Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 78
vökva. Halldór Laxness var í maí gerður heiðursdoktor við
háskólann í Ábo í Finnlandi. 11. desember varði frú Guðrún
P. Helgadóttir, skólastjóri, við Oxfordháskóla ritgerð um
Hrafn Sveinbjarnarson.
Þorkell Helgason lauk prófi í stærðfræði við háskólann í
Munchen og Reynir Eyjólfsson lauk licentiatprófi við lyfja-
fræðiháskólann í Kaupmannahöfn. Magnús Skúlason lauk
prófi í húsagerðarlist við Oxfordháskóla. Þorsteinn Þorsteins-
son lauk prófi í flugvélaverkfræði í Glasgow.
Stúdentspróf. 436 stúdentar voru brautskráðir á árinu
(árið áður 401). Frá Menntaskólanum í Reykjavík útskrifað-
ist 231 stúdent. Hæstur var Erlendur Jónsson, ágætiseinkunn
9,55. Frá Menntaskólanum á Akureyri brautskráðust 122
stúdentar. Hæst var Alda Möller, ágætiseinkunn 9,66. 26
stúdentar voru brautskráðir frá Menntaskólanum á Laugar-
vatni. Hæstur var Matthías Haraldsson, ágætiseinkunn 9,61.
Frá Verzlunarskóla íslands voru brautskráðir 315 stúdentar.
Hæstur var Gunnar H. Guðmundsson, ágætiseinkunn 7,50
(eftir einkunnastiga Örsteds). Kennaraskóli íslands braut-
skráði stúdenta í fyrsta sinn. Voru þeir 26, og var hæstur Guð-
finnur P. Guðfmnsson, I. einkunn 8,96.
Landspróf. Undir landspróf miðskóla gengu 1225 nem-
endur (árið áður 1029) og hlutu 835 framhaldseinkunn (árið
áður 674). Hæstur var Hafliði P. Gíslason, Hagaskóla,
Reykjavík, ágætiseinkunn 9,71.
Raforkumál.
Unnið var áfram að miklum virkjunarframkvæmdum við
Búrfell. 3. júní var lagður hornsteinn að stöðvarhúsi Búrfells-
virkjunar. Unnið var að áætlun um frekari virkjanir Þjórsár
og Hvítár. Ákveðið var að hraða síðari áfanga Búrfellsvirkj-
unar. Hafin var bygging nýrrar skiptistöðvar í nánd við Geit-
háls, og unnið var að lagningu línu til Straumsvíkur. Unnið
var að byggingu gufuaílsstöðvar við Námaskarð í Mývatns-
(76)