Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Page 72
Vestur-Þjóðverja fóru fram í Reykjavík í júlíbyrjun, og unnu
Þjóðverjar 3:1. Norðurlandamót unglinga var haldið í
Reykjavík í júlí, og tóku einnig Pólverjar þátt í því móti. Þar
var keppt í tveimur riðlum. íslendingar unnu Finna og Norð-
menn í sínum riðli en töpuðu fyrir Svíum í úrslitaleik. Svíar ‘
unnu mótið en íslendingar urðu í öðru sæti. í júlí voru háðir
í Reykjavík landsleikir milli íslendinga og Norðmanna, og
unnu Norðmenn 4:0. í júlí var háður í Þórshöfn landsleikur
milli B-liðs íslendinga og Færeyinga, og unnu íslendingar
3:0. Fram keppti í Stokkhólmi í ágúst. K.R. keppti í Aþenu
í september. Valur keppti í september í Reykjavík við portú-
gölsku meistarana Benfica, og varð jafntefli 0:0. Á þessum
leik voru 18 243 áhorfendur, og mun það vera met hér á landi.
Valur keppti aftur við Benfica í Lissabon í október, og vann
þá Benfica 8:1. í nóvember var Albert Guðmundsson kjörinn
forseti Knattspyrnusambands íslands. Um sama leyti var
Hafsteinn Guðmundsson ráðinn til að sjá um val landsliða
í knattspyrnu. Sigrún Ingólfsdóttir lauk fyrst íslenzkra kvenna i
dómaraprófi í knattspyrnu. Baldur Þórðarson og Steinn Guð-
mundsson voru viðurkenndir milliríkjadómarar í knattspyrnu.
Knattspyrnudeild var stofnuð í íþróttafélaginu Ármanni.
Körfuknattleikur. K.R. varð íslandsmeistari í körfuknatt-
leik. Norðurlandamót í körfuknattleik var haldið í Reykjavík
í apríl. Þar urðu íslendingar í þriðja sæti, unnu Dani og Norð-
menn, en töpuðu fyrir Svíum og Finnum. Finnar unnu mótið.
Bandarískt lið keppti hér á landi í október. Tékkneska liðið
Sparta Praha keppti í Reykjavík í desember. Sveit íslenzkra
stúdenta keppti á Norðurlandamóti í Örebro í Svíþjóð í des- ,
ember.
Lyftingar. Óskar Sigurpálsson náði góðum árangri í lyft-
ingum, lyfti 437,5 kg í þríþraut. Óskar tók þátt í Ólympíu-
leikunum í Mexico um haustið.
Ólympíuleikarnir. Fjórir íslendingar tóku þátt í vetrar-
ólympíuleikunum í Grenoble í febrúar. Átta íslendingar tóku
(70)