Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 64
sótti ísland í júlí. Fundur vinnuveitendasambanda á Norður-
löndum var haldinn í Reykjavík í júlí. Norræna póstsambandið
hélt fund í Reykjavík í júlí. Rússneski rithöfundurinn G.
Fisj og frú hans heimsóttu ísland um mánaðamótin júlí-ágúst.
Frægur svissneskur kirkjukór, Evangelische Singgemeinde,
hélt tónleika hér á landi í júlí og ágúst. Norræni sumarhá-
skólinn starfaði í Reykjavík 3.-11. ágúst og sóttu hann rúm-
lega 200 útlendir þátttakendur. Fundur landbúnaðarráðherra
Norðurlanda var haldinn í Reykjavík í ágúst. Um sama leyti
hélt norræna samvinnunefndin um landbúnaðarmál fund í
Reykjavík. Norrænn búfræðikennarafundur var haldinn á
Hvanneyri í ágúst. Allmargir útlendingar heimsóttu land-
búnaðarsýninguna í ágúst. Borgarlæknar á Norðurlöndum
héldu þing í Reykjavík í ágúst. Ársfundur seðlabankastjóra
á Norðurlöndum var haldinn á Höfn í Hornafirði í ágúst.
Norræni byggingardagurinn var haldinn í Reykjavík í ágúst.
Sóttu hann um 700 erlendir fulltrúar. Mun þetta vera fjöl-
mennasta ráðstefna, sem haldin hefur verið hér á landi. í til-
efni af vígslu Norræna hússins í Reykjavík 24. ágúst komu
margir gestir frá Norðurlöndum, m.a. K. Bondevik, kirkju-
og kennslumálaráðherra Noregs, G. Teir, viðskiptamálaráð-
herra Finna, E. Eriksen, fyrrverandi forsætisráðherra Dana,
P. Mohr Dam, lögmaður frá Færeyjum, S. Stray, formaður
Norðurlandaráðs og Alvar Alto, prófessor frá Finnlandi,
höfundur hússins. Menntamálanefnd Norðurlandaráðs hélt
fund í Reykjavík í ágúst, og var það fyrsti fundur, sem hald-
inn var í Norræna húsinu. Norrænt iðnþing var haldið í
Reykjavík í ágúst. Fundur norrænna loftskeytamanna var
haldinn í Reykjavík í ágúst. Stjórnarfundur norræna arki-
tektafélagsins var haldinn í Reykjavík í ágúst. Brezki leikar-
inn Sir Alec Guinness heimsótti ísland í ágúst. L. Wade,
bandarískur liðsforingi, sem kom til íslands í hnattflugi 1924,
heimsótti ísland í ágúst. Ráðuneytisstjórar utanríkisráðu-
neyta Norðurlanda héldu fund í Reykjavík í ágúst. Stjórnar-
(62)