Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 38
MÆLIEININGAR
í eftirfarandi yfirliti eru einingar hins alþjóðlega einingakerfis (SI)
auðkenndar með feitu letri. Undir- og yfireiningar kerfisins eru mynd-
aðar með forskeytum, sbr. töfluna á bls. 43. Br. táknar brezkar einingar
og U.S. bandarískar. Fullkomnar jafngildistölur eru skáletraðar.
102 = 100, 103 = 1000 o.s.frv. 10~2 = 1/100, 10'3 = 1/1000 o.s.frv.
Lengd.
1 metri (m) = 1650 763,73 öldulengdir Ijóss af sérstökum rauðleitum
lit, sem einkennir lofttegundina krypton 86, eina af samsætum
frumefnisins krypton. Þessi skilgreining gekk í gildi 1960.
1 þumlungur, tomma (inch, in, Br. og U.S.) = 2,54 cm.
1 fet (Br. og U.S.) = 12 þumlungar = 30,48 cm.
1 yard (Br. og U.S.) = 3 fet = 0,914 4 m.
1 míla (Br. og U.S.) = 1 760 yardar = 1,609344 km.
1 sjómíla (alþjóðleg) = 1852 m'. Sjómílan samsvarar nokkurn veginn
1 mínútu breiddar á yfirborði jarðar. Breiddarmínútan er um
1 843 m við miðbaug en 1 862 m við heimskaut.
1 stjarnfræðieining (staðalgildi) = 1,496 10" m. Stjarnfræðieiningin er
sem næst því að vera meðalfjarlægðin milli jarðar og sólar.
1 ljósár = 9,461 -1015 m = 63 239 stjarnfræðieiningar.
1 parsek (pc) = 3,086-1016 m = 206265 stjarnfræðieiningar = 3,26
ljósár.
1 punktur (í leturmáli) = 0,037 6 cm. (Enskur punktur er 0,035 1 cm).
1 míkron (p) 10~6 m. Heppilegra nafn: míkrómetri (pm).
1 Ángström (Á) = 70"10 m.
öldulengd sýnilegs ljóss = 4-10-7 m — 8-10_7 m.
Þvermál atóms = um 10 10 m.
Þvermál atómkjarna = 10"14 m— 10"15 m.
Flatarmál.
1 fermetri (m2) = flatarmál femings sem er 1 m á hvorn veg. í einum
fermetra eru tiu þúsund fersentimetrar (cm2).
1 hektari (ha) = 10 000 m2.
1 ferkílómetri (km2) = 100 hektarar = 706 m2.
1 ekra (Br. og U.S.) = 0,404 7 hektarar = 4047 m2.
Rúmmál.
1 rúmmetri (m3) = rúmmál tenings sem er 1 metri á hvern veg. í einum
rúmmetra eru þúsund rúmdesimetrar (dm3) eða milljón rúmsenti-
metrar (cm3).
1 lítri (1) = 7 dm3 = 7 000 cm3 (millilítrar, ml). Þessi skilgreining gekk
í gildi 1964. Samkvæmt eldri skilgreiningu var lítrinn 1,000028
dm3. Til þess að forðast misskilning skal því ekki nota lítramálið
þegar rúmtak er tilgreint með mjög mikilli nákvæmni.
1 pottur = um 1 lítri.
1 mörk = um 1/2 lítri.
1 peli = um 1/4 úr lítra.
1 mál (síldar) = 150 lítrar. Málið er oft talið taka 135 kg af síld.
1 tunna (síldar) = 120 1. Tunnan er oft talin taka um 100 kg af síld.
1 rúmþumlungur (cubic inch, Br. og U.S.) = 16,4 cm3.
1 rúmfet (Br. og U.S.) = 28,3 dm3.
(36)