Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 192
áður er sagt, verður dagsetningin ávallt einum lægri, og við
byrjum þá að telja með 10. október. Rímspillir hefur sömu
áhrif í gamla stíl og nýja stíl, en í gamla stíl voru rímspillisár
þegar svo bar undir að aðfarardagur ársins var þriðjudagur
og hlaupár fór í hönd.
Vetrarkornurnar í nýja stíl og gamla stíl eru sýndar í töflu
IV og töflu V. Seinni talan af hverjum tveimur er sá dagur
októbermánaðar sem fyrsta vetrardag ber upp á, og er þá
miðað við laugardag. Rímspillisárin eru auðkennd með feitu
letri. Nánari skýringar er að finna í 6. grein hér á eftir.
Að finna þorrakomu.
Þorri hefst með föstudegi 19.-26. janúar. Aðferðin til að
finna þorra er svo til samhljóða reglunni um sumardaginn
fyrsta. Upphafsdagsetningin er sú sama (19. janúar í stað 19.
apríl), og við teljum frá fingurstað aðfarardags fram á fingur-
topp. Eina breytingin verður á eftir rímspillisári, þ.e. þegar
næsta ár á undan er rímspillisár. í þau skipti verður þorra-
koman viku seinna en ella (26. janúar en ekki 19. janúar).
Dæmi um þetta var 1968, sem hafði aðfarardagana sunnudag
og mánudag. Þar sem þorrinn byrjar fyrir hlaupársdag, gildir
fyrri aðfarardagurinn, og við setjum því 19. janúar á fingur-
toppinn. En árið á undan var rímspillisár, svo að við verðum
að telja áfram í hring þangað til aftur er komið á toppinn.
Fæst þá 26. janúar, sem var fyrsti dagur þorra það ár.
í gamla stíl byrjaði þorrinn 9.-16. janúar. Til þess að finna
þorrakomu í gamla stíl er því notuð sama aðferð og í nýja stíl,
að því undanteknu, að byrjað er að telja með 9. janúar.
Að finna upphaf annarra mánaða í íslenzka misseristalinu.
Sú regla, að byrja að telja með fyrstu hugsanlegu dagsetn-
ingu á þeim fingurstað sem svarar til aðfarardags ársins og
telja fram á fingurtopp (í gamla stíl: fram á upplið innanverð-
an), gildir ekki aðeins fyrir fyrsta dag hörpu og þorra, heldur