf, skylt amfetamini og með svipaðar
verkanir.
Bezt er og öruggast að vera sjálfstæður og óháður
öllum lyfjum, en mikill þorri fólks þjáist af öryggis-
leysiskennd á misjafnlega háu stigi. Leitar það sér
þess vegna stuðnings og styrktar með ýmsum ráðum,
sem þó auka yfirleitt ósjálfstæði þess. Ósjálfstæði er
afar áberandi þáttur í lyndiseinkunn flestra nautna-
lyfjaneytenda og ofdrykkjumanna og má vera, að
(38)