Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 89
ræði í efnahagsmálum, en samkomulag náðist ekki. Samþykkt
voru lög um lækkun kosningaaldurs úr 21 ári í 20 ár. Alþingi
setti mörg lög, einkum um efnahagsmál. í febrúar lét Ey-
steinn Jónsson af formennsku Framsóknarflokksins, en við
tók Ólafur Jóhannesson. í október lét Emil Jónsson af for-
mennsku Alþýðuflokksins, en við tók dr. Gylfi Þ. Gíslason. Á
landsfundi Alþýðubandalagsins í nóvemberbyrjun var á-
kveðið að breyta samtökunum í stjórnmálaflokk, og var
Ragnar Arnalds kjörinn formaður hans. Sósíalistaflokkurinn
skyldi hætta störfum í árslok. Dr. Gylfi Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra. og frú hans fóru í opinbera heimsókn til Pól-
lands í júlíbyrjun. Eggert Þorsteinsson, sjávarútvegsmálaráð-
herra, fór í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna í ágúst.
Utvegur.
Meira kvað að línuveiðum en á undanförnum árum.
Heildaraflinn varð 599 300 tonn (árið áður 896 500). Freð-
fiskur var 202 200 tonn (árið áður 167 200 tonn), saltfiskur
'15 200 tonn (70 500), ísfiskur 29 200 tonn (25 500), skreið
15 200 tonn (59 400). Niðursoðinn fiskur 1 400 tonn (82
tonn), reyktur fiskur 21 tonn (19). Þorskaflinn var 234 700
tonn (204 400), ýsuaflinn 34 400 (38 700), ufsaaflinn 38 000
tonn (29 000), lönguaflinn 8 900 tonn (7 700), keiluaflinn
4 900 tonn (2 700), steinbítsaflinn 9 000 tonn (10 300), karfa-
afiinn 30 600 (30 000), skarkolaafiinn 6 100 (5 700) og loðnu-
afiinn 78 200 (97 200). Síldarafiinn var 142 800 tonn (461 500).
Um 70 íslenzk skip stunduðu síldveiðar í norðurhöfum, en
11 á Norðursjó og við Hjaltland. Síldarflutningaskip fluttu
síld af norðurmiðum til íslands. Skipin sem veiddu á Norður-
sjávarsvæðinu seídu síldina aðallega ísaða til Þýzkalands.
Gerðar voru á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar tilraunir
með nýjar gerðir af síldarnótum. Gerðar voru tilraunir með
síldarsöltun í plasttunnur. Gerðar voru tilraunir með geislun
á físki til að auka geymsluþol hans. 4 skip stunduðu hvalveið-
(87)