Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Page 164
að þeir mánuðir sem hafa 31 dag hafa allir lent á hnúunum,
en styttri mánuðirnir (30 daga mánuðirnir og febrúar) hafa
allir lent í millibilunum. Þessa aðferð hafa menn notað til að
rifja upp dagafjölda hvers mánaðar, en hve gömul reglan er
veit ég ekki. Hennar er ekki getið í fingrarími Jóns biskups.
Þær fingrarímsreglur sem lýst verður hér á eftir eru í ýmsum
meginatriðum frábrugðnar aðferðum Jóns. Reglur þessar
hafa orðið til smám saman á undanförnum árum, eftir
því sem ég hef komið auga á nýjar leiðir til að gera fingra-
rímið víðtækara eða auðveldara. Þeir sem kunna fingra-
rím Jóns munu kannast við kjarnann í sumum reglunum, en
í öðrum hefur þróunin gengið svo langt að ekkert er eftir
sem minnir á aðferðir Jóns. Sú þróun hefur þó venjulega
orðið stig af stigi, en ekki í einu stökki. Þess ber og að gæta,
að Jón gerði sitt fingrarím þannig úr garði að það hentaði
fyrst og fremst til notkunar á 18. öld, en nú á dögum er það
20. öldin sem sérstaklega verður að hafa í huga.
Útskýringunum hér á eftir mun ég reyna að haga svo, að
lesandanum verði ljósar þær grundvallarorsakir sem liggja að
baki hverrar reglu, þótt skýringarnar verði af þessum sökum
nokkru lengri en ella hefði orðið. Þær reglur sem fjallað verður
um eru sem hér segir:
I. Regla til að finna vikudag hvers mánaðardags.
II. Reglur til að finna tímamót í íslenzka misseristalinu
(sumardaginn fyrsta, fyrsta vetrardag, o.s.frv.).
III. Regla til að finna páska og aðrar hreyfanlegar kirkju-
hátíðir.
IV. Regla til að finna aldur tungls, þ.e. afstöðu þess til sólar.
Reglunum fylgja töflur sem gerðar hafa verið til samanburðar
við fingrarímið.
Áður en lengra er haldið er rétt að benda á það, að fingra-
rímsreglurnar mynda samtvinnaða heild. Þannig er t.d. reglan
sem notuð er til að finna vikudag hvers mánaðardags, mikil-
vægur liður í öðrum reglum, svo sem aðferðinni við að finna
(162)