Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 170
Tökum annað dæmi. Hvaða vikudagur er 5. maí 1970?
Um aðfarardag maí gildir sú regla, að hann er 2. dagur frá
aðfarardegi ársins, að báðum meðtöldum, þ.e.a.s. hann er
næsti dagur við aðfarardag ársins. Við teljum þá 1 á upplið
innanverðum og 2 á upplið utanverðum. Síðan kemur 1. maí
á miðlið utanverðan, 2. á framlið utanverðan, 3. á toppinn,
4. á framlið innanverðan og 5. á miðlið innanverðan. Þá er
5. maí þriðjudagur.
Minnistölur mánaðanna.
Lesandanum er nú sennilega orðið ljóst, að til þess að
finna vikudaginn þarf umfram allt að vita, hve langt eigi að
telja frá aðfarardegi ársins þar til komið er fram á aðfarar-
dag þess mánaðar sem um ræðir. Þetta er atriði sem verður
að lærast utanbókar, en ætti þó ekki að reynast neinum of-
raun, ef rétt er að farið. Reglan er þessi: Fyrir janúar er
talinn 1 (aðfarardagur ársins er jafnframt aðfarardagur
janúar), fyrir febrúar 4, fyrir marz 4, apríl 7, maí 2, júní 5,
júlí 7, ágúst 3, september 6, október 1, nóvember 4 og des-
ember 6. Eftir nokkra æfingu geta sumir vafalaust munað,
hvaða tala tilheyrir hverjum mánuði. Öðrum mun þykja
auðveldara að læra tölustafma í þulu, þrjá og þrjá í senn:
1,4,4 -7,2,5 -7,3,6 -1,4,6.
í þessari talnarunu er ákveðin hrynjandi sem auðveldar
að muna tölurnar. Ef fyrstu bókstafir stafrófsins eru settir
í stað talnanna þannig að A komi í stað 1, B í stað 2, o.s.frv.,
fæst röðin:
A,D,D,G,B,E,G,C,F,A,D,F.
Þessa ,,mánaðabókstafi“ munu þeir kannast við sem séð
hafa fmgrarím Jóns Arnasonar, enda voru þeir almennt
notaðir áður fyrr í rímreglum. Jón ætlar mönnum að læra
12 vísur til að muna þetta, eina vísu fyrir hvern mánuð,
en mér sýnist í fljótu bragði auðveldara að raða stöfunum
þannig að kveða megi að:
(168)